Morgunblaðið - 28.10.2008, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
HRAÐI verðbólgunnar færist í
aukana og mælist hún 15,9% nú í
október. Verðlag hefur almennt
hækkað um 2,2% frá því í seinasta
mánuði og hefur ekki mælst meiri
verðbólga hér á landi frá því vorið
1990.
Hækkanir á vörum og þjónustu eru
mjög mismunandi að því er fram
kemur í yfirliti Hagstofunnar, sem
birti í gær vísitölu neysluverðs fyrir
október. Þyngst vegur nú að verð á
mat og drykkjarvöru hækkaði frá því
í september um 4,3%. en áhrif þess-
ara liða á vísitöluna eru 0,55%. Allt í
allt hækkaði verð á innlendum vörum
öðrum en grænmeti og búvörum um
4% á milli mánaða. Grænmetisverðið
hækkaði um tæp 9% og búvörur um
1,7%. Hagfræðingar ASÍ benda á að á
síðustu 12 mánuðum hefur verð á
mat- og drykkjarvörum hækkað um
24,5%.
Meðal hækkunarliða sem skera sig
úr er umtalsverð hækkun á hita sem
hefur hækkað um 6,6% á einum mán-
uði. Má minna á að Orkuveita Reykja-
víkur hækkaði gjaldskrá heita vatns-
ins um 9,6% um seinustu mánaðamót
og vegur það eflaust þungt. ASÍ sá
ástæðu til þess í gær að minna á að
sambandið hafi ítrekað bent á það á
síðustu mánuðum að við núverandi að-
stæður sé nauðsynlegt að opinberir
aðilar og fyrirtæki á þeirra vegum
gangi á undan með góðu fordæmi og
hækki ekki gjaldskrár sínar. „Slíkt er
þó enn raunin. Mikil óvissa í geng-
ismálum um þessar mundir gerir alla
verðlagningu á innfluttum vörum erf-
iða og staðfestir enn nauðsyn þess að
koma gjaldeyrisviðskiptum í eðlilegt
horf. Það er brýnna nú en nokkru
sinni að allir, bæði fyrirtæki og op-
inberir aðilar, leggist á árar og haldi
aftur af verðhækkunum á vörum sín-
um og þjónustu til þess að koma í veg
fyrir frekari hækkun verðlags á næstu
mánuðum,“ segir í umfjöllun ASÍ.
Í hálffimmfréttum Kaupþings segir
að gera megi ráð fyrir áframhaldandi
mikilli hækkun vísitölunnar næstu
mánuði. Áhrif gengisveikingar krón-
unnar eigi að töluverðu leyti eftir að
koma fram.
Mæling Hagstofu leiðir einnig í ljós
að verð á fötum og skóm hækkaði milli
mánaða um 4,9%. Mikil hækkun hefur
átt sér stað frá seinasta mánuði á hús-
gögnum, heimilistækjum, heimilis-
búnaði o.fl. eða sem nemur 7,1%. Sér-
staka athygli vekur að verð á vara-
hlutum og hjólbörðum hækkaði um
19,6%.
Verðbólgan mælist tæp 16%
Verð á mat og drykkjarvöru hér á landi hækkaði frá því í september um 4,3% Matvæli og drykkir
hafa hækkað um 24,5% á einu ári Útgjöld vegna heita vatnsins eru nú 6,6% hærri en fyrir mánuði
!" # $
!"#
$ %&
'%&'
%%
(
# %&'() *+ , -
, ." /* 0 1,
)*
0 23/(45) 6)) &7( #- -8
*+
8 23/"( 6')7)9)/+3(5 :&9: 8 ,8
,%# !
1 .'5) &9()( 1 0
! -.&
!
/0
&0*
$ *7/() 7'(()( -
1(
2 $3
45
4 &
'%&'
2*'9 !'))(/5) 0 8;
+$&46+/
%7/&
4/
&< /'='7+' )9 *+' # ;
># ,
>0 ,0
8*
8
8
8
8 *
> #,
>0 ;8
8 *
? ,
8 >1 -
8
> 8
8
9 **
>0 08
8
> -
Í HNOTSKURN
»Verð á flugfargjöldum tilútlanda hefur hækkað
mikið að undanförnu eða um
18,7% frá í september og verð
á sjónvörpum, dvd-spilurum,
tölvum o.fl. hækkaði um
10,6%. Aftur á móti hefur
verð á bensíni og dísilolíu
lækkað um 3,4% á milli mán-
aða.
»Þar sem nýskráningarbíla hafa nánast stöðvast
vegna gjaldeyriskreppunnar
ákvað Hagstofan að taka ekki
með í verðmælingu nú breyt-
ingar á listaverði bíla, en það
hefði hækkað bifreiðalið vísi-
tölunnar um 4,1%.
»Kostnaður vegna eiginhúsnæðis lækkaði frá í
september um 1,3%. Þar af
voru áhrif af lækkun mark-
aðsverðs mínus 0,24% en áhrif
af hækkun raunvaxta voru
0,03%.
»ASÍ spáir aukinni verð-bólgu á næstu mánuðum
og yfir 20% í upphafi árs 2009
en hún gangi svo hratt niður
og verði komin í 2,5% í lok
næsta árs.
VERÐTRYGGÐAR skuldir hækka stórlega í verðbólgunni um þessar
mundir og greiðslubyrðin þyngist jafnt og þétt. Ef tekið er dæmi af 18
milljóna kr. verðtryggðu húsnæðisláni til 40 ára með 4,9% vöxtum, kemur
á daginn að hækkun vísitölunnar nú, sem jafngildir 15,9% verðbólgu, hefur
í för með sér að mánaðarleg afborgun sem var 86.741 kr., verður rúm 100
þúsund eftir eitt ár. Eftirstöðvarnar með verðbótum verða hins vegar
komnar í rúmlega 20,9 milljónir 1. nóvember á næsta ári. Höfuðstóllinn
hækkar um tæpar þrjár milljónir á einu ári. Vísitalan hækkaði milli mán-
aða um 2,16% og höfuðstóll lánsins um rúm 200 þúsund á einum mánuði.
Höfuðstóllinn upp um 200 þús.
LÍKLEGT er að töluverður hluti verðhækkananna að undanförnu hafi ver-
ið kominn fram áður en fjármálakreppan skall á landinu í fyrri hluta októ-
ber skv. upplýsingum Láru G. Jónasdóttur, sérfræðings á Hagstofunni.
Verðmæling Hagstofunnar fór fram 13.-17. okt. Hún bendir á að margir
hafi auglýst útsölur eftir að mælingunni lauk og ómögulegt sé að segja fyr-
ir um hver verðbólgutalan verður í næsta mánuði. Í Hálffimmfréttum
Kaupþings er bent á að veiking krónunnar skilar sér ekki jafn greiðlega út
í verðlag nú og í vor. Í einhverjum tilvikum bíði kaupmenn með að leysa út
vörur í ljósi þess að aðgengi að gjaldeyri er dýrt og takmarkað.
Hvað er framundan?
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ENDURFJÁRMÖGNUN bank-
anna og Seðlabanka Íslands og sá
halli sem verður á ríkissjóði á
næsta ári mun kosta í kringum
700 milljarða króna. Láninu frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)
er hins vegar ekki ætlað að koma
til móts við þennan kostnað heldur
einungis að styrkja gjaldeyris-
varaforðann.
Þetta kom fram í máli Friðriks
Más Baldurssonar, sem hefur haft
umsjón með viðræðum við IMF, á
opnum fundi efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis í gær en
hann kom fyrir nefndina ásamt
Ásmundi Stefánssyni, sem vinnur
að því að samræma viðbrögð
stjórnvalda. Það var stjórnarand-
staðan í þingnefndinni sem fór
fram á þennan fund, sem opinn
var bæði almenningi og fjölmiðl-
um.
Friðrik sagði samkomulagið
sem náðist við sjóðinn byggjast á
áætlun íslenskra stjórnvalda. Hún
miðaði að því að endurheimta
efnahagslegan stöðugleika en gert
er ráð fyrir allt að 10% samdrætti
í landsframleiðslu á næsta ári. Þó
er áætlað að samdrátturinn verði
skammvinnur og ætlaði Friðrik að
hagvöxtur næði sér á strik aftur
árið 2010. Hann lagði jafnframt
áherslu á að ekki stæði til að
reyna að ná jöfnuði á ríkissjóði á
næsta ári enda myndi það auka
enn á niðursveifluna.
Fólk og fyrirtæki
haldi ró sinni
Friðrik sagði ábyrgðina ekki
liggja alfarið hjá stjórnvöldum og
áréttaði mikilvægi þess að fólk og
fyrirtæki héldi ró sinni. Krónan
væri of lág og ætti eftir að styrkj-
ast til lengri tíma.
„Sérstaklega ber að benda á
það að útflytjendur mega ekki
halda að sér höndum og bíða þess
að krónan nái einhverjum botni,“
sagði Friðrik og lagði áherslu á að
fá gjaldeyristekjur til landsins.
Í máli Ásmundar Stefánssonar
kom fram að viðræður við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn voru settar
í forgang og viðræðum um Ice-
save reikninga slegið á frest á
meðan, í samráði við bresk stjórn-
völd. Sjóðurinn hefði hvorki sett
fram kröfur varðandi samninga
við Breta né um breytingar á
stjórnskipan hér á landi, enda
væri hún almennt talin í góðu lagi.
„Þannig að hann er ekki að setja
okkur þrönga stöðu sem við ráð-
um ekki við,“ sagði Ásmundur en
bætti við að Ísland þyrfti að mæta
þessari þröngu stöðu og aðspurður
sagði hann það væntanlega verða
gert bæði með niðurskurði og
skattahækkunum.
Endurskoða
allt regluverkið
„Við vorum með bankakerfi sem
var tólfföld landsframleiðsla Ís-
lendinga […]. Við erum núna að
tala um bankakerfi sem væntan-
lega verður tæplega þreföld lands-
framleiðsla,“ sagði Ásmundur og
bætti við að endurskoða þyrfti allt
regluverkið í fjármálalífinu, hér
jafnt sem annars staðar.
Margar spurningar brunnu á þingmönnum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar
IMF-peningar fara ekki í skuldir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dýrara Ávextir hafa hækkað um 10,5% á einum mánuði og verð á grænmeti
hefur rokið upp um tæp 9%. Verðbólgan hefur ekki verið meiri í 18 ár.
Hver er hraði verðbólgunnar?
Síðustu tólf mánuði hefur neyslu-
verðsvísitalan hækkað um 15,9%. Ef
litið er á verðbreytingar á undan-
förnum þremur mánuðum, þá hefur
vísitalan hækkað um 4,0% sem jafn-
gildir 16,8% verðbólgu á ári. Sé ein-
göngu horft á verðhækkanirnar frá
því í september og þær eru umreikn-
aðar til árshækkunar þá þýðir það að
verðbólgan er 29,2%.
Hvaða vörur og þjónusta hafa
hækkað mest að undanförnu?
Matur og drykkjarvörur hafa hækkað
um 4,3% og þær hækkanir eiga sinn
þátt í verðbólgunni vegna þess að
matvörur vega þungt í vísitölunni.
Ýmsar innfluttar vörur hafa hækkað
mun meira. Mestar hækkanir eru á
húsgögnum, fatnaði og tómstundum
Raftæki hækkuðu um rúm 13% og
varahlutir um 19,6%.
S&S
Icesave getur haft áhrif á IMF
slóð: www.mbl.is/mm/frettir
mbl.is | Sjónvarp
Í efnahags- og viðskiptanefnd eiga sæti fulltrúar allra þingflokka og ljóst
var á fundinum að spurningarnar eru fleiri en svörin. Þingmenn vildu m.a.
vita hvort ekki þyrfti að búa þannig um hnútana í framtíðinni að bankarnir
væru ekki ábyrgð almennings, hvort jafnvægi næðist í gjaldeyrismálum og
hvaða skilyrði IMF setti í viðræðunum.
Þá spurði Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, út í forsendur þeirrar
spár að hagvöxtur náist á strik 2010. Þótti honum ákveðin mótsögn í því að
stóla á gjaldeyri frá útflutningsgreinunum en styrkja um leið krónuna, sem
væri ekki hagstætt fyrir þau fyrirtæki.
Spurningar fleiri en svörin