Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nú er upplagt að skreppa til Prag og dekra við sig í aðbúnaði í þessari einstaklega fögru borg. Bjóðum frábært sértilboð á Hotel Corinthia Towers sem er glæsilegt fimm stjörnu hótel. Bjóðum einnig frábær sértilboð á þriggja nátta helgarferð 2. október. Haustið í Prag er einstakt og frábært að heimsækja borgina. Gríptu tækifærið og skelltu þér til Prag og njóttu góðs aðbúnaðar í ferðinni. Ath. aðeins fá herbergi í boði á þessum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Prag Frábær helgarferð eða 5 nátta lúxusferð! Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. frá kr. 49.990 2. eða 5. október Verð kr. 49.990 ***** - 5 nátta lúxusferð Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morg- unverði í 5 nætur á Hotel Corinthia Towers ***** með morgunmat. Sértilboð 5.-10. okt. Verð kr. 49.990 - 3 nátta helgarferð Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morg- unverði í 3 nætur á Hotel Ilf *** með morgunmat. Sértilboð 2.-5. okt. Aukalega m.v. gistingu á Hotel Pyramida **** kr. 5.000. Aukalega m.v. gistingu á Holiday Inn Congress **** kr. 10.000. FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is BJÖRN Bjarnason dómsmála- ráðherra segir, í skriflegu svari til Morgunblaðsins, að markmið starfs- fólks ráðuneytisins sé að haga sam- bandi við stofnanir ráðuneytisins á þann veg að ekki sé ástæða til að kvarta undan sleifarlagi eða athafna- leysi. Hann ræður af máli Jóhanns R. Benediktssonar, fráfarandi lög- reglustjóra á Suðurnesjum, að hann sætti sig almennt illa við þá sem hafa yfir honum lögbundið afskiptavald. Björn segir um lausn á fjárhagsvanda lögreglustjóraembættisins að hann geri skiptingu ráðuneytisins á milli þriggja ráðuneyta að skilyrði fyrir til- lögum um auknar fjárveitingar. Jóhann R. Benediktsson gagnrýnir dómsmálaráðuneytið og ráðherra harðlega, meðal annars í viðtali við Morgunblaðið í gær. Hann ræðir um alvarlegan samskiptavanda við ráðu- neytið og segir að barátta sín við það sem hann telur ómálefnalega máls- meðferð ráðherra og ráðuneytis hafa dregið mátt úr lögreglunni. Dóms- málaráðherra tilkynnti Jóhanni fyrr í mánuðinum að ákveðið hefði verið að auglýsa stöðu hans lausa til umsókn- ar en skipað er í embættið til fimm ára í senn. Björn Bjarnason kannast ekki við þessa lýsingu Jóhanns á samskiptum hans við ráðuneytið. Hann segir með- al annars um þetta í skriflegu svari til Morgunblaðsins. „Allir, sem við mig hafa samband eða ráðuneytið, fá skjót viðbrögð. Að sjálfsögðu eru ekki allar tillögur samþykktar en mark- mið okkar í ráðuneytinu er að haga sambandi við stofnanir ráðuneytisins á þann veg, að ekki sé ástæða til að kvarta undan sleifarlagi eða athafna- leysi. Ráðuneytið er vel mannað, metnaðarfullu starfsfólki, og hið sama er að segja um embætti rík- islögreglustjóra, en það virðist Jó- hanni sérstakur þyrnir í augum. Af máli hans má ráða, að hann sætti sig því miður almennt illa við þá, sem hafa yfir honum eitthvert lögbundið afskiptavald. Ég hef ávallt svarað Jóhanni hafi hann sent mér orðsendingar og ávallt tekið því vel, hafi hann óskað eftir fundi með mér. Hann var til dæmis meðal fyrstu gesta á heimili mínu, eftir að ég kom af sjúkrahúsi í apríl 2007 og ræddum við þá lengi um per- sónulega hagi hans og framtíð emb- ættisins. Hafi barátta Jóhanns við mig dregið úr krafti hans við að stjórna embætti sínu, get ég ekki annað en harmað, að hann hafi valið sér það hlutskipti. – Varla er unnt að kenna mér um það?“ Óvenjulegar kveðjur Jóhann fer í viðtalinu þungum orð- um um það sem hann nefnir tómlæti ríkislögreglustjóra og segir að hann hafi unnið gegn lögreglustjóranum á Suðurnesjum og hamast í sér. Har- aldur Johannessen ríkislögreglustjóri birti stutta yfirlýsingu af þessu tilefni í gær en vildi ekki svara gagnrýninni að öðru leyti. „Óvenjulegt er að lögregluforingi kveðji samstarfsmenn sína til margra ára með stóryrðum og hrakspám eða líki lögreglustarfi við sandkassaleik,“ segir í yfirlýsingu ríkislögreglustjóra. „Skipulagsbreytingar hafa reynt á hæfni og getu yfirmanna og hafa þeir sýnt festu og áræði til að ná settum markmiðum. Um þetta hefur verið samstaða meðal allra lögreglustjóra. Einn úr hópnum kýs nú að fara aðra leið. Það er hans val,“ segir ríkislög- reglustjóri og lætur þess getið, um leið og hann óskar Jóhanni velfarn- aðar á nýjum vettvangi, að hann telji að kveðja hans sé lögreglustjóra ekki samboðin. Jóhann segir frá því í Morgun- blaðinu að hann hafi í byrjun ágúst fengið bréf frá ráðuneytinu þar sem hann var, án skýringa, sviptur um- boði til að sitja í stjórnarnefnd Landamærastofnunar Evrópu, FRONTEX. Björn segir í svari sínu þegar hann er spurður um þetta að ákvarðanir um setu manna í nefndum séu iðulega teknar á þann veg, að þeim sé tilkynnt það bréflega. „Ég hef ekki kynnst því áður, að það sé talið ámælisvert, að senda mönnum bréf með tilkynningu um það efni.“ Björn segist hafa ákveðið að flytja þetta verkefni inn í ráðuneytið og nú sitji lögfræðingur þar í stjórnar- nefndinni. „Og hef ég fengið skýrslu frá honum en það er nýmæli fyrir mig,“ bætir Björn við. Í aðsendri grein í Fréttablaðinu um helgina nefnir Björn að breyt- ingar hafi orðið á launakjörum lög- reglustjórans á Suðurnesjum eftir að sýslumannsembættið á Keflavík- urflugvelli var lagt niður vorið 2008. Björn segir í svari til Morgunblaðsins að laun Jóhanns hafi lækkað við þessa breytingu og Jóhann mælst til þess við ráðuneytið að það beitti sér gagnvart kjararáði í hans þágu. „Ráðuneytið hefur sent erindi þess efnis til kjararáðs, ef ég veit rétt. Nið- urstaðan er óviss og ég tel, að af hálfu ráðuneytisins sé best að eyða þessari óvissu í eitt skipti fyrir öll og auglýsa embættið til að ráðningarkjör lög- reglustjórans séu skýr og augljós,“ segir hann. Stjórnsýsluábyrgð skýrð Það verður kynnt í síðasta lagi á morgun hvernig forystu embættisins verður háttað næstu þrjá mánuði en auglýst verður eftir nýjum lög- reglustjóra og skipað í embættið frá 1. janúar næstkomandi. Spurður að því hvort tillögum frá- farandi lögreglustjóra um fækkun starfsfólks verði hrint í framkvæmd eða hvernig séð verði til þess að end- ar nái saman segir dómsmálaráð- herra í svari í tölvupósti að ekki sé unnt að taka á fjárhagsvanda emb- ættisins til frambúðar án þess að stjórnsýsluábyrgðin sé skýr. Sam- hliða þeim uppskiptum á embættinu milli þriggja ráðuneyta sem hann hef- ur lagt áherslu á þurfi að fara ofan í fjárhagsvandann og taka á honum. „Ég hef sett það sem skilyrði fyrir til- lögum frá mér um auknar fjárveit- ingar, að þessi leið sé farin,“ segir Björn Bjarnason. Uppskipting er skilyrði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sameining Jóhann R. Benediktsson lögreglustjóri, Björn Bjarnason dóms- málaráðherra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri kynntu samein- aða lögreglu á Suðurnesjum við athöfn í lögreglustöðinni í Keflavík í byrjun árs 2007. Jafnframt staðfesti ráðherra skipurit lögreglunnar. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ræður af ummælum Jóhanns R. Benediktssonar um ráðuneytið og ríkislögreglustjóra að hann sætti sig almennt illa við þá sem hafa yfir honum lögbundið afskiptavald Í HNOTSKURN »Lögreglan á Suðurnesjumvarð til 2007 með samein- ingu lögreglunnar í Keflavík og lögreglunnar á Keflavíkur- flugvelli. »Jóhann R. Benediktsson,sýslumaður á Keflavíkur- flugvelli, varð lögreglustjóri sameiginlegs liðs. »Er dómsmálaráðherra til-kynnti Jóhanni að emb- ættið yrði auglýst nú, ákvað hann að sækja ekki um og ósk- aði eftir að láta af störfum. Lögreglustjórafélag Íslands lýsir yfir eindregnum og óskoruðum stuðningi við dómsmálaráðherra og starfsmenn dómsmálaráðu- neytis, segir í yfirlýsingu sem stjórn félagsins sendi frá sér í gær. Í stjórn Lögreglustjórafélags Íslands eru Kjartan Þorkelsson sýslumaður og lögreglustjóri á Hvolsvelli, en hann er formaður félagsins, Ólafur K. Ólafsson sýslumaður og lögreglustjóri í Stykkishólmi, varaformaður, Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður og lögreglustjóri á Sel- fossi, ritari, Sigríður B. Guðjóns- dóttir vararíkislögreglustjóri, gjaldkeri, og Lárus Bjarnason, sýslumaður og lögreglustjóri á Seyðisfirði en hann er með- stjórnandi. „Björn Bjarnason hefur eflt og styrkt lögregluna og rétt- arvörslukerfið í embættistíð sinni og átt gott og náið sam- starf við lögreglustjóra landsins. Sama gildir um starfsmenn ráðuneytisins, sem hafa af ósér- hlífni lagt sig fram um að að- stoða stofnanirnar í smáu sem stóru. Á sama hátt hefur emb- ætti ríkislögreglustjóra verið boðið og búið þegar einstök lög- reglustjóraembætti hafa þurft á aðstoð að halda í hvaða formi sem er. Lögreglustjórafélagið harmar því þær illskeyttu og persónulegu árásir sem ráðherra og einstakir starfsmenn lög- reglukerfisins hafa þurft að sæta og kallar þess í stað á málefnalegar umræður um starf- semi lögreglunnar og skipulag hennar,“ segir í yfirlýsingu Lög- reglustjórafélags Íslands. Lögreglustjórar styðja dómsmálaráðherra LÆKNAR hvetja til þjóðarátaks til að draga úr tóbaksnotkun. Í ályktun aðalfundar þeirra er stungið upp á því að eftir tíu ár verði tóbak ein- ungis afgreitt gegn lyfseðli í apóteki. Aðalfundur Læknafélags Íslands vekur í ályktun athygli á því að hér á landi geisar faraldur sem rekja má til reykinga og dregur hundruð manna til dauða á ári hverju. Fund- urinn hvetur til þjóðarátaks til að draga úr tóbaksnotkun á 15 árum. Fundurinn leggur til að efnt verði til sérstaks tóbaksvarnaþings þar sem samhæfðar verði aðgerðir gegn faraldrinum og er stjórn Lækna- félags Íslands falið að boða til fyrsta þingsins. Settar eru fram ýmsar til- lögur til að ræða á þinginu. Vakin er athygli á því að fækkun bráðra hjartaþræðinga eftir laga- setningu sem takmarkar óbeinar reykingar sýni að verulegs ávinn- ings megi vænta af aðgerðum til að draga úr tóbaksnotkun. Til að draga úr fjölda þeirra sem hefja reykingar er lagt til að hækka aldur þeirra sem kaupa mega eða selja tóbak í 20 ár. Sala á tóbaki í matvörubúðum verði stöðvuð strax, síðar í sjoppum og á bensínstöðvum. Innan fimm ára verði tóbaki ein- göngu dreift í sérstökum tóbaks- verslunum. Að tíu árum liðnum verði svo tóbak einungis afgreitt gegn lyf- seðli í apóteki og skilyrði þess að læknar skrifi út slíkan lyfseðil verði að sjúklingur hafi sjúkdómsgrein- inguna tóbaksfíkn og að ákveðin meðferðarúrræði hafi verið reynd og brugðist. Lagt er til að útsöluverð á tóbaki verði hækkað, til dæmis um 10% á ári, og forvarnafræðsla í skólum efld. Jafnframt eru lagðar fram hug- myndir um það hvernig megi að- stoða þá sem ánetjast hafa tóbaki og geta ekki hætt, meðal annars með bættum meðferðarúrræðum og inn- lögnum á sjúkrastofnanir. Tóbak verði aðeins afgreitt gegn lyfseðli Læknafélag Íslands hvetur til þjóðarátaks gegn tóbaksnotkun Morgunblaðið/Ómar Fíkn Læknar vilja aðstöðu til tób- aksmeðferðar á sjúkrastofnunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.