Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 17 595 10 00 www.heimsferdir.is www.vivacuba.se • www.cubatravel.cu Vörður Tveir gullskreyttir stríðs- menn varða jafnan innganga við byggingar á hofsvæðinu. fjarlægð frá hallarsvæðinu við ána. Hindúar eiga einnig sín trúar- svæði í Bangkok þótt í minnihluta séu í borginni. Eitt frægasta lík- neski þeirra, Erawan-helgiskrínið, er staðsett á torgi í grennd við helstu verslunarmiðstöðva- samstæðu borgarinnar. Þegar blaðamann bar þar að var mikill hópur fólks þar staddur, sumir ferðamenn í sömu erindagjörðum og hann en aðrir að iðka trú sína með því að brenna reykelsi og leggja blóm framan við skrínið. Sigling um Chaophraya-ána sem liggur í gegnum borgina er góð leið til að fá mynd af Bangkok. Ým- iskonar bátar sigla þar fram og aft- ur sem hluti af samgöngukerfi borgarinnar og því einfaldlega hægt að taka sér far með einum slíkum til að komast á milli staða. Eins má kaupa sér skemmtisiglingu fram og tilbaka eftir ánni og á sumum bát- unum er boðið upp á margréttaðan kvöldverð meðan á siglingunni stendur. Þeim sem óska eftir annars konar sjónarhorni á sama svæði má benda á Sirocco Skybar, sem er á 63. hæð State Tower, við ána. Þar uppi, við ljósum prýddan bar undir berum himni og lifandi djasstónlist í eyr- um, má dreypa á kokteilum að kvöldlagi með stórfenglegt útsýni yfir borgina. Ógleymanlegt fyrir þá sem reyna. þyrfti nú ekki að fara eftir þessum útivistarreglum og börnin hans ekki heldur. Í dag líta foreldrar á þetta sem sjálfsagðan hlut,“ segir Eiður. Á árum áður hafi lögreglan þurft að hafa afskipti af mörgum börnum en nú séu þetta kannski fjögur börn á kvöldi í yfir 20 þúsund manna hverfi. Ásdís segir foreldrum ekki heimilt að lengja útivistartímann: „En þau mega stytta hann,“ segir hún. „Þetta er ekki útivistar- skylda!“ botnar samstarfsfélagi hennar. „Þú þarft ekki að vera úti til tólf.“ Halda börnum frá afbrotum Foreldrar eru að sögn Ásdísar al- mennt ánægðir með öll af- skipti lög- Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Útivistarreglurnar erubundnar í barnavernd-arlög. Þetta er til aðvernda börn, eins og ég segi alltaf við krakkana, ekki til að vera vond eða leiðinleg við þau,“ segir Ásdís Haraldsdóttir við blaða- mann sem er staddur á forvarn- ardeild í lögreglustöðinni á Hverf- isgötu en Ásdís er svæðis- lögreglumaður í Laugardal og Háaleiti. Undir orð hennar tekur Eiður H. Eiðsson, lögreglufulltrúi svæðisstöðvar I og forvarna: „Regl- urnar eru ekki í hegning- arlögum heldur í barna- verndarlögum.“ Þau vinna að mál- efnum barna og ung- menna og meðal verk- efna er að framfylgja útivistarreglum. Ávinninginn segja þau ótvíræðan og margvíslegan. Einna mikilvægast sé að börn forðist hættuna því tölur sýni að börn brjóti helst af sér þegar útivist- artími er liðinn og eins séu meiri líkur á að hættulegt fólk sé á ferli á kvöldin. Þau sleppi auk þess við skrekkinn þar sem þau séu oft orðin þreytt eftir langan dag og bregðist því seinna við ef eitthvað kemur upp á. Nægur svefn sé þeim líka mikilvægur fyrir næsta skóladag. „Þegar það er farið að skyggja á kvöldin er það ekkert umhverfi fyrir börnin að vera úti. Það eru færri á ferli sem fylgjast með barninu og kannski fleiri ein- staklingar sem eru t.d. undir áhrif- um. Það er bara hættulegt umhverfi fyrir börn seint um kvöld eða á nóttunni,“ segir Ásdís. Sem svæð- islögreglumaður hefur hún eftirlit með sínu hverfi og á samskipti við ýmsa þar, m.a. í heimsóknum í skóla. Síðustu tvö árin hefur forvarn- ardeildin einnig sent út kynning- arbréf um reglurnar til foreldra grunnskólabarna og hafa þessi áminningarbréf mælst vel fyrir. „Ég hef fengið þakkarbréf frá for- eldrum,“ upplýsir Eiður léttur í lund. Hann hefur gegnt ýmsum störfum innan lögreglunnar en hann segir forvarnarstarfið það þakklát- asta og í þeirra deild ríki jákvæðið. Eiður segir árangurinn af starfi deildarinnar gríðarlegan. Mikil breyting hafi orðið í þessi þrettán ár sem hann hefur starfað við þetta. „Ef maður kom á fund um þessi mál fyrir 13-15 árum stóð alltaf einhver upp og gortaði sig af því að hann reglunnar, einhverjir hafi reyndar kvartað undan því að útivistartím- inn sé of langur á sumrin. Þau Eið- ur viðurkenna að þau séu í nokkru uppeldishlutverki en minna þó á að forvarnir byrji alltaf heimafyrir. Lykilatriði sé að foreldrarnir standi saman. „Það er svo erfitt fyrir mig sem foreldri ef þú leyfir þínum börnum að vera úti. Ef allir virða þær er mjög auðvelt að fara eftir þeim,“ segir Eiður. Besta mælikvarðann á starf sitt og forvarnargildið segja þau að inn- an útivistarrammans haldist börn einnig frá afbrotum. „Tölfræðin sýnir að afbrot barna og ungmenna eru langflest eftir að útivistartíma þeirra á að ljúka,“ segir Eiður og bætir við að þau sjái auðvitað dökku hliðarnar, þau hitti aftur og aftur sömu krakkana úti á kvöldin og komi mörgum á réttan kjöl. Ein- staklega gefandi sé að hitta skjól- stæðinga sína, sem þau nefna svo, í góðum málum. Sírenuvæl berst inn í lögreglu- stöðina eins og til að minna á að það sé hættulegt „þarna úti“. Er það svo? Þau eru sammála um að frétta- flutningur gefi dökka mynd af mál- um en vakning hafi orðið á meðal foreldra um mikilvægi þess að virða útivistartímann. Svo séu börn ein- faldlega góð. Hættulegt umhverfi á kvöldin Samvinna „Við erum að passa ykkur – og okkur er ekki sama,“ eru skilaboðin sem Ásdís Haraldsdóttir og Eið- ur H. Eiðsson senda til barna. Morgunblaðið/Arnaldur Barnauppeldi Reglur um útivistartíma gilda ekki bara fyrir minnstu krílin og er ávinningurinn af því að fylgja þeim eftir ótvíræður. Löggan er að leita! kvisaðist út um hverfin í „gamladaga“ og göturnar tæmdust. Nú er öldin önnur og fá börn á ferli eftir að útivistartíma lýkur, að sögn lögreglunnar. Morgunblaðið/Valdís Thor Hverjar eru útivistarreglurnar? Samkvæmt barnaverndarlögum mega börn, 12 ára og yngri, ekki vera á almannafæri eftir kl. 20 nema í fylgd með fullorðnum. Börn 13-16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir kl. 22, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Frá 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir. Aldurs- takmark miðað við fæðingarár en ekki fæðingardag. Hvernig er reglunum framfylgt? Lögreglan hefur eftirlit með útivist- artímum alla daga og keyrir börn heim ef reglur eru brotnar. Forvarn- ardeild lögreglunnar sér líka um svo- kallaðar athvarfsvaktir, í samvinnu við íþrótta- og tómstundasvið Reykjavík- urborgar (ÍTR) og þjónustu- miðstöðvar. Þá keyra fulltrúar lögregl- unnar um hverfin og ef upp kemst um brot á útivistartíma eða ölvun á ung- mennum eru krakkarnir teknir í at- hvarf og foreldrar látnir sækja þá. For- eldrar fá að ræða við fulltrúa ÍTR og þjónustumiðstöðva og fá bækling í hendur þar sem þeir fræðast t.d. um hvert þeir geta leitað ef þeir eru í vandræðum. Mikið aðhald er líka í eftirliti for- eldra sem nefnt er foreldrarölt. Að sögn lögreglumannanna eflir það samkennd með foreldrum og þeir sjá hverfið sitt í nýju ljósi. Eigum við að bregðast við? Hinn almenni borgari á ekki að hafa afskipti af börnum sem brjóta útivist- arreglur, nema þeim sé hætta búin. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.