Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 44
MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Fundað fram á nótt
Helstu forystumenn ríkisstjórn-
arinnar auk seðlabankastjóra áttu í
gærkvöldi fundi með lykilmönnum
úr bankageiranum og fulltrúum
stjórnarandstöðunnar á Alþingi.
Fundirnir fóru fram í Stjórn-
arráðinu og í Seðlabankanum og
lauk um miðnætti. » Forsíða
Tóbak gegn lyfseðli
Samþykkt var ályktun á aðalfundi
Læknafélags Íslands í gær um þjóð-
arátak gegn tóbaksnotkun. Í henni
er stungið upp á því að eftir tíu ár
verði tóbak einungis afgreitt gegn
lyfseðli í apóteki. Er sagt að hér á
landi sé faraldur sem rekja megi til
reykinga og dragi hundruð manna
til dauða á hverju ári. » 4
Bókasafn til sölu
Bókasafn Böðvars Kvaran hefur
verið auglýst til sölu. Að sögn Einars
B. Kvaran, sonar Böðvars, gera af-
komendur Böðvars sér vonir um að
hægt verði að selja safnið sem eina
heild. Spurður af hverju verið sé að
selja safnið segir Einar þetta skyn-
samlegasta kostinn í stöðunni.
„Enginn einn afkomandi hefur tök á
því að taka allt safnið að sér og þá
fannst okkur hreinlegast að selja
þetta,“ segir Einar. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Samkeppni góð,
stundum!
Forystugreinar: Þungt hljóð
Unglingar og vímuefni
Ljósvakinn: Mamma mia!
UMRÆÐAN»
Þakkarávarp!
Babú, það brennur í kauphöllunum
Geta eða getuleysi í skipulagsmálum
Eiga læknar að fara í verkfall?
Rólegur fasteignamarkaður
Að sporna við innbrotum
Fræsöfnun að hausti
Loftslagsmál á vitrænum grunni
FASTEIGNIR»
Heitast 10 °C | Kaldast 4 °C
N og NA 3-10 m/s.
Skýjað og dálítil rign-
ing eða súld n- og a-
lands, léttir víða til
annars staðar. » 10
Ásgeir Ingvarsson
tekur fyrir leikinn
Warhammer Online
sem hann segir
nörda um allan heim
hafa beðið eftir. » 41
TÖLVULEIKIR»
Stríðshamar
er mættur
TÓNLIST»
Bjork, Brain Police og
Esja á Amsterdam. » 38
Coen-bræður eru á
heimavelli í nýjustu
mynd sinni, Burn
After Reading, að
mati Sæbjörns
Valdimarssonar. » 37
KVIKMYNDIR»
Komnir á
heimaslóðir
FÓLK»
Clooney vill kærustuna
sína aftur. » 37
FÓLK»
Flugan flaug suðandi um
borg og bý. » 36
Menning
VEÐUR»
1. Alvarlega slasaður eftir bílslys
2. Þrjú fundust látin í Danmörku
3. Sjúkdómur veldur blindu í 3 daga
4. Stóryrði og hrakspár Jóhanns …
Stoppleikhópurinn
Bólu-
Hjálmar
Eftir Atla Vigfússon
Reykjahverfi | „Það er mikill munur
að geta sviðið með kósangasi og
mér finnst alltaf gaman að svíða á
haustin. Áður voru notuð kol í
smiðju og físibelgur til þess að
blása í eldinn. Þetta var mikið verk
enda var þá sviðið miklu meira
magn en í dag.“ Þetta segir Guðný
J. Buch á Einarsstöðum í Reykja-
hverfi sem er byrjuð í haustmatn-
um og var að svíða hausa og lappir
í vikunni.
Hún segist hafa vanist því frá
barnæsku að nýta sem best allt
það sem kemur af kindunum en nú
séu breyttir tímar og eftir að hún
varð ein í heimili hafi hún ekki eins
mikil not fyrir allt það sem til fell-
ur.
Áður fyrr var margt í heimili á
Einarsstöðum og búið stórt en nú
býr Guðný með nokkrar kindur og
er dugleg að nýta það sem til fell-
ur. Hún segir að sviðalappir séu
góður matur sem var oft á borðum
fyrr á árum á heimilinu. Reikna
þurfti með 4–5 löppum á mann í
hverja máltíð. Sviðalappir voru
borðaðar heitar með kartöflum og
rófum en síðan kaldar ef eitthvað
varð afgangs. Þá voru þær súrs-
aðar og borðaðar með graut og
einnig var gerð úr þeim svokölluð
sviðasulta sem mörgum þykir góð.
Það var brytjað í sviðasultuna en á
Einarsstöðum var einnig gerður
sviðaostur úr löppum og hausum
en þá var skorið af beinunum og
allt hakkað saman og sett í bakka
með svolitlu soði og síðan skorið í
bita og súrsað. Sviðalappirnar voru
einnig súrsaðar heilar en þá var
leggurinn tekinn en ekki hin bein-
in.
Magálar af geldám og hrútum
Guðný segist auðvitað ekki nota
mikið sjálf af sviðalöppum í dag en
hún segist hafa ánægju af því að
gefa vinum sínum í matinn því
margt fólk sækist eftir þessum mat
sem fæst óvíða í stórmörkuðum.
Frá flestum sláturhúsunum má
ekki taka lappir heim vegna sjúk-
dómavarna og líklega er Fjalla-
lamb á Kópaskeri eina sláturhúsið
sem sendir sviðafætur á markað.
Hausana sem hún svíður nýtir
hún sjálf að mestu og geymir til
vetrarins, m.a. til þess að hafa með
sér á þorrablót sveitarinnar. Og nú
er hún að undirbúa reykhúsið en
hún reykir bóga, læri og magála,
auk þess sem hún brytjar hálsæðar
og þindar í sperðla. Magálana vill
hún hafa af geldám og hrútum því
þá eru slögin nægilega feit svo að
magálarnir verða matarmeiri.
„Auðvitað er ég oft að brasa í
þessu ein en það er ljómandi gott
þegar einhver kemur eins og vin-
kona mín á Húsavík, hún Anna Val-
geirsdóttir, sem er öllu vön, en hún
aðstoðar mig stundum við að svíða
og hefur bara gaman af því.“ Þetta
segir Guðný J. Buch á Ein-
arsstöðum og henni finnst lömbin
vera væn í haust enda sumarið
mjög veðragott.
Reikna þarf með 4–5
sviðalöppum á mann
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Björg í bú Guðný á Einarsstöðum (t.h.) að svíða ásamt Önnu Valgeirsdóttur.
„Mikill munur
að geta sviðið
með kósangasi“
Í HNOTSKURN
» Allraheilagramessa heitirlíka öðru nafni, þ.e. sviða-
messa, og var þá almennur
siður að minnsta kosti á Norð-
ur- og Vesturlandi að hafa
svið til miðdegismatar og þótti
myndarlegra að skammta vel.
Jafnan voru þau soðin daginn
áður og skömmtuð köld.
» Sviðalappir má borðaheitar með kartöflum og
rófum. Líka er hægt að súrsa
þær og borða með graut.
Svona rétt til þess að gleðja land-
ann hækkuðu olíufélögin eldsneyt-
isverð umtalsvert í síðustu viku. Al-
gengt verð á bensínlítranum er
169,70 krónur og 186,60 krónur
lítrinn af dísil.
Fyrir þá sem hugsa um aurinn er
um að gera að skipta við Orkuna en
þar er ódýrasta eldsneytið að finna,
eftir því sem blaðamaður kemst
næst. Kostar lítrinn af bensíni 166
krónur í Grafarvogi, Hafnarfirði,
Akureyri og Selfossi en heldur
meira á öðrum stöðum hjá félaginu.
Lítrinn af dísilolíu er á 183 krón-
ur á sömu stöðum hjá Orkunni. Fyr-
ir þá sem vilja fylgjast með hvar
hagstæðast er að kaupa eldsneyti á
hverjum tíma er bent á vefsíðuna
www.gsmbensin.is. guna@mbl.is
Auratal
HJARTAVERND stóð í gær fyrir
hlaupi í Kópavogi í tilefni af al-
þjóðlega hjartadeginum. Hlauparar
gátu valið um að hlaupa 3, 5 eða 10
kílómetra.
Þátttaka í almenningshlaupum
hefur aukist undanfarin ár og Ís-
lendingar unnið glæsileg afrek á
hlaupabrautinni. Í gær hlupu 76 Ís-
lendingar í Berlínarmaraþoninu og
Jóhann Karlsson sló Íslandsmet í
flokki karla 60 ára og eldri.
Þá fjölgar sífellt í hópi of-
urhlaupara, en í ár hafa ellefu
gengið í Félag íslenskra 100-
kílómetrahlaupara. Félagið er fjög-
urra ára, en félagsmenn eru nú 26.
Einn þeirra, Gunnlaugur Júl-
íusson, hljóp um helgina 246 kíló-
metra viðstöðulaust í Spartathlon-
hlaupinu í Grikklandi, þar sem
hlaupið er milli Aþenu og Spörtu.
Hann hafnaði í 74. sæti af 154 sem
luku hlaupinu. | 9
Morgunblaðið/Golli
Hlaupið á
alþjóðlegum
hjartadegi