Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhann A. Kristjánsson LOKAUMFERÐ Íslandsmeistara- mótsins í rallakstri var ekin á laug- ardaginn á Reykjanesi og réðust þar úrslitin í Íslandsmeistaramótinu en nokkrir keppendur áttu möguleika á titlinum. Baráttan um titilinn hefur verið mjög jöfn og spennandi í sum- ar. Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson á Mitsubishi Lan- cer Evo 7 stóðu best að vígi fyrir lokaumferðina en þeir höfðu 3 1⁄2 stiga forskota á Pétur S. Pétursson og Heimi S. Jónsson á Mitsubishi Lancer Evo 6. Pétur og Heimir höfðu allt að vinna og engu að tapa svo að þeir stóðu bíl sinn flatan allar sérleiðir rallsins og tókst með því að sigra í rallinu en það dugði þeim ekki til að ná titlinum. Til að svo hefði mátt verða þurfti einhver ann- ar keppandi einnig að verða á undan Sigurði Braga og Ísak. En Sigurður Bragi og Ísak óku af miklu öryggi, tóku engar óþarfa áhættur og lögðu megináherslu á að ljúka keppninni. Þeir náðu öðru sætinu á eftir Pétri og Heimi og tryggðu sér með því tit- ilinn með 1 1⁄2 stigs mun. Óku langhraðast „Okkur tókst það sem við ætluð- um að gera,“ sagði Pétur Pétursson í lok keppninnar. „En það var leitt að Jón Bjarni og Borgar skyldu hafa dottið út því okkur vantaði einhvern til að vera á milli okkar og Sigurðar Braga og Ísaks, til að við næðum Ís- landsmeistaratitlinum. Og Jón Bjarni og Borgar voru líklegastir til að geta gert það. Við náðum því 2. sæti í Íslandsmeistarakeppninni og það er bara mjög fínt á fyrsta ári í Grúppu N. Við erum bara í skýj- unum. Við vissum af fullt af pollum og vatni á leiðunum í dag svo við út- bjuggum snorkel á bílinn. Tókum loftið innan úr bíl og ókum fulla ferð yfir alla polla. Við tókum 20 sek. af Sigurði Braga og Ísak á fyrstu leið. Víð drápum reyndar á bílnum við fyrsta rásmarkið og töpuðum þar einhverjum 10 sekúndum. Þá kom grimmdin upp í okkur og við tókum samt 20 sek af þeim þannig að það var mjög gott. Við vorum einnig búnir að taka tíma af Jóni Bjarna og Borgari á miðju Djúpavatni áður en þeir duttu út þannig að við vorum í góðum málum. Í seinni ferðinni tók- um við 16 sekúndur af Sigurði Braga og Ísak þannig að við vorum öruggir með fyrsta sætið.“ Stórsigur fyrir okkur Sigurður Bragi og Ísak Guðjóns- son voru mjög sáttir við 2. sætið í keppninni. „Þetta var stórsigur fyrir okkur,“ sagði Sigurður Bragi. „Okk- ur var nákvæmlega sama hvar við lentum, bara að við myndum ekki tapa meira en þremur og hálfu stigi til Péturs og Heimis. Við töpuðum tveimur stigum til þeirra í dag þann- ig að Íslandsmeistaratitillinn er í höfn hjá okkur sem er náttúrulega það sem allt snýst um. Rallið í dag var ágætt en mér leist ekkert á það fyrirfram vegna þess að þessar leiðir eru nánast þær einu sem Pétur og Heimir hafa unnið okkur á. Okkar bíll hentar mjög illa fyrir Djúpavatn- ið. Í annan stað reynir þetta mikið á líkamann og í þriðja lagi var mikið af pollum sem er alltaf ákveðin áhætta. Þetta er svolítil rússnesk rúlletta. Við ákváðum strax að gefa eftir, taka enga sénsa og höfðum þetta í hendi okkar allan tímann.Að ná titl- inum er mjög ánægjulegt fyrir mig vegna þess að aðstæður mínar eru þannig núna að ég þarf að taka mér alla vega tveggja ára frí. Það er því mjög gaman að enda þetta svona. Þetta er búið að vera skemmtilegt sumar og mjög krefjandi. Menn eru sammála því að aldrei hafi jafn margir, jafn góðir bílar og jafnir ökumenn barist um Íslandsmeist- aratitilinn. Og að standa uppi sem Íslandsmeistari eftir þannig keppn- issumar er alveg frábært. Það verð- ur huggun harmi gegn þegar maður þarf að hætta að þetta skyldi hafa endað svona,“ sagði Sigurður Bragi. Jeppa- og einsdrifsflokkar Hilmar B. Þráinsson og Kristinn V. Sveinsson á Jeep Grand Chero- kee sigruðu í jeppaflokki haustralls- ins en í einsdrifsflokki sigruðu Ólaf- ur Ingi Ólafsson og Sigurður Ragnar Guðmundsson á Toyota Co- rolla. Það eru hins vegar Guðmund- ur S. Sigurðsson og Ingimar Lofts- son á Mitsubishi Pajero Dakar sem hampa Íslandsmeistartitlinum í jeppaflokki og í 1600 og 2000 flokki eru Ólafur og Sigurður Íslands- meistarar. Sigurður Bragi og Ísak Íslandsmeistarar í ralli Allt lagt í sölurnar Pétur S. Pétursson og Heimir S. Jónsson lögðu allt í söl- urnar til að freista þess að ná Íslandsmeistaratitlinum en frábær akstur þeirra dugði þó ekki til þar sem engum öðrum keppanda tókst að verða á undan Sigurð Braga og Ísak. Með öryggið í fyrirrúmi Sigurður Bragi og Ísak lögðu ofuráherslu á örugg- an akstur og að klára rallið, en eins og sjá má hér óku þeir þó greitt um Djúpavatnsleið. Þvers og kruss Ólafur Ingi Ólafsson og Sigurður Ragnar Guðmundsson, Íslandsmeistararnir í einsdrifsflokkum, missa Toyota Corolla-bíl sinn þversum á Djúpavatni. Jeppi á fjalli Guðmundur S. Sigurðsson og Ingimar Loftsson á Mitsubishi Pajero Dakar, en þeir urðu Íslandsmeistarar í jeppaflokki Ljósmynd/JAK Sigursælir Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guð- jónsson Íslandsmeistararnir í ralli 2008. MINNINGAR Tengdamæður eru oft meðal mestu örlagavalda í lífi hvers og eins, ekki síst hjá okkur strákunum. Ég þekki reyndar ekki annað en góð áhrif tengdamæðra, en að eiga Stínu fyrir tengdamömmu var mikil lukka. Að fá ókunnan skólastrák úr fjar- lægri sveit óvænt inn á gafl hefur vafalaust talsvert aukið álagið á hús- móðurina, sem þó var ærið fyrir. En Stína tók „innrásinni“ af sinni al- kunnu þolinmæði, þannig að allt gekk vel og ævilangar tengdir mynd- uðust, með tilheyrandi vináttu- og trúnaðarböndum. Stína ólst upp við kröpp kjör og líf hennar var á ýmsan hátt óvenju erf- itt. Hún hlaut hlutskipti sjómanns- konunnar og það er ekki alltaf öf- undsvert, eins og hún fékk svo sannarlega að vita af. En með ótrú- legri þrautseigju tókst henni, með Styrmi, að byggja upp fallegt heimili í Langholtinu. Svo þegar hann kom alfarinn í land áttu þau mörg góð ár saman og það þrátt fyrir veikindi beggja þegar leið á. Fyrir mig var Stína alltaf til stað- Kristín Margrét Sigurðardóttir ✝ Kristín MargrétSigurðardóttir fæddist á Sjávar- bakka í Arnarnes- hreppi 23. nóvem- ber 1929. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Hlíð á Akur- eyri aðfaranótt 5. september síðastlið- ins og fór útför hennar fram frá Höfðakapellu á Akureyri 12. sept- ember. ar, hvort sem það var á mestu gleðistundun- um, þegar sorgin var dýpst eða á öðrum tímum. Hún gerði allt það sem hún framast gat fyrir aðra, og örugglega stundum talsvert meira en það. Sjálfsagt er ég einn af þeim sem ætluðust til of mikils af henni, e.t.v. af því að hún gaf færi á því. Það segir e.t.v. mest um Stínu hversu fá- gætlega vel hún tók á móti Torfhildi þegar hún kom til skjalanna. Vegna einstakrar hlýju og vináttu varð heimili þeirra Styrmis einn af okkar helstu viðkomustöðum á ferðum okkar þegar við bjuggum annars staðar. Börnunum okkar leið alltaf einstaklega vel hjá ömmu og afa í Langholtinu og fyrir það erum við ei- líflega þakklát. Nú eru kaffisoparnir, sögurnar, ættfræðin, gistingarnar og faðmlög- in í Langholtinu liðin tíð. Það eru stærri tímamót en virðast kann í fljótu bragði í lífi okkar sem vorum þar svo mikið. Ég á a.m.k. erfitt með að átta mig á að þannig sé komið. En ekki má sköpum renna, Stína var farin að heilsu og þrotin að kröftum og átti því hvíldina svo sannarlega skilið. Við Torfhildur og börnin þökkum Stínu hennar miklu gæsku og greiðasemi alla tíð í okkar garð. Megi æðruleysi hennar, ræktarsemi og trúnaðartraust vera öðrum gott fordæmi. Við vottum öllum aðstand- endum okkar innilegustu samúð. Guðmundur Sigvaldason. Elsku besta amma mín. Þú hefur nú kvatt þennan jarðneska heim og fengið hvíldina þína sem þú áttir svo fyllilega skilið. Þín er sárt saknað um leið og ég fyllist gleði yfir því að nú sértu loksins komin á stað- inn þar sem þú átt að geta fundið eig- inmann þinn á ný. Það er rosalega erfitt að lýsa þér með orðum, orð sem eiga við þig og eru nógu sterk yfir þig eru einfaldlega ekki til. Þú varst kjarnakona í orðsins fyllstu merk- ingu, kona sem barðist í gegnum gríðarlega erfitt líf og þú barst ávallt höfuðið hátt þrátt fyrir alla erfiðleik- ana. Þú tókst mig upp á arma þína er ég var lítill drengur og ólst mig upp ásamt móður minni, betra uppeldi getur enginn maður hugsað sér. Á Skarðsbrautinni var sko margt brallað og mér er einstaklega minn- isstætt hvað „Brummi“ átti stóran þátt í lífi okkar. Lítill gulur bíll sem ég sat á og ýtti mér áfram, ekki veru- lega flókið leiktæki en það svínvirk- aði. Þú skapaðir heilan heim fyrir mig með hugmyndum þínum, síma- stóllinn var bensínstöðin, eldhúsið var sjoppan og svo mætti lengi telja. Tímunum saman brunaði ég um íbúðina og alltaf tókst þú uppátækj- um mínum með stóískri ró. Þú og þínar snilldarhugmyndir sköpuðu margar fallegar stundir hjá okkur. Þegar ég hugsa til baka minnist ég þess einnig að eina dimma vetrar- stund leiddist mér alveg óhóflega. Guðrún Jóna Jónsdóttir ✝ Guðrún JónaJónsdóttir fædd- ist á Öndverðarnesi 13. febrúar 1925. Hún lést á Dvalar- heimilinu Höfða 5. september síðastlið- inn og var jarð- sungin frá Akra- neskirkju 15. september. Ég leitaði að sjálf- sögðu til þín með það í huga að þú myndir finna verðugt verkefni fyrir mig; það hafðirðu svo sannarlega. Þú stakkst upp á því að ég myndi mála hvíta Lamborghini-bílinn sem ég átti. Bleikt naglalakk sem var að verða ónýtt var notuð sem málning og þarna sat ég við hliðina á þér við kringlótta sófa- borðið í heilar tvær vikur upp á hvert einasta kveld og málaði eins og enginn væri morgun- dagurinn. Það heyrðist ekki múkk í mér í heilar tvær vikur, þvílík snilld- arhugmynd hjá þér! Þú varst gríðarlega hörð í horn að taka og ég man þegar ég átti við vörtuvandamál á hendinni að stríða. Það var búið að prófa ýmislegt, fryst- ingar og alls kyns smyrsli en ekkert virkaði. Á endanum gafst þú upp, settist niður með mér og gafst mér tvo úrslitakosti. Annaðhvort myndir þú klippa móðurvörtuna af með skærum eða ég myndi bíta hana af. Ég finn enn fyrir hræðslunni við að bíta í vörtuna, en ég vildi það frekar en að láta klippa hana af. Ég gerði sem lagt var fyrir mig og beit vört- una af og enn þann dag í dag er ég al- gerlega laus við vörtur. Það sem ég á þér að þakka er endalaust og ég kem aldrei til með að geta borgað þér það til baka að fullu. Eitt skaltu samt muna elsku besta amma mín, ég elska þig af öllu hjarta. Ég veit að þú finnur það þarna uppi og ég veit einnig að þú munt passa mig það sem eftir lifir ævi minni. Með það í huga er ég al- gerlega óhræddur við að takast á við lífið, þú verður mér ávallt í hjarta og kemur alltaf til með að vaka yfir mér. Ég treysti á það. Ragnar Mar Sigrúnarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.