Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 19 Misstu andlitið Þær trúðu ekki eigin augum, stúlkurnar sem horfðu á leik kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn Frökkum í Smáralind á laugardag. Golli Blog.is Anna K. Kristjánsdóttir | 28. september 2008 Daufleg Spaugstofa ...slá á puttana á þeim, hlýða þeir og hegða sér betur næst. Þar má nefna atriði eins og þeg- ar þeir móðguðu bisk- upinn fyrir páska og eins þegar þeir gerðu góðlát- legt grín að blörruðum borgarstjóra og létu móðgunargirnd hans svínbeygja sig í kjölfarið. Nú byrjaði haustið dauflega eftir að fjöldi skemmtilegra atburða fór framhjá Spaugstofunni meðan hún var í sum- arleyfi. Af einhverjum ástæðum óttast ég að ef hún verður ekki beittari en nú á laugardagskvöldið, muni áhorfið hrynja í haust og fleiri áhorfendur snúa sér að Stöð 2. Það þýðir ekkert að hlusta á einhverja siðavanda bloggara og misheppnaða stjórnmálamenn segja sér fyrir verkum. Ef Spaugstofan vill endurheimta fyrri stöðu í samfélaginu, verður hún að ganga út á ystu mörk þess sem al- menningur sættir sig við og helst að fá kirkjuna, hirðfífl bloggsins og mis- heppnaða pólitíkusa alla upp á móti sér. Ef Spaugstofan treystir sér ekki til þess, er best að leggja hana niður og yngja hressilega upp í stétt grínleikara. Meira: velstyran.blog.is Guðmundur Ragnar Björnsson | 28. september 2008 Það þurfa fleiri björg- unarhring en USA Hérlendis virðast Væla EU Veinólínó (Samfó) og Vandráður Ráðalausi (Sjallinn) vera þess al- gerlega ómegnug að taka til hendinni. Í USA hefur þó duglausasti forseti allra tíma tekið til hendinni. Mannskapurinn virð- ist algerlega fastur í þessari fjandans evru-umræðu sem að ekki mun leiða til neins til skamms tíma. Svarið við nú- verandi stöðu er augljóst og hefur blasað við í langan tíma. Á meðan bar- ist var við verðbólguna síðast á ár- unum 1985-1990 var gengið fest og eins og staðan er í dag virðist sú lausn vera það besta... Meira: gudmbjo.blog.is Marta B. Helgadóttir | 27. september 2008 Heimili til sýnis eða vistar Að mínu áliti eru heimili heimilisleg þegar það sést á þeim að þar búi fólk. Á námsárunum í Sví- þjóð kom ég á mynd- arheimili þar sem húsráðendur höfðu þá lífsreglu að „Bättre lite skit i hörnan än ett rent helvete“. Þessi yfirsögn heimilisins sem var útskorin í fallegu letri á trjábút í forstofunni getur út- lagst eitthvað á þessa leið: smá óhrein- indi í hornunum er betra heimili en tandurhreint fangelsi. Meira: martasmarta.blog.is NÚ ERU blikur á lofti í fjármálaheimi, sem sumir líkja við aðdraganda krepp- unnar miklu. Enn er vart hægt að tala um kreppu, heldur miklu fremur ótta við kreppu – sem einnig getur haft af- drifaríkar afleiðingar. Samræmdar aðgerðir stjórnvalda víða um heim gætu komið í veg fyrir slíkt, ólíkt því sem var fyrir rúmum mannsaldri. En hvernig er best að ráða bót á vandanum og hvaða af- leiðingar af aðgerðum þeirra, eða jafnvel aðgerðaleysi, eru ásætt- anlegar? Aðgerðasjóðir ekki nýir af nálinni Viðbragðaáætlun Bandaríkja- stjórnar er að nokkru hægt að bera saman við aðgerðirnar í Sví- þjóð árið 1993. Svíar áttu við fjár- málakreppu að stríða og settu á stofn digran sjóð, fjármagnaðan af skattfé, til þess að bjarga fjár- málageiranum. Aðgerðirnar voru umdeildar en að lokum skiluðu þær sér að margra mati. Skatt- borgararnir fengu tvo þriðju fjár- ins aftur og komu sér undan fjár- málakreppu sem hefði getað valdið miklum búsifjum. Lykillinn að ár- angri þessarar aðgerðar var sá rammi sem settur var um starf- semi sjóðsins og hve vel tókst að halda stjórnmálamönnum frá hon- um. Hvort sem rekja má láns- fjárvandann nú til gjaldfellingar gjaldmiðla af hálfu seðlabanka heimsins, misbresta í reglugerðarverkinu og slæmrar efnahags- stjórnar eða einfald- lega ofurgræðgi fjár- málastofnana og þeirra stjórnenda, þá er víst að til þess að stýra okkur út úr vandanum þarf færa stjórnendur með góð ráð í höndum. Stjórn- málamönnum er ætl- að að setja rammann (hin góðu ráð) en láta eftir sérfræðingum að framkvæma þau. Þannig leystu menn málin í Svíþjóð árið 1993 og reyndist um margt vel. Bjargráð Bandaríkjastjórnar Á Bandaríkjaþingi liggur fyrir bjargráðaáætlun upp á um 700 milljarða Bandaríkjadala. Þessum fjármunum er m.a. ætlað að létta á fjármálastofnunum sem sitja uppi með slæm húsnæðislán. Lær- dómsríkt er að rekja sögu s.k. lánapakka, sem eftir kúnstarinnar nýju reglum áttu að vera nánast án allrar áhættu. Þeir voru mikil mistök. Þessir lánapakkar hafa margir ekki reynst innihaldsríkari en nýju fötin keisarans; lán voru veitt til fólks sem ekki var borg- unarmenn fyrir lánunum og veðin byggð á verðbólu á fasteignamark- aði. Bankar og fjármálastofnanir, sem alla jafna byggja starf sitt á tilhlýðilegri íhaldssemi, misstu sig í ofgnótt af lánsfé og blindri hagnaðarvon. Hvað sem líður gráðugum stjórnendum á Wall Street virtust flestir reiðubúnir til þess að taka þátt í gleðinni, hér heima sem annars staðar. Bandaríkjaþing hefur nú hafnað tillögum Bush-stjórnarinnar, alla vega að óbreyttu. Stjórnin bendir á, að án skjótra viðbragða geti verr farið en ef ekkert er að gert. Menn eru ekki sammála um for- sendur eða leiðir. Einnig er fléttað inn í þetta ofurlaun stjórnenda í fjármálaheiminum, sem mörgum svíður, en eins og fyrri daginn er mörgum í mun að finna sökudólga. Frá vinstri er bent á, að aðgerð- ir af þessu tagi eigi að rétta hag þeirra sem verst standa og óttast er að forstjórarnir muni sleppa of vel. Frá hægri kemur gagnrýni af öðru tagi. Þar á bæ velta menn fyrir sér hvort fyrirtæki eigi ekki að fara á hausinn, það sé affæra- sælast til lengri tíma; slíkt ryðji úr vegi illa reknum fyrirtækjum, að ekki sé nú talað um slæma stjórnendur. Með því móti muni markaðurinn rétta sjálfur úr sér, þó svo að það gæti tekið tímann sinn og falið í sér sárauka. Inn í þetta fléttast og hagfræðiumræða sem tekst á við að hve miklu leyti markaðir geti leitað jafnvægis af sjálfum sér en sumir efast um slíkt. Hugmyndafræðileg átök Stjórnvöld eru ekki hrifin af sársauka, það er ekki gott þegar kemur að kjördegi. Sumir benda á að betra sé að fá yfir sig storminn í stuttan tíma, láta veikbyggðu húsin fjúka en byggja á þeim sem standa af sér óveðrið. Hljómar ekki illa. Hins vegar eru margir hræddir við áhrifin sem þetta gæti haft á þær fjölskyldur sem standa illa og vilja fremur að stormurinn verði mildari en vari þeim mun lengur. Hættan við slíkt er að hús- in muni jú standa en halda áfram að soga til sín fjármagn og valda efnahagslegum þrengingum um langt skeið. Einnig er spurt, að hve miklu leyti einstaka fjármálastofnunum leyfist að hafa á sinni hendi stóran hluta húsnæðislána? Því stærri hlutdeild, þeim mun alvarlegri af- leiðingar ef stór aðili fer yfir um – ekki ósvipað og nú hefur gerst í tilfellum fjármálastofnana, sem Bandaríkjastjórn hefur tekið yfir. Þær aðgerðir, auk yfirtöku banka og núverandi tillagna um hinn digra bjargráðasjóð, nema upp- hæð sem ekki er undir þúsund milljörðum dala. Sumir kalla þetta pilsfaldakapí- talisma en fyrir venjulega borgara skiptir mestu að ekki fari verr og varðar lítið um nafngiftir. Eigi markaðshagkerfið áfram að færa björg í bú er okkur sama þó svo að því sé rétt hjálparhönd öðru hvoru. Markaðshagkerfið er í raun mannanna smíð, sem hvílir á mörgum stoðum. Hið opinbera gegnir þar hlutverki, sem ekki verður horft framhjá, og skyldu allir hafa það í huga, hverju sem menn annars bugta fyrir í stjórn- málum. Eftir Ólaf Als »Eru bjargráð Banda- ríkjastjórnar birt- ingarmynd pilsfalda- kapítalisma eða eðlileg og sjálfsögð viðbrögð? Er hugmyndafræðin að þvælast fyrir stjórn- völdum? Ólafur Als Höfundur er viðskiptafræðingur. Tekist á við afleiðingar óstjórnar í fjármálum Hannes Friðriksson | 28. september 2008 Hlutafélag til hvers? Í blogginu hér á undan undraðist ég skyndilegan áhuga bæjarstjórans á að auka hlut Reykjanes- bæjar í Hitaveitu Suð- urnesja og furðaði mig á þeim vinnubrögðum sem menn virðast sýna til að ná þeim mark- miðum að eignast hlutinn í samvinnu við Geysi Green Energy. Tilkynnt hefur verið um óstofnað hlutafélag Reykjanesbæjar og GGE, sem nú þegar hafi reynt að gera tilboð í hluti sem enn ekki virðast vera á lausu. Auðvitað ætti ég að fagna þeirri viðhorfsbreytingu sem orðið hefur hjá bæjarstjóranum hvað það varðar að skynsamlegt væri fyrir bæjarfélagið að eiga þar stærri hlut en nú er og geri það í raun. Og fagna því þó meir að staða... Meira: smali.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.