Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 13
FRÉTTIR
ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra hefur fellt úr gildi
fyrri úrskurð sinn um að fram-
kvæmd Icelandic Water Holding á
Hlíðarenda í Ölfusi þurfi að fara í
umhverfismat. Ráðuneytið telur nú
að framkvæmdin sé ekki líkleg til að
hafa í för með sér veruleg umhverfis-
áhrif.
Í fyrri úrskurði ráðherrans var
lögð til grundvallar umsögn Orku-
stofnunar en í henni kom fram að
stofnunin teldi að vatnsátöppunar-
verksmiðjan hefði umtalsverð áhrif á
grunnvatn.
Aðstandendur IWH kröfðust
nýrrar umsagnar, s.s. í ljósi þess að
Orkustofnun hefði ekki byggt álitið á
eigin skýrslu, sem gerð var árið
1995, um grunnvatn og vatnsvernd í
Þorlákshöfn.
Áhrifin ekki veruleg
Orkustofnun lýsti því í kjölfarið
yfir að í ljósi nýrra upplýsinga og
skuldbindinga IWH um mótvægis-
aðgerðir teldi stofnunin ekki ástæðu
til að ætla að áhrif framkvæmdanna
á vatnafar yrðu veruleg. Því þyrfti
framkvæmdin ekki að fara í um-
hverfismat.
Átöppunarverksmiðja IWH verð-
ur um 6.600 fermetrar að stærð. Þar
verður hægt að framleiða 30.000
flöskur af Icelandic Glacial-
drykkjarvatni sem selt er í smásölu-
verslunum víða í Bandaríkjunum og
Evrópu. andri@mbl.is
Fyrri úr-
skurður
úr gildi
Framkvæmd IWH
ekki í umhverfismat
SAMTÖK hernaðarandstæðinga
fagna yfirlýsingu utanríkis-
ráðherra um að íslenskir friðar-
gæsluliðar muni eftirleiðis ekki
bera vopn við störf sín.
„Ákvörðun þessi er mikið heilla-
spor og getur stuðlað að því að Ís-
lendingar muni nú í framtíðinni
koma að meira gagni á stríðs-
hrjáðum svæðum jarðar en nú er.“
Betur megi þó ef duga skal.
Brýnt sé að stefna Íslands í mál-
efnum friðargæslu verði tekin til
gagngerrar endurskoðunar.
Fagna breyttri
friðargæslu
LANDSVIRKJUN hefur gert samn-
ing um að gerast aðalbakhjarl Sess-
eljuhúss umhverfisseturs.
Sesseljuhús umhverfissetur er
fræðslusetur um umhverfismál og
sjálfbæra þróun. Haldin eru þar
málþing, fundir og námskeið auk
annarrar fjölbreyttrar starfsemi.
Húsið er staðsett á Sólheimum í
Grímsnesi og er stafsemi þess sam-
ofin öðru starfi á Sólheimum.
Sesseljuhús
fær bakhjarl
Á FJÓRÐA þúsund nýnema hefur
nám við Háskóla Íslands þessa dag-
ana en þetta haust er það fyrsta eftir
að Kennaraháskólinn sameinaðist
Háskóla Íslands og myndaðist með
því stærsti háskóli landsins. Sér-
stakir nýnemadagar verða haldnir
28. ágúst-5. september þar sem þjón-
usta og félagslíf skólans verður
kynnt ásamt mörgum uppákomum.
Á fjórða þús-
und nýnema
3-6 GSM símar og heimasími
Með því að skrá símanúmer heimilisfólksins í Núllið þarf fjöl-
skyldan ekki að borga krónu fyrir símtöl sín á milli innanlands.
Hægt er að skrá allt að sex GSM númer notenda hjá Símanum
og eitt heimanúmer. Skilyrði er að notendurnir hafi sama lög-
heimili. Eitt númeranna má vera fyrirtækjanúmer og hringir
heimilisfólkið þá í það fyrir 0 kr.
Kostir Núllsins
• Enginn aukakostnaður og engar skuldbindingar fylgja
því að vera í Núllinu.
• Heimilisfólkið skráir sig í þá áskriftarleið sem hentar
best eða í Mitt Frelsi.
• Eitt fyrirtækjanúmer má skrá í Núllið og hringir
fjölskyldan í það fyrir 0 kr.
• Mitt Frelsisnúmer getur hringt í öll hin númerin
þótt inneignin sé búin.
• Með Núllinu spara allir á heimilinu.
Kynntu þér skilmálana og skráðu fjölskylduna
í Núllið í dag í síma 800 7000 eða á siminn.issín á milli • Það er
i
0kr.
að hringja innan
fjölskyldunnar
AÐEINS ein björgunarþyrla af
þremur hjá Landhelgisgæslunni er
með nætursjónaukum sem stendur.
Verið er að setja slíkan búnað í aðra
þyrlu og eru vonir bundnar við að því
verki ljúki með haustinu. Ekki
stendur hins vegar til að setja næt-
ursjónauka í þriðju þyrluna þar sem
Gæslan hefur ekki fjárheimildir til
þess.
Afar langt og kostnaðarsamt ferli
fylgir því að setja nætursjónauka í
björgunarþyrlu en kostnaðurinn
hleypur á mörgum milljónum króna.
Þyrlukostur Gæslunnar saman-
stendur nú af tveimur stórum þyrl-
um af gerðinni Super Puma, TF-LIF
og TF-GNA. Sú fyrrnefnda er með
nætursjónaukum en sú síðarnefnda,
sem er leiguþyrla frá Noregi, er ekki
komin með slíkan búnað. Þegar
Norðmenn leigðu Íslendingum þyrl-
una átti hún að vera með nætursjón-
auka við afhendingu en að sögn
Höskuldar Ólafssonar, tæknistjóra
Gæslunnar, höfðu Norðmennirnir
ekki lokið ísetningunni. Er það því á
þeirra hendi að stýra þyrlunni í
gegnum hið mjög svo flókna ferli hjá
EASA, Flugöryggisstofnun Evrópu.
„Það er mjög erfitt að fá samþykkt
fyrir búnaði af þessum toga,“ bendir
Höskuldur á. „Búnaðurinn þarf að
fara í gegnum mjög strangar próf-
anir hjá EASA en við erum að vonast
til að lýsingin verði tilbúin til notk-
unar í október og í kjölfarið fái hún
stimpil.“
Þriðja þyrlan, sú minnsta í flot-
anum, TF-EIR, er án nætursjón-
auka og ekki stendur til að setja bún-
aðinn í þyrluna. Segir Geirþrúður
Alfreðsdóttir, flugrekstrarstjóri
Gæslunnar, að stofnunin hafi ekki
fjárhagslegt bolmagn til verksins.
Að mati hennar væri vissulega æski-
legt að hafa allar þyrlurnar útbúnar
bestu mögulegu tækjum, en Gæslan
þurfi að haga starfsemi sinni í sam-
ræmi við aðstæður.
Þegar TF-SIF lenti í sjónum úti
fyrir Straumsvík fyrir rúmu ári var
hún á lokahnykknum í tveggja ára
ísetningarferli með nætursjónauka.
orsi@mbl.is
Minnsta björgunarþyrlan
fær ekki nætursjónauka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Náttblind TF-EIR er minnsta þyrlan hjá Gæslunni. Benóný Ásgrímsson yf-
irflugstjóri og Þórarinn I. Ingason flugmaður ganga frá borði.
Í HNOTSKURN
»Nætursjónaukar voruteknir í gagnið hjá Land-
helgisgæslunni haustið 2002
og voru taldir alger bylting
við leit og björgun.
»Fyrsta útkallið þar semraunverulega þurfti að
nota nætursjónauka var í lok
nóvember 2002 þegar kona í
barnsnauð var flutt frá Vest-
mannaeyjum á sjúkrahús í
Reykjavík og voru flugmenn
sammála um að búnaðurinn
hefði skipt sköpum.
Aðeins ein þyrla af
þremur er með
nætursjónauka