Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 2

Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008 Miðvikudagur 29. október kl. 11.45 Fjármál sveitarfélaga Kristján Möller, samgönguráðherra, og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, ræða fjármál sveitarfélaganna á opnum fundi í Valhöll. Sveitarstjórnar- og skipulagsnefnd Sjálfstæðisflokksins stendur að fundinum og fundarstjóri er Sólveig Pétursdóttir, formaður nefndarinnar. Nánari upplýsingar um fundinn og flokkstarfið má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700. Tölum saman Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is MÓÐIR Ellu Dísar Laurens andaði léttar þegar hún í byrjun mánaðarins sendi lokagreiðslu vegna meðferðar dóttur sinnar í Bandaríkjunum. Þá átti hún ekki von á að bankakreppan á Íslandi ætti eft- ir að setja stórt strik í reikninginn. Mál Ellu Dísar, sem er tæplega þriggja ára, vakti talsverða athygli í fjölmiðlum í síðasta mán- uði en hún berst við óþekktan sjúkdóm. Þvert á ráðleggingar íslenskra lækna leitaði móðir henn- ar, Ragna Erlendsdóttir, meðferðar í Bandaríkj- unum fyrir dóttur sína. Efnt var til söfnunar til að styrkja þær mæðgur og í byrjun mánaðarins gekk Ragna frá lokagreiðslu til spítalans. „1. október keypti ég 50 þúsund dollara ávísun hjá Glitni sem bankinn tók að sér að senda fyrir mig út,“ segir Ragna. „Greiðslan átti að vera rétt rúmlega fimm milljónir íslenskar en vegna falls íslensku krón- unnar dagana á undan hafði hún hækkað upp í fimm og hálfa milljón.“ Þremur vikum síðar fékk Ragna símhringingu frá spítalanum í Bandaríkjunum þar sem gengið var eftir greiðslunni. Þegar farið var að grennsl- ast fyrir um málið virtist ávísunin týnd í kerfinu. „Síðastliðinn föstudag millifærði bankinn aftur til mín þessar fimm og hálfa milljón en í dag kosta 50 þúsund dollarar sex milljónir króna. Ef ekkert verður gert hefur Glitnir, sem ég treysti fyrir að koma þessari greiðslu áleiðis, beinlínis af mér hálfa milljón króna.“ Ragna er ekki ánægð með þessa afgreiðslu mála. „Ég keypti einfaldlega dollara á þessum tíma og ef bankinn getur ekki gert það sem hann ætlaði á hann að skipta þessum dollurum yfir í ís- lenskar krónur sem eru sex milljónir í dag því ég þarf að standa skil á þessum 50 þúsund dollurum. Það var nógu erfitt að horfa á eftir hálfri milljón þarna í byrjun mánaðarins þótt ég þyrfti ekki að sjá á eftir hálfri milljón í viðbót.“ Þegar Ragna gekk frá greiðslunni voru ekki komin á gjaldeyrishöft og bankaviðskipti milli landa gengu enn sinn vanagang. Í dag veit hún hins vegar ekki hvernig og hvort muni takast að senda peningana út. Lokagreiðsla vegna Ellu Dísar týnd Morgunblaðið/Frikki Veikindi Barátta Ellu Dísar hefur reynt á. Í HNOTSKURN » Ekki er vitað hvað hrjá-ir Ellu Dís en talið er að um sjálfsofnæmi gæti verið að ræða. Sjúkdómurinn lýsir sér m.a. í erfiðleikum við öndun. » Kostnaður við læknis-meðferð Ellu Dísar í Bandaríkjunum nam um 10,5 milljónum króna. » 13. október sl. voruhaldnir tónleikar til styrktar Ellu Dís þar sem fjöldi landsþekktra tónlistar- manna kom fram. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is GEIR H. Haarde forsætisráðherra segir að beiðni um lán frá Norður- löndunum sé á vinnslustigi og í rétt- um farvegi. Mikill stuðningur sé við Ísland á þingi Norðurlandaráðs og hópur embættismanna hafi verið skipaður til þess að fara yfir málið. Forsætisráðherra segir að sl. föstudag hafi forsvarsmenn Seðla- banka Íslands skrifað starfsbræðr- um sínum við seðlabanka annarra Norðurlanda bréf og óskað eftir til- tekinni fyrirgreiðslu. Spurður um upphæð segir Geir að ekki sé viðeig- andi að setja pressu á hlutaðeigandi með því að gefa upp umbeðna fjár- hæð. Ríkisstjórnirnar geti ekki skuldbundið bankana heldur taki þeir sínar ákvarðanir sjálfir. Þing Norðurlandaráðs hófst í Helsinki í Finnlandi í gær og þar funduðu forsætisráðherrar land- anna um þessi mál. Vinnuhópur skipaður Geir segir að ákveðið hafi verið að setja á laggirnar hóp embættis- manna, einn frá hverju landi, til þess að vinna hratt að því að skýra málið og þar með væri það komið í ákveðinn farveg. Það væri mjög mikilvægt og mikill áhugi væri á því að sýna Íslandi samstöðu og stuðn- ing. „Við höfum tekið það skýrt fram að við erum ekki að biðja um gjafir eða styrki heldur lán sem við hyggj- umst endurgreiða,“ segir Geir. Hann bendir á að stuðningur Norð- urlandanna byggist á því að Ísland hafi stigið mikilvægt skref í sam- bandi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þjóðirnar hafi lagt áherslu á að Ís- land yrði í samstarfi við sjóðinn og embættismannahópurinn hagaði störfum sínum í samræmi við þá samvinnu. Norrænu ráðherrarnir funda aft- ur í dag. Auk þess flytur Geir stefnu- ræðu á fundi Norðurlandaráðs, en Ísland tekur þar við formennsku. Beiðninni vel tekið  Samstaða og stuðningur við Ísland á þingi Norðurlandaráðs  Aðkoma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins talin nauðsynlegt skref Í HNOTSKURN » Á blaðamannafundi íHelsinki í gær benti Geir H. Haarde forsætisráðherra á möguleika þess að sameina lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við aðstoð Norðurlandanna og hugsanlega við lán frá Rúss- um. ÞETTA bréf hrekur algerlega að Ís- lendingar hafi verið búnir að hafna því að standa við skuldbindingar sem sannanlega hvíldu á þeim,“ seg- ir Össur Skarphéðinsson, starfandi viðskiptaráðherra, um bréf sem við- skiptaráðuneytið sendi breska fjár- málaráðuneytinu 5. október sl. Fjármálaráðherra Breta, Alistair Darling, hélt fram í fjölmiðlum fyrr í mánuðinum að Íslendingar hygðust ekki standa við skuldbindingar sínar gagnvart innistæðueigendum Ice- save-reikninga Landsbankans í Bretlandi. Sagði hann þetta hafa komið fram í samtali við Árna Mathiesen fjármálaráðherra. Útskrift af samtali þeirra var birt í Kastljósi Sjónvarpsins í síðustu viku en í því vísar Árni nokkrum sinnum í fyrrgreint bréf. Í bréfinu, sem Morgunblaðið hefur nú undir höndum, segir: „Íslensk stjórnvöld munu, ef á þarf að halda, styðja Tryggingasjóð innistæðueigenda til að afla nægra fjármuna þannig að sjóðurinn geti staðið við lágmarks- bætur fari svo að Landsbanki og útibú hans í Bretlandi falli.“ Össur segir hárfínan meðalveg hafa verið þræddan í bréfinu: „Ís- lendingar eru þarna að sýna vilja sinn til að standa við þær skuldbind- ingar sem sannanlega eiga að hvíla á þeim án þess að loka fyrir þá leið að ef ágreiningur risi, eins og síðar hefur orðið, yrði úr honum skorið með eðlilegum aðferðum.“ Sögðust styðja Trygginga- sjóðinn GEIR H. Haarde forsætisráðherra hélt fjöl- mennan blaðamannafund í Helsinki í gær þar sem hann greindi frá stöðu efnahagsmála á Ís- landi. Fundurinn var í beinni útsendingu sjón- varps í Finnlandi. Að honum loknum var sam- eiginlegur fundur forsætisráðherra Norður- landanna og baltnesku ríkjanna, þar sem farið var yfir hina alþjóðlegu fjármálakreppu og áhrif hennar auk annarra mála. Ljósmynd/Johannes Jansson Geir með blaðamannafund í Helsinki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.