Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 9. S E P T E M B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 266. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er Leikhúsin í landinu >> 37 MENNING BLÁEYGÐI HÖFÐ- INGINN ER ALLUR DAGLEGTLÍF Bergþóra Njála í Bangkok í bítið ÍÞRÓTTIR Heimir Guðjónsson, þjálfari Ís- landsmeistara FH í knattspyrnu, segir að ekkert lið sé í betra formi. FH tryggði sér meistaratitilinn á dramatískan hátt í lokaumferð Landsbankadeildar karla. Það skiptir máli að toppa á réttum tíma Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu þarf að fara í tvo umspils- leiki í lok október þar sem leikið er um sæti á EM. Líklegir andstæð- ingar þar eru Tékkar, Írar eða Skotar. Leikið við Tékka, Íra eða Skota? Nokkrir reyndir knattspyrnumenn leggja skóna á hilluna að loknu Ís- landsmótinu í ár. Pétur Hafliði Marteinsson er meðal þeirra sem reikna með því að þetta sé sitt síð- asta keppnistímabil. Reynsluboltar leggja skóna á hilluna  Landsvirkjun er að undirbúa fjórar virkjanir í Þjórsá og Tungnaá. Þrjár rennslisvirkjanir eru í byggð og ein virkjun á hálend- inu. Sagt er frá þessum virkjunar- kostum í öðrum hluta yfirferðar um helstu virkjunarkosti landsins, í máli og myndum. Landsvirkjun hyggst hefja aftur byggingu Búðarhálsvirkjunar. » 12 Fjórar virkjanir í Þjórsá og Tungnaá undirbúnar  Þjófur braust nýlega inn í sjoppu í þýsku borginni Kamen og stal síg- arettum og áfengi fyrir 4.300 evr- ur, um 60.000 krónur. Nokkrum dögum síðar fann starfsfólkið um- slag með 400 evrum og miða. „Af- sakið, er að bæta fyrir laugardags- kvöldið!“ kjon@mbl.is Þjófur með skerta sómatilfinningu  Varaforsetaefni repúblikana, Sarah Palin, talaði þvert gegn stefnu Johns McCains er hún ræddi við kjósanda í Philadelphiu. Sagði hún að senda yrði bandaríska her- menn inn í Pakistan ef annað dygði ekki til að stöðva talíbana í að laum- ast inn í Afganistan. McCain, sem segir rangt að ræða opinskátt um slíkar hugmyndir, varði Palin í gær og sagði þau sam- mála um að hagsmunir Bandaríkj- anna yrðu ávallt í fyrirrúmi. „Ég held ekki að Bandaríkjamenn álíti almennt að um ákveðna stefnu- yfirlýsingu hafi verið að ræða hjá Palin ríkisstjóra“. » 18 Palin ósammála John McCain um Pakistan? SJÁLFSTÆÐ skoðun fer fram í Landsbankanum annars vegar og Straumi fjárfestingarbanka hins vegar um hvort bankarnir standi sterkar saman en hvor í sínu lagi. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er að vænta tilkynn- ingar um niðurstöðuna í þessari viku. Formlegar viðræður eru ekki hafnar. Meðal annars þarf að leita álits stórra lánveitenda bankanna á samrunanum og fá grænt ljós hjá þeim. Þá kom fram í fréttum Stöðv- ar 2 í gærkvöldi að niðurstöðu láns- hæfismatsfyrirtækja sé að vænta á næstu dögum. Miklu máli skiptir hver lánshæfiseinkunn sameinaðs félags verður, til dæmis þegar sótt er um lánafyrirgreiðslu í seðla- bönkum gegn veði í bankabréfum. Samruni Landsbankans og Straums yrði til að styrkja eigin- fjárgrunn, sem skiptir miklu máli nú í lausafjárkreppunni. Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson eru stórir hluthafar í báðum bönkunum. Nýlega tilkynntu Glitnir og Byr sparisjóður um samrunaviðræður. Þá er Kaupþing að taka SPRON og Sparisjóð Mýrasýslu yfir og VBS og Saga Capital eru einnig að ræða samruna. bjorgvin@mbl.is Sameining í pípunum Eftir Björgvin Guðmundsson og Silju Björk Huldudóttur VIÐRÆÐUR bankastjórnar Seðlabankans við æðstu yfirmenn viðskiptabankanna þriggja í gær snerust um hvort Seðlabankinn ætti að setja eigið fé inn í bank- ana, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. Vildi Seðlabankinn þannig styrkja eiginfjárgrunn þeirra á meðan þeir sigla í gegn- um fjármálakreppuna. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins var ekki tekið sérlega vel í þessa hugmynd. Íslenska banka vanti ekki tilfinnanlega eig- ið fé heldur greiðara aðgengi að lausafé. Er þá helst mælst til þess að Seðlabankinn veiti bönkunum aðgang að erlendum gjaldeyri. Er í því samhengi bent á aðgerðir annarra seðlabanka, sem veiti bönkum lánafyrirgreiðslu í er- lendri mynt. Hugmyndir um slíkt hafa ekki gengið hér á landi og verið slegnar út af borðinu í Seðlabankanum samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Telja sér- fræðingar að lítið flæði af gjald- eyri á markaðnum eigi sinn þátt í að krónan hefur veikst. Það vanti aðgang að gjaldeyri til að smyrja gangverk fjármálakerfisins. Í síðustu viku var tilkynnt um að Seðlabanki Íslands væri ekki aðili að samningi bandaríska seðlabankans og seðlabanka Dan- merkur, Svíþjóðar og Noregs um aðgengi í dollurum. Í gær mátti heyra að margir óttuðust um af- drif krónunnar í dag og næstu daga ef engar jákvæðar fréttir berast. Er jafnvel talað um að það muni hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir fjölmarga einstaklinga og fyrirtæki ef krónan lækkar enn meira. Vilja efla bankana Fundir um aðgerðir í efnahagsmálum stóðu fram á nótt í Seðlabankanum Morgunblaðið/Golli Farnir Davíð Oddsson ekur á brott frá Seðlabankanum með þeim Geir H. Haarde og Árna M. Mathiesen eftir stíf fundahöld í gærkvöldi. MEÐAL þeirra sem mættu á fundinn í Seðlabankanum í gærkvöldi voru Lárus Welding, bankastjóri Glitnis, Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórn- arformaður bankans, og Gestur Jónsson lögmaður. Einnig mættu for- ystumenn stjórnarandstöðunnar, þ. á m. Guðni Ágústsson, formaður Fram- sóknarflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG. Fyrr um kvöldið hafði forsætisráðherra fundað með Kjartani Gunnarssyni sem situr í stjórn Landsbankans. Fundahöld stóðu yfir í allan gærdag og komu m.a. bankastjórar Kaupþings á fund í forsætisráðuneytið. Morgunblaðið/Golli Mættir Lárus Welding, forstjóri Glitnis, og Þorsteinn Már Baldvinsson voru meðal þeirra sem voru boðaðir á fund í Seðlabankanum í gærkvöldi. Hersing boðuð í bankann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.