Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 19
Misstu andlitið Þær trúðu ekki eigin augum, stúlkurnar sem horfðu á leik kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn Frökkum í Smáralind á laugardag.
Golli Blog.is
Anna K. Kristjánsdóttir |
28. september 2008
Daufleg Spaugstofa
...slá á puttana á þeim,
hlýða þeir og hegða sér
betur næst. Þar má
nefna atriði eins og þeg-
ar þeir móðguðu bisk-
upinn fyrir páska og eins
þegar þeir gerðu góðlát-
legt grín að blörruðum borgarstjóra og
létu móðgunargirnd hans svínbeygja sig
í kjölfarið.
Nú byrjaði haustið dauflega eftir að
fjöldi skemmtilegra atburða fór framhjá
Spaugstofunni meðan hún var í sum-
arleyfi. Af einhverjum ástæðum óttast
ég að ef hún verður ekki beittari en nú
á laugardagskvöldið, muni áhorfið
hrynja í haust og fleiri áhorfendur snúa
sér að Stöð 2. Það þýðir ekkert að
hlusta á einhverja siðavanda bloggara
og misheppnaða stjórnmálamenn segja
sér fyrir verkum.
Ef Spaugstofan vill endurheimta fyrri
stöðu í samfélaginu, verður hún að
ganga út á ystu mörk þess sem al-
menningur sættir sig við og helst að fá
kirkjuna, hirðfífl bloggsins og mis-
heppnaða pólitíkusa alla upp á móti
sér. Ef Spaugstofan treystir sér ekki til
þess, er best að leggja hana niður og
yngja hressilega upp í stétt grínleikara.
Meira: velstyran.blog.is
Guðmundur Ragnar Björnsson |
28. september 2008
Það þurfa fleiri björg-
unarhring en USA
Hérlendis virðast Væla
EU Veinólínó (Samfó) og
Vandráður Ráðalausi
(Sjallinn) vera þess al-
gerlega ómegnug að
taka til hendinni. Í USA
hefur þó duglausasti forseti allra tíma
tekið til hendinni. Mannskapurinn virð-
ist algerlega fastur í þessari fjandans
evru-umræðu sem að ekki mun leiða til
neins til skamms tíma. Svarið við nú-
verandi stöðu er augljóst og hefur
blasað við í langan tíma. Á meðan bar-
ist var við verðbólguna síðast á ár-
unum 1985-1990 var gengið fest og
eins og staðan er í dag virðist sú lausn
vera það besta...
Meira: gudmbjo.blog.is
Marta B. Helgadóttir |
27. september 2008
Heimili til sýnis
eða vistar
Að mínu áliti eru heimili
heimilisleg þegar það
sést á þeim að þar búi
fólk.
Á námsárunum í Sví-
þjóð kom ég á mynd-
arheimili þar sem húsráðendur höfðu
þá lífsreglu að „Bättre lite skit i hörnan
än ett rent helvete“. Þessi yfirsögn
heimilisins sem var útskorin í fallegu
letri á trjábút í forstofunni getur út-
lagst eitthvað á þessa leið: smá óhrein-
indi í hornunum er betra heimili en
tandurhreint fangelsi.
Meira: martasmarta.blog.is
NÚ ERU blikur á
lofti í fjármálaheimi,
sem sumir líkja við
aðdraganda krepp-
unnar miklu. Enn er
vart hægt að tala um
kreppu, heldur miklu
fremur ótta við
kreppu – sem einnig
getur haft af-
drifaríkar afleiðingar.
Samræmdar aðgerðir
stjórnvalda víða um
heim gætu komið í veg fyrir slíkt,
ólíkt því sem var fyrir rúmum
mannsaldri. En hvernig er best að
ráða bót á vandanum og hvaða af-
leiðingar af aðgerðum þeirra, eða
jafnvel aðgerðaleysi, eru ásætt-
anlegar?
Aðgerðasjóðir
ekki nýir af nálinni
Viðbragðaáætlun Bandaríkja-
stjórnar er að nokkru hægt að
bera saman við aðgerðirnar í Sví-
þjóð árið 1993. Svíar áttu við fjár-
málakreppu að stríða og settu á
stofn digran sjóð, fjármagnaðan af
skattfé, til þess að bjarga fjár-
málageiranum. Aðgerðirnar voru
umdeildar en að lokum skiluðu
þær sér að margra mati. Skatt-
borgararnir fengu tvo þriðju fjár-
ins aftur og komu sér undan fjár-
málakreppu sem hefði getað valdið
miklum búsifjum. Lykillinn að ár-
angri þessarar aðgerðar var sá
rammi sem settur var um starf-
semi sjóðsins og hve vel tókst að
halda stjórnmálamönnum frá hon-
um.
Hvort sem rekja má láns-
fjárvandann nú til gjaldfellingar
gjaldmiðla af hálfu seðlabanka
heimsins, misbresta í
reglugerðarverkinu
og slæmrar efnahags-
stjórnar eða einfald-
lega ofurgræðgi fjár-
málastofnana og
þeirra stjórnenda, þá
er víst að til þess að
stýra okkur út úr
vandanum þarf færa
stjórnendur með góð
ráð í höndum. Stjórn-
málamönnum er ætl-
að að setja rammann
(hin góðu ráð) en láta
eftir sérfræðingum að framkvæma
þau. Þannig leystu menn málin í
Svíþjóð árið 1993 og reyndist um
margt vel.
Bjargráð Bandaríkjastjórnar
Á Bandaríkjaþingi liggur fyrir
bjargráðaáætlun upp á um 700
milljarða Bandaríkjadala. Þessum
fjármunum er m.a. ætlað að létta
á fjármálastofnunum sem sitja
uppi með slæm húsnæðislán. Lær-
dómsríkt er að rekja sögu s.k.
lánapakka, sem eftir kúnstarinnar
nýju reglum áttu að vera nánast
án allrar áhættu. Þeir voru mikil
mistök. Þessir lánapakkar hafa
margir ekki reynst innihaldsríkari
en nýju fötin keisarans; lán voru
veitt til fólks sem ekki var borg-
unarmenn fyrir lánunum og veðin
byggð á verðbólu á fasteignamark-
aði.
Bankar og fjármálastofnanir,
sem alla jafna byggja starf sitt á
tilhlýðilegri íhaldssemi, misstu sig
í ofgnótt af lánsfé og blindri
hagnaðarvon. Hvað sem líður
gráðugum stjórnendum á Wall
Street virtust flestir reiðubúnir til
þess að taka þátt í gleðinni, hér
heima sem annars staðar.
Bandaríkjaþing hefur nú hafnað
tillögum Bush-stjórnarinnar, alla
vega að óbreyttu. Stjórnin bendir
á, að án skjótra viðbragða geti
verr farið en ef ekkert er að gert.
Menn eru ekki sammála um for-
sendur eða leiðir. Einnig er fléttað
inn í þetta ofurlaun stjórnenda í
fjármálaheiminum, sem mörgum
svíður, en eins og fyrri daginn er
mörgum í mun að finna sökudólga.
Frá vinstri er bent á, að aðgerð-
ir af þessu tagi eigi að rétta hag
þeirra sem verst standa og óttast
er að forstjórarnir muni sleppa of
vel. Frá hægri kemur gagnrýni af
öðru tagi. Þar á bæ velta menn
fyrir sér hvort fyrirtæki eigi ekki
að fara á hausinn, það sé affæra-
sælast til lengri tíma; slíkt ryðji
úr vegi illa reknum fyrirtækjum,
að ekki sé nú talað um slæma
stjórnendur. Með því móti muni
markaðurinn rétta sjálfur úr sér,
þó svo að það gæti tekið tímann
sinn og falið í sér sárauka. Inn í
þetta fléttast og hagfræðiumræða
sem tekst á við að hve miklu leyti
markaðir geti leitað jafnvægis af
sjálfum sér en sumir efast um
slíkt.
Hugmyndafræðileg átök
Stjórnvöld eru ekki hrifin af
sársauka, það er ekki gott þegar
kemur að kjördegi. Sumir benda á
að betra sé að fá yfir sig storminn
í stuttan tíma, láta veikbyggðu
húsin fjúka en byggja á þeim sem
standa af sér óveðrið. Hljómar
ekki illa. Hins vegar eru margir
hræddir við áhrifin sem þetta gæti
haft á þær fjölskyldur sem standa
illa og vilja fremur að stormurinn
verði mildari en vari þeim mun
lengur. Hættan við slíkt er að hús-
in muni jú standa en halda áfram
að soga til sín fjármagn og valda
efnahagslegum þrengingum um
langt skeið.
Einnig er spurt, að hve miklu
leyti einstaka fjármálastofnunum
leyfist að hafa á sinni hendi stóran
hluta húsnæðislána? Því stærri
hlutdeild, þeim mun alvarlegri af-
leiðingar ef stór aðili fer yfir um –
ekki ósvipað og nú hefur gerst í
tilfellum fjármálastofnana, sem
Bandaríkjastjórn hefur tekið yfir.
Þær aðgerðir, auk yfirtöku banka
og núverandi tillagna um hinn
digra bjargráðasjóð, nema upp-
hæð sem ekki er undir þúsund
milljörðum dala.
Sumir kalla þetta pilsfaldakapí-
talisma en fyrir venjulega borgara
skiptir mestu að ekki fari verr og
varðar lítið um nafngiftir. Eigi
markaðshagkerfið áfram að færa
björg í bú er okkur sama þó svo
að því sé rétt hjálparhönd öðru
hvoru. Markaðshagkerfið er í raun
mannanna smíð, sem hvílir á
mörgum stoðum. Hið opinbera
gegnir þar hlutverki, sem ekki
verður horft framhjá, og skyldu
allir hafa það í huga, hverju sem
menn annars bugta fyrir í stjórn-
málum.
Eftir Ólaf Als »Eru bjargráð Banda-
ríkjastjórnar birt-
ingarmynd pilsfalda-
kapítalisma eða eðlileg
og sjálfsögð viðbrögð?
Er hugmyndafræðin að
þvælast fyrir stjórn-
völdum?
Ólafur Als
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Tekist á við afleiðingar
óstjórnar í fjármálum
Hannes Friðriksson |
28. september 2008
Hlutafélag til hvers?
Í blogginu hér á undan
undraðist ég skyndilegan
áhuga bæjarstjórans á
að auka hlut Reykjanes-
bæjar í Hitaveitu Suð-
urnesja og furðaði mig á
þeim vinnubrögðum sem
menn virðast sýna til að ná þeim mark-
miðum að eignast hlutinn í samvinnu
við Geysi Green Energy.
Tilkynnt hefur verið um óstofnað
hlutafélag Reykjanesbæjar og GGE,
sem nú þegar hafi reynt að gera tilboð
í hluti sem enn ekki virðast vera á
lausu. Auðvitað ætti ég að fagna þeirri
viðhorfsbreytingu sem orðið hefur hjá
bæjarstjóranum hvað það varðar að
skynsamlegt væri fyrir bæjarfélagið að
eiga þar stærri hlut en nú er og geri
það í raun. Og fagna því þó meir að
staða...
Meira: smali.blog.is