Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 32
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sofið í vörninni.
Norður
♠ÁKG876
♥108
♦107
♣D42
Vestur Austur
♠D4 ♠10953
♥K764 ♥32
♦ÁK6 ♦DG832
♣9763 ♣ÁG
Suður
♠2
♥ÁDG95
♦954
♣K1085
Suður spilar 2♠.
Keppendur í butler-tvímenningi BR
sl. þriðjudag sýndu almennt þá hógværð
að spila bút í spaða og taka þar átta slagi.
Meira er ekki að hafa og raunar minna ef
sagnhafi gætir sín ekki. Á tveimur borð-
um varð suður sagnhafi í 2♠ eftir multi-
opnun norðurs á 2♦ og „leitandi“ 2♠-
svar suðurs.
Vestur hitti á góða vörn með því að
taka ♦ÁK og spila þriðja tíglinum. Það
blasir ekki við, en sagnhafi verður helst
að taka strax á ♠ÁK. En það gerðist
ekki. Báðir sagnhafar svínuðu fyrst í
hjarta. Vestur drap og spilaði laufi. Nú
er sviðið sett fyrir skemmtilega brellu.
Austur verður að taka á ♣Á og spila tígli,
sem vestur trompar með drottningu. Við
það uppfærist sjötti varnarslagurinn á
tromp. En nei, báðir austurspilarar
sváfu værum blundi og létu ♣G í slaginn.
Synd og skömm.
32 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Sudoku
dagbók
Í dag er mánudagur 29. september,
273. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og ég veit að boðorð
hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það
tala ég því eins og faðirinn hefur sagt
mér. (Jh. 12, 50.)
Þegar illa gengur og snögg áföll ríðayfir reynir Víkverji oft að finna
sökudólga. Hann sér enga ástæðu til
að tileinka sér sanngirni þegar þannig
stendur á.
Þess vegna nýtur hann þess í botn
þegar ráðist er harkalega á Seðlabank-
ann fyrir að grípa ekki til réttra ráð-
stafana. Þessir menn eiga skilyrðis-
laust að stöðva strax fall krónunnar
sem virðist ætla að gera meirihluta
okkar að öreigum. Víkverji skilur ekki
þessa menn. Þeir fá endalaust ráð um
það hvað beri að gera en virðast ekki
hlusta og eru á góðu kaupi við þetta
sinnuleysi.
x x x
Að vísu ber ráðgjöfunum, klárumhagfræðingum úti í bæ og úti í
heimi, alls ekki saman, frekar en sér-
fræðingum yfirleitt. Stundum eru þeir
gersamlega á öndverðum meiði. Einn
vill fara í vestur, annar í austur, sá
þriðji vill ekki fara nokkurn skapaðan
hlut.
En það er ekki Víkverja að kenna að
lífið er flókið. Hann veit hins vegar að
það skortir illa fagmenn í Seðlabank-
ann, ekki bara einhverja fagmenn
heldur fagmenn með rétta skoðun. Þó
ekki skoðun Víkverja sem breytist dag
frá degi eins og lesendur vita; Víkverji
er vindhani. En þar sem fagmenn
ráða, t.d. í Seðlabanka Bandaríkjanna,
er allt í góðu gengi. Það sjá allir.
x x x
Annars er Víkverji í alvöru á því aðbest sé núna að temja sér nokk-
urt kæruleysi. Ef hann á ekki lengur
fyrir afborgunum af skuldum við bank-
ann er það auðvitað slæmt. En gjald-
þrot er ekki heimsendir. Nú er mjög í
tísku að segja fólki að taka til í fjármál-
unum, minnka útgjöldin og greiða nið-
ur skuldir. Þetta er allt gott og blessað
en hæfilegt kæruleysi er líka ómiss-
andi.
Auðvitað verður að tryggja að allir
fái nóg að borða og húsaskjól á Íslandi.
En við hljótum mörg að geta hert sult-
arólina þegar kemur að ýmsu sem ein-
hvern tíma hefði verið kallað ótrúlegur
munaður. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 lætur undan, 4
leyfi, 7 hreinsum, 8
kvendýrið, 9 lamdi, 11
framkvæma, 13 svara,
14 glaður, 15 verkfæris,
17 væna, 20 bókstafur,
22 klagar, 23 sárar, 24
gerði rólegan, 25 líf-
færið.
Lóðrétt | 1 djúp rödd, 2
óframfærni maðurinn, 3
raddar, 4 borg, 5 dáin, 6
snjóa, 10 messing, 12
keyra, 13 óhljóð, 15 bol-
lok, 16 höggva smátt, 18
trylltar, 19 ákveð, 20
hrelli, 21 heiti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 galsafull, 8 ástar, 9 loðin, 10 ill, 11 annar, 13
afann, 15 flakk, 18 fræða, 21 afl, 22 ragan, 23 Óðinn, 24
gamansaga.
Lóðrétt: 2 aftan, 3 sárir, 4 fella, 5 leðja, 6 fána, 7 unun,
12 ask, 14 fár, 15 ferð, 16 angra, 17 kanna, 18 flóns, 19
æfing, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O–O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3
O–O 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2
Bb7 12. Bc2 He8 13. Rf1 Bf8 14. Rg3 g6
15. b3 Bg7 16. d5 Hc8 17. Be3 c6 18. c4
Rb6 19. Hb1 Dc7 20. dxc6 Bxc6 21.
Bxb6 Dxb6 22. Dxd6 Hcd8 23. Db4 Bf8
24. Dc3 Bc5 25. He2 b4 26. De1 Kg7 27.
Hd1 Hxd1 28. Dxd1 Hd8 29. Dc1 Rd7
30. Dg5 f6 31. Dg4 Kf7 32. Hd2 Rf8 33.
Hxd8 Dxd8 34. Re1 Re6 35. Rd3 Be7
36. Dd1 Dd4 37. Rc1 Db6 38. Rf1 Bc5
39. Rd3 Bd4 40. De1 a5 41. Rg3 Kg7 42.
Bd1 Bc3 43. De2 Db7 44. Dg4 Dd7 45.
Be2 Kf7 46. h4 h5 47. Df3 Ke7 48. De3
Dd4 49. Dh6 Bxe4 50. Dh7+ Kd6
Staðan kom upp á heimsmeist-
aramóti kvenna sem lauk fyrir skömmu
í Nalchik í Rússlandi. Kínverska undra-
barnið Yifan Hou (2557) hafði hvítt
gegn Humpy Koneru (2622) frá Ind-
landi. 51. c5+! Rxc5 (51… Kc6 52. Rxe4
Dxe4 53. Bf3) 52. Rxc5 Kd5 og svartur
gafst upp um leið.
Hvítur á leik.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Afbrýðisemi kennir þér. Sá sem þú
öfundar er mjög líkur þér, en hefur slegið í
gegn á sviði sem þú veist þú gætir líka
brillerað á. Láttu þetta hvetja þig til að
taka jákvætt skref.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Áætlunin fýkur út í veður og vind og
það er gott. Þú verður hissa og fyllist anda-
gift við að líta gamalt vandamál nýjum
augum. Vertu hvatvís og opinn fyrir því
óvænta.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Settu fálmarana út. Þú þafnast
meiri upplýsinga um það sem er að gerast
hjá fólkinu í kringum þig. Þú verður sam-
úðarfyllri eftir að þú færð fréttirnar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þig grunar að þú sért að verða eftir
á á einhvern hátt. Sannleikurinn er að það
er ekkert „á eftir“ og „á undan“, bara þar
sem þú ert nú, það er góður staður.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Óánægður með vinnuna? Gamall vin-
ur hefur samband, fær þig til að hlæja og
kemur þér í betra skap. Svo er bara að
halda því við með trimmi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur ekki tíma til að eyða í hluti
sem þú ert óviss um. Taktu ákvarðanir
fljótt, án þess að hika. Haltu þig við það
sem þú þekkir og vertu stoltur af því.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nýttu tækifærið til að víkka sjóndeild-
arhringinn. Hvort sem það er dagsferð,
nýtt áhugamál eða andleg upplífgun muntu
finna nýjan eldmóð innra með þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú syndir meðal hákarlanna
núna, og þar áttu reyndar heima – enda
ertu einn af þeim. Þú ert jafn gráðugur í
velgengni og hinir í kringum þig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Viðurkenndu hversu vel þú hef-
ur unnið og afrekað miklu. Hvernig væri
að veita þér verðlaunin sem þú lofaðir þér?
Það er mikilvægt að standa við það.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Satt er að það þarf bara einn lít-
inn hlut sem ekki gengur upp til að setja
þig út af laginu. Gríptu til andlegra tóla til
að róa þig; möntru eða öndunaræfinga.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú og vinnufélagarnir hafið ólík-
ar hugmyndir um hvað er árangursríkur
vinnudagur. Þú leiðir hópinn og leggur
áherslu á það sem klárar verkin.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Vinur hefur hangið í þér undanfarið
í gegnum símtöl, og þér finnst þú þurfa
frið. Ekki halda að vinurinn brotni saman
við það að missa af þínum ráðum.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
29. september 1966
Tómas Jónsson metsölubók,
skáldsaga Guðbergs Bergs-
sonar, kom út. „Það leynir sér
hvergi í þessari bók að höf-
undurinn er listamaður,“
sagði í ritdómi í Morg-
unblaðinu.
29. september 1974
Auður Eir Vilhjálmsdóttir tók
prestvígslu, fyrst íslenskra
kvenna. Hún vígðist til Stað-
arprestakalls í Súgandafirði.
29. september 1980
Flugvél lenti á Reykjavík-
urflugvelli eftir sex stunda
flug frá Færeyjum. Alla leið-
ina stóð þýskur maður á þaki
vélarinnar. Hann var að reyna
að setja heimsmet.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Ísak Óli Borgarsson, Birta María
Borgarsdóttir og Edda Emelía Arn-
arsdóttir héldu tombólu og sölu á
dóti í Húsahverfi og við Sundlaug
Grafarvogs. Þau söfnuðu 1.104 kr.
sem þau færðu Rauða krossinum.
Hlutavelta
BJÖRGVIN Magnússon, fyrrverandi skólastjóri
heimavistarskólans á Jaðri við Heiðmörk, fagnar
stórafmæli í dag er hann verður 85 ára. Í samtali
við Morgunblaðið segist hann lítið gera með það
afmæli og tekur fram að sér finnist í raun miklu
meira um vert að í ár fagni hann 70 ára skátaaf-
mæli. „Það er svo gott að vera innan um unga fólk-
ið Það er bæði gefandi og skemmtilegt og á örugg-
lega stóran þátt í því að halda mér svona
unglegum,“ segir Björgvin, sem sjálfur hóf skáta-
starfið þegar hann var aðeins fjórtán ára.
Björgvin var um áratugaskeið staðarhaldari,
skjólastjóri og stjórnandi margra foringjanámskeiða að Úlfljótsvatni.
Hann var lengi vel einn helsti forsvarsmaður Gilwell-þjálfunar á Ís-
landi sem er alþjóðlegt þjálfarakerfi sem Baden Powell stofnaði til
strax á upphafsárum skátahreyfingarinnar á síðustu öld.
Spurður um eftirminnileg afmæli nefnir Björgvin strax ferðalag til
Spánar þegar hann fagnaði 50 ára afmælinu. „Hins vegar finnst mér
aðalafmælið hafa verið þegar ég varð áttræður, því þá kom allt fólkið
mitt heim til mín og hélt upp á daginn með mér.“
Spurður hvað hann ætli að gera á sjálfan afmælisdaginn segist
Björgvin ekki hafa áformað neitt sérstakt í dag, en tekur jafnharðan
fram að í raun hafi hann tekið smá forskot á sæluna því í gær héldu
skátar Björgvini kaffisamsæti á Úlfljótsvatni. silja@mbl.is
Björgvin Magnússon skátaforingi 85 ára
Starfið heldur mér ungum
1 8 6
6 9 3 1 7
3 8 5 9
9 6 8
5 3 2 9 7
1 9 7
3 7 6 8
5 1 6 7 2
4 8 2
Frumstig Miðstig
4 7 5 8 1
3 7 5 8
8 6
4 1 5
9 6
5 6 7
3 5
9 3 4 1
1 7 5 9 3
Efstastig Lausn síðustu Sudoku.
1 6 4 8 7 3 2 5 9
2 7 5 4 6 9 1 8 3
8 3 9 1 2 5 6 4 7
9 5 8 6 4 7 3 2 1
4 2 3 5 9 1 8 7 6
6 1 7 3 8 2 5 9 4
3 4 2 7 5 6 9 1 8
7 9 6 2 1 8 4 3 5
5 8 1 9 3 4 7 6 2
9 7 1 2 8 6 3 5 4
6 4 8 1 3 5 7 2 9
3 2 5 9 4 7 1 6 8
7 5 3 4 1 2 9 8 6
8 6 2 3 5 9 4 1 7
4 1 9 6 7 8 5 3 2
1 3 6 8 9 4 2 7 5
2 9 7 5 6 1 8 4 3
5 8 4 7 2 3 6 9 1
4 9 2 7 8 1 6 5 3
8 3 6 9 5 4 7 1 2
5 7 1 6 2 3 8 9 4
7 2 3 1 4 8 5 6 9
9 4 8 2 6 5 1 3 7
6 1 5 3 9 7 2 4 8
1 5 9 4 7 2 3 8 6
2 8 4 5 3 6 9 7 1
3 6 7 8 1 9 4 2 5
1 3 2 4
4 9 6 7 1
5
2 3 5 8
4 9
6 2 5 8
6
9 1 2 8 5
2 4 1 3
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is
Skúli Magn-
ússon garð-
yrkjubóndi í
Hveratúni í
Biskupstungum
er níræður í dag.
Afmælisbarnið
verður að heim-
an.
90 ára