Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 37 Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins 551 1200 | midasala@leikhusid.is Miðasalan er opin alla daga frá kl. 12:30 til 18:00 og öll sýningarkvöld til kl. 20. Miðapantanir teknar í síma alla virka daga frá kl. 10:00. Stóra sviðið Skilaboðaskjóðan Sun 5/10 kl. 13:00 ath. breyttan sýn.atíma Sun 12/10 kl. 14:00 Sun 19/10 kl. 14:00 Sun 26/10 kl. 14:00 Sun 2/11 kl. 14:00 Fjölskyldusöngleikur Ástin er diskó - lífið er pönk Fös 3/10 kl. 20:00 Lau 4/10 kl. 20:00 Ö Lau 11/10 kl. 20:00 Lau 18/10 kl. 20:00 Ö Mið 22/10 kl. 20:00 Lau 25/10 kl. 20:00 Mið 29/10 kl. 20:00 Ö Kostakjör í september og október Engisprettur Sun 5/10 kl. 20:00 Fim 9/10 kl. 20:00 Fös 10/10 kl. 20:00 Ath. aðeins fimm sýningar Hart í bak Fös 17/10 frums. kl. 20:00 U Fim 23/10 2. sýn. kl. 20:00 Ö Fös 24/10 3. sýn. kl. 20:00 Ö Fim 30/10 4. sýn.kl. 20:00 Ö Fös 31/10 5. sýn.kl. 20:00 Ö Fim 6/11 6. sýn. kl. 20:00 Fös 7/11 7. sýn. kl. 20:00 Fös 14/11 8. sýn. kl. 20:00 Kassinn Utan gátta Þri 21/10 fors. kl. 20:00 Ö Mið 22/10 fors. kl. 20:00 Ö Fim 23/10 fors. kl. 20:00 U Fös 24/10 frums. kl. 20:00 U Lau 25/10 kl. 20:00 Fös 31/10 kl. 20:00 Lau 1/11 kl. 20:00 Ath. takmarkaðan sýningatíma Smíðaverkstæðið Macbeth Þri 30/9 fors. kl. 21:00 U Mið 1/10 fors. kl. 21:00 U Fim 2/10 fors. kl. 21:00 U Sun 5/10 frums. kl. 21:00 U Fim 9/10 kl. 20:00 Fös 10/10 kl. 21:00 Ö Ath. sýningatíma kl. 21 Kúlan Klókur ertu - Einar Áskell Sun 5/10 kl. 11:00 Ö Sun 5/10 kl. 12:30 Sun 5/10 kl. 15:00 Lau 11/10 kl. 11:00 Brúðusýning fyrir börn, aukasýn. í sölu Borgarleikhúsið 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 10:00-18:00, miðvikudaga til föstudaga kl. 10:00-20:00, og laugardaga og sunnudaga kl. 12:00-20:00 Fló á skinni (Stóra sviðið) Fim 2/10 12. kort kl. 20:00 U Fös 3/10 13. kort kl. 19:00 U Fös 3/10 aukas kl. 22:00 U Lau 4/10 14. kort kl. 19:00 U Lau 4/10 aukas kl. 22:00 U Mið 15/10 aukas kl. 20:00 U Sun 19/10 15. kort kl. 20:00 U Þri 21/10 aukas kl. 20:00 Mið 22/10 16. kort kl. 20:00 Ö Fim 23/10 17. kort kl. 20:00 U Fös 24/10 18. kort kl. 19:00 U Fös 24/10 kl. 22:00 U ný aukas Lau 1/11 19. kort kl. 19:00 U Lau 1/11 21. kortkl. 22:00 Ö Sun 2/11 20. kortkl. 16:00 Ö Mið 5/11 22. kort kl. 20:00 Fim 6/11 23. kort kl. 20:00 Fös 14/11 24. kort kl. 19:00 Nýjar aukasýn. Einnig hægt að velja í kortum. Ósóttar pantanir seldar daglega. Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið) Þri 7/10 forsýn kl. 20:00 U Mið 8/10 forsýn kl. 20:00 U Fim 9/10 forsýn kl. 20:00 U Fös 10/10 frumsýnkl. 20:00 U Lau 11/10 aukas kl. 19:00 U Lau 11/10 aukas kl. 22:00 Ö Sun 12/10 2. kort kl. 20:00 U Þri 14/10 aukas kl. 20:00 U Fim 16/10 3. kort kl. 20:00 U Fös 17/10 4. kort kl. 19:00 U Fös 17/10 aukas kl. 22:00 Ö Lau 18/10 5. kort kl. 19:00 U Lau 18/10 aukas kl. 22:00 Lau 25/10 6. kort kl. 19:00 Ö Sun 26/10 7. kort kl. 20:00 Ö Mið 29/10 8. kort kl. 20:00 Ö Fös 31/10 aukas kl. 19:00 Ö Lau 8/11 9. kort kl. 19:00 Ö Lau 8/11 aukas kl. 22:00 Sun 9/11 aukas kl. 16:00 Lau 15/11 kl. 19:00 Lau 15/11 kl. 22:00 Mið 19/11 10. kort kl. 20:00 Fim 20/11 11. kort kl. 20:00 Fös 21/11 12. kort kl. 19:00 Fös 21/11 13. kort kl. 22:00 Forsala hafin! Tryggðu þér miða strax. Einnig hægt að velja í kortum. Gosi (Stóra sviðið) Sun 5/10 kl. 14:00 Ö Sun 12/10 kl. 13:00 breyttur sýn.artími Sun 19/10 kl. 14:00 síðasta sýn. Sun 26/10 kl. 13:00 breyttur sýn.artími. allra síðasta sýning Síðustu aukasýningar. Fýsn (Nýja sviðið) Fös 3/10 10. kortkl. 20:00 Ö Lau 4/10 11. kort kl. 20:00 Sun 5/10 12. kort kl. 20:00 Ö Fös 10/10 13. kort kl. 20:00 Lau 11/10 14. kort kl. 20:00 Mið 12/11 15. kort kl. 20:00 Ekki við hæfi barna. Nýtt sýningarfyrirkomulag: Snarpari sýningartími. Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið) Fös 3/10 akureyrikl. 20:00 Ö Lau 4/10 akureyrikl. 20:00 U Þri 11/11 11. kort kl. 20:00 Mið 12/11 12. kort kl. 20:00 Laddi (Stóra svið) Fös 7/11 kl. 20:00 U Fös 7/11 kl. 23:00 U Fim 13/11 kl. 20:00 U Þri 25/11 kl. 20:00 Leikfélag Akureyrar 460 0200 | midasala@leikfelag.is Dauðasyndirnar (Rýmið) Fös 3/10 3. kort kl. 20:00 Ö Lau 4/10 4. kort kl. 20:00 U Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Fös 3/10 kl. 20:00 U Lau 4/10 kl. 15:00 Ö Lau 4/10 kl. 20:00 U Lau 11/10 kl. 15:00 Lau 11/10 kl. 20:00 Ö Sun 12/10 kl. 16:00 U Lau 18/10 aukas. kl. 15:00 U Lau 18/10 aukas. kl. 20:00 Fös 24/10 kl. 20:00 Lau 25/10 kl. 15:00 U Lau 1/11 kl. 15:00 U Lau 1/11 kl. 20:00 U Sun 2/11 kl. 16:00 Fös 7/11 kl. 20:00 U Sun 9/11 kl. 16:00 Lau 15/11 kl. 15:00 Ö Lau 15/11 kl. 20:00 U Sun 16/11 kl. 16:00 Fös 21/11 kl. 20:00 Ö Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið) Lau 25/10 kl. 20:00 U Fös 31/10 kl. 20:00 U Lau 8/11 kl. 20:00 U Fös 14/11 kl. 20:00 U Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Cavalleria Rusticana og Pagliacci Lau 4/10 kl. 20:00 U Sun 5/10 kl. 20:00 U Fös 10/10 kl. 20:00 U Sun 12/10 lokasýn.kl. 20:00 U Janis 27 Fös 3/10 frums. kl. 20:00 Ö Fim 9/10 kl. 20:00 Lau 11/10 kl. 20:00 Fös 17/10 kl. 20:00 Ö Lau 18/10 kl. 20:00 Iðnó 562 9700 | idno@xnet.is alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Mán 29/9 kl. 14:00 Þri 30/9 kl. 14:00 Mið 1/10 kl. 14:00 Fim 2/10 kl. 14:00 Fös 3/10 kl. 14:00 Sun 5/10 kl. 14:00 Hvar er Mjallhvít Tónleikar Fim 9/10 kl. 21:00 Heimilistónaball Lau 11/10 kl. 22:00 Dansaðu við mig Fös 24/10 kl. 20:00 Sun 26/10 kl. 20:00 Fim 30/10 kl. 20:00 Fös 7/11 kl. 20:00 Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Duo (Nýja svið) Fim 16/10 1. sýn kl. 20:00 Fös 17/10 kl. 20:00 Fös 24/10 kl. 20:00 Lau 25/10 kl. 20:00 Sun 26/10 kl. 20:00 Möguleikhúsið 5622669 / 8971813 | moguleikhusid@moguleikhusid.is Langafi prakkari (ferðasýning) Mið 1/10 kl. 09:30 F grunnskóli húnaþings vestra Fim 2/10 kl. 08:30 F leikskólinn hlíðarból akureyri Fim 2/10 kl. 10:30 F leikskólinn flúðir akureyri Fös 3/10 kl. 08:50 F leikskólinn tröllaborgir akureyri Fös 3/10 kl. 11:00 F valsárskóli Mið 5/11 kl. 09:45 F leikskólinn skerjagarður Sæmundur fróði (ferðasýning) Fös 10/10 kl. 08:30 F vopnafjarðarskóli Fös 10/10 kl. 11:15 F grunnskólinn þórshöfn Fös 10/10 kl. 15:00 F grunnskólinn raufarhöfn „ÞEGAR ég er góð, er ég góð, ljúf- ur.“ Var það ekki kynbomban Mae West sem sagði þessu fleygu orð? Hún naut þess að hafa línurnar sínar klúrar og tvíræðar. Sama má segja um Coen-bræður, þeir eru engum lík- ir þegar þeir hitta naglann á höfuðið, sem gerist ekki í hverju höggi. Í Burn After Reading, eru þeir eins og aðdá- endurnir vilja hafa þá: háðskir, smellnir, óforskammaðir, með rétta leikara í hlutverkum mislukkaðra smáglæpamanna og litlu skarpari fulltrúa laga og réttar. Þar með er hálf sagan sögð, mannskapnum í Burn After Reading er almennt ekki treystandi, allir halda fram hjá öllum og sitja á svikráðum hver við annan, löggur sem bófar. Bakgrunnurinn er Langley, borgin í Virginíu þar sem leyniþjónustan CIA er með höfuðstöðvar sínar. Í myndarbyrjun er verið að reka eitt peðið í þjónustunni, ofstopa- og grein- ingarmanninn Osborne Cox (Malko- vich), hann er giftur Katie (Swinton), sem heldur við háttsettan löggæslu- mann, Harry Pfarrer (Clooney). Eig- inkona hans, Sandy (Elizabeth Mar- vel), skrifar barnabækur - og tekur framhjá. Í hinum enda borgarinnar vinna Chad Feldheimer (Pitt) og Linda Litzke (McDormand), í heilsu- ræktarstöð, skítblönk og láta sig dreyma í svitalyktinni. Linda vill láta lýtalækni hressa upp á línurnar, Chad vill verða milli. Bæði bera þau svipað skynbragð á peningamál og af- stæðiskenninguna, því dregur til tíð- inda þegar Chad finnur disk með nauðaómerkilegum æviminningum Osborne. Chad og Linda halda að þau séu komin í græna grasið hinum meg- in girðingar; innihaldið á diskinum sé ómetanleg ríkisleyndarmál og leggja í sölutúr í rússneska sendiráðið. Coen-bræður eru í essinu sínu og gera óspart grín að sínu eftirlætis- aðhlátursefni, borubröttum minni- pokamönnum og ámóta gáfnaljósum sem hefur skolað fyrir gráglettni ör- laganna í veigameiri störf í þjóðfélag- inu. Bræðrunum bregst ekki boga- listin í mynd sem boðar afturhvarf til gamanmyndanna sem gerði þá fræga og einstaka, eins og Fargo og The Big Lebowski. Flétturnar tvinnast hver um aðra þvera og ekki alltaf sem auðskildastar. Það er partur af Coen- töfrunum og vörumerki þeirra bestu gamanmynda. Til að koma flæðinu í örugga höfn velja þeir frábæra leikara sér til halds og trausts og nú er það enginn annar en Pitt sem stelur senunni sem treg- gáfaður ræktarráðunautur. Svo eru þau hvert öðru betra, McDormand, Clooney, Malkowich, Swinton og J.K. Simmons, sem hyskinn stjóri hjá leyniþjónustunni. Coen-bræður gerðu góða hluti í krimmanum No Country for Old Men og uppskáru haug af Óskurum. Nú eru þeir komn- ir aftur á heimaslóðir háðs og spotts, verið velkomnir. Ótryggð og auragræðgi KVIKMYND Háskólabíó, Smárabíó, Borg- arbíó Akureyri Leikstjórn og handrit: Joel Coen og Ethan Coen. Aðalleikarar: George Clooney, Frances McDormand, Brad Pitt, John Malkovich, Tilda Swinton, J. K. Sim- mons. 96 mín. Bandaríkin 2008. Burn After Reading bbbbn George Clooney Fer á kostum í Burn After Reading, líkt og aðrir. Sæbjörn Valdimarsson BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn David Amram heldur frið- artónleika í Ráðhúsinu kl. 20 í kvöld, en ókeypis er á tónleikana sem eru hluti af Alþjóðlegri kvik- myndahátíð í Reykjavík. Amram hefur samið meira en 100 tónverk, þar á meðal fyrir kvik- myndir á borð við Splendor in the Grass og The Manchurian Candi- date. Þá hefur hann spilað á tón- leikum með mönnum á borð við Dizzy Gillespie, Thelonious Monk og Tito Puente. Amram stendur fyrir tónleik- unum í slagtogi við Pétur Grét- arsson, en þeir eru haldnir í tengslum við heimsfrumsýningu myndarinnar Óbyggða-Gandhi, sem hann samdi tónlistina við. Á dagskrá verður etnógrafískur djass og þeir félagar taka meðal annars djassútgáfu af „Hani, krummi, hundur, svín“ enda á Amram mynd- arlegt safn af íslenskum lögum. Amram hefur verið þekktur fyrir að semja rímandi lagatexta á staðn- um á miðjum tónleikum. Það kemur í ljós í Ráðhúsinuí kvöld hvort hann tekur upp á því hér. Víðförull David Amram. Friðartón- leikar RIFF í Ráðhúsinu BANDARÍSKI leikarinn George Clooney er sagður sjá mjög eftir fyrrverandi kærustu sinni, Lisu Snowdon, og sendir henni nú blóm og sms daginn út og daginn inn. Snowdon, sem er bresk fyr- irsæta, kom nýverið fram í sjón- varpsþættinum Strictly Come Dancing í Bretlandi, og mun Cloon- ey hafa orðið mjög ánægður með það sem fyrir augu bar. „Áður er þátturinn hófst sendi George henni sms og óskaði henni góðs gengis. Þetta voru fyrstu sam- skipti þeirra í nokkuð langan tíma. Lisa varð mjög hissa, en bjóst ekki við að heyra meira frá honum,“ segir heimildarmaður um málið. „Eftir þáttinn sendi George henni hins vegar önnur skilaboð þar sem hann lýsti því yfir að hún hafi komið mjög vel út í þætt- inum.“ Í kjölfarið hefur leikarinn svo sent stúlkunni blóm. Ekki fylgir þó sögunni hvort hún hafi fallið fyrir leikaranum að nýju. Þegar allt lék í lyndi George Cloon- ey og hin breska Lisa Snowdon. Clooney sér eftir Snowdon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.