Morgunblaðið - 28.10.2008, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
JÖFNUNARSJÓÐUR sveitarfé-
laga hefur lokið greiðslu framlaga,
að fjárhæð rúmlega tveggja millj-
arða, til sveitarfélaga í landinu en
þau áttu að berast þeim um mán-
aðamótin.
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra boðaði á ársfundi Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga 17. október
sl. að flýtt yrði greiðslu umræddra
framlaga Jöfnunarsjóðs og hafa
starfsmenn sjóðsins og samgöngu-
ráðuneytisins unnið að útreikningi
og greiðslu framlaganna síðustu
daga. Einnig sagði ráðherra á
fundinum að stefnt yrði að því að
greiða í nóvember 250 milljónir
króna af eftirstöðvum vegna 1.400
milljóna króna aukaframlags í
Jöfnunarsjóð. Búið að greiða 900
milljónir.
Þá er í ráðuneytinu verið að
vinna að tillögum að reglum fyrir
úthlutun 250 milljóna króna fram-
lags til sveitarfélaga vegna skerð-
ingar á aflamarki og verða þær
kynntar fljótlega. sisi@mbl.is
Greiðslum til
sveitarfélaga
var flýtt
Morgunblaðið/Golli
Efnalaugin Björg
Áratuga reynsla og þekking
- í þína þágu
.....alltaf í leiðinni
Opið: mán-fim 8:00-18:00 • fös 8:00-19:00 • laugardaga 10:00-13:00
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Eftir Láru Ómarsdóttur
lom@mbl.is
ENN gengur erfiðlega að flytja
gjaldeyri til landsins. Til að bregð-
ast við því flytur HB Grandi tekjur
sínar inn í gegnum norska banka.
Frá því bankarnir voru ríkis-
væddir hefur gengið erfiðlega að
koma erlendum gjaldeyri til lands-
ins. Seðlabankinn hefur reynt að
liðka fyrir með því að beina
greiðslum til og frá Íslandi um eigin
reikninga hjá erlendum samstarfs-
aðilum bankans. Þá hefur hann far-
ið fram á það að seðlabankar ann-
arra ríkja beini þeim tilmælum til
viðskiptabanka að greiðslum til Ís-
lands verði miðlað gegnum reikn-
inga Seðlabankans. Það hefur hins
vegar ekki skilað sér að fullu og enn
gengur mjög erfiðlega að fá
greiðslur frá Bretlandi, Þýskalandi,
Bandaríkjunum og víðar.
Til að bregðast við þessu hefur
HB Grandi tekið upp á því að fá all-
ar sínar tekjur inn á bankareikn-
inga sína í Noregi „Það gekk ekki
að fá greitt í Bretlandi þannig að
við látum okkar kúnna borga inn á
reikninga okkar í Noregi,“ segir
Eggert B. Guðmundsson, forstjóri
HB Granda. Með þessu móti hafi
tekist að fá greitt fyrir vörur fyrir-
tækisins. „Það tefur þetta aðeins að
það þarf að skipta öllum gjaldeyri
yfir í norskar krónur og senda þetta
til Íslands því ef þetta er sent sem
pund þá millilendir þetta í Bretlandi
og gæti stoppað þar,“ segir Eggert
en er ánægður með að tekjurnar
komist á leiðarenda þó í norskum
krónum sé: „Við skiptum þeim svo í
íslenskar krónur og borgum okkar
fólki laun.“
Flytja peninga til landsins í
gegnum bankareikninga í Noregi
Morgunblaðið/Þorkell
HB Bregðast við breyttum að-
stæðum á gjaldeyrismarkaði.
STANGVEIÐI
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÓÐINN Sigþórsson, formaður
Landssambands veiðifélaga, sagði á
málþingi um stöðu stangveiðinnar,
að á síðustu árum hefðu veiðileyfa-
salar verið komnir með of mörg egg í
sömu körfu. Átti hann við fjármála-
stofnanir, sem hafa á síðustu árum
setið að bestu og dýrustu veiðidög-
unum í mörgum laxveiðiám og jafn-
vel ýtt erlendum veiðimönnum út.
Fyrirsjáanlegt er að margir leigu-
takar muni eiga erfitt með að selja
veiðileyfi eða standa við skuldbind-
ingar á gjörbreyttum markaði.
Óðinn sagði efnahagsástandið
vissulega vera erfitt. Hann sagði að
Landssambandið myndi þó ekki
beita sér fyrir verðlækkunum, enda
bannaði nýlegur úrskurður Sam-
keppnisstofnunar nokkurt samráð.
„Margir þessarra samninga gilda
til 2010 eða lengur. Það er eðlilegt,
þegar upp koma erfiðleikar, að
menn ræði saman. Það er í höndum
einstakra veiðifélaga og viðsemj-
enda þeirra. En það eru vissulega
brestir á innlendum veiðileyfamark-
aði,“ sagði Óðinn.
Verð veiðileyfa nær tvöfalt
Hann sagði sambandið beina því
til leigutaka að vinna nýja markaði
erlendis. Bændur myndu hins vegar
ekki sætta sig við að auðlind þeirra
væri töluð niður, þó að ákveðinn
hópur sem hefði greitt hátt en upp-
sett verð, væri nú horfinn.
„Atvinnugreinin veitir þúsundum
tekjur í formi atvinnu og arð-
greiðslna. Ég held að það hafi aldrei
verið jafn augljóst og nú að við verð-
um að lifa af auðlindum landsins, og
laxveiðin er svo sannarlega ein af
þessum auðlindum,“ sagði Óðinn.
Bjarni Júlíusson, fyrrverandi for-
maður SVFR, hafði reiknað þróun
verðs á veiðileyfum á liðnum áratug.
Fyrir tíu árum kostaði í laxveiðiá á
Vesturlandi það sama og helgarferð
til London. Nú kostar helgarferðin
180.000 en veiðiferðin 430.000.
Framreiknað hafi verð leigu-
greiðslna til landeigenda nær tvö-
faldast á þessum tíma.
Bjarni spáir því að erlendir veiði-
menn muni ekki sækja í þeim mæli
inn á markaðinn á næstu árum, sem
sumir vona, og að algjört hrun verði
í sölu dýrra veiðileyfa.
Rangárnar: 21.328!
Lokatölur eru komnar í Rang-
ánum, eftir þetta mikla metveiði-
sumar. Samtals veiddust 21.328 lax-
ar í ánum tveimur. Í Ytri-Rangá
veiddust 14.315, en fyrri metveiði í
ánni, sumarið 2005, var 6.377 laxar.
Í Eystri-Rangá veiddust 7.013
laxar, sem er frábær veiði, þótt hún
nái ekki alveg metveiðinni sem er
7.497.
Eggin í sömu körfu
Morgunblaðið/Einar Falur
Gjöful Enn einn laxinn úr Rangánum. Martin Bell landar vænum fiski í Ármótahyl í Eystri-Rangá.
Fyrirsjáanlegir brestir á innlendum veiðileyfamarkaði
Bændur sætta sig ekki við að auðlind þeirra sé töluð niður
Í HNOTSKURN
» Landssamband veiði-félaga mun ekki beita sér
fyrir verðlækkunum á leigu-
greiðslum til bænda. Brestir
séu þó á markaðinum.
» Leigugreiðslur til bændahafa nær tvöfaldast á ára-
tug.
»Alls veiddust 21.328 laxar íRangánum tveimur í sum-
ar. Veiðimet var í þeirri ytri,
14.315 laxar.
FRJÁLSLYNDI flokkurinn ætlar
að leggja fram frumvarp á Alþingi í
dag um breytt Seðlabankalög.
„Einn maður á að vera ábyrgur og
á að svara til saka sé um það að
ræða,“ segir Jón Magnússon, þing-
flokksformaður flokksins. Það sé
skilvirkara og ódýrara. Seðlabanka-
stjóri þurfi að vita hvað hann syngur.
Bankinn sé rúinn trausti. „Seðla-
bankinn á ekki að vera hvíldarheimili
stjórnmálamanna.“ Jón telur að
frumvarpið fái brautargengi, en þó
óljóst hvenær.
Flokkurinn telur einnig að nú
þurfi að styrkja tengsl Íslands og
Noregs. „Það er alveg ljóst að við
getum ekki verið hér ein og óvarin
úti í Atlantshafi, með minnstu mynt-
einingu í heimi. Við höfum reynt
mörgum sinnum en það hefur aldrei
gengið.“ Ekki þýði lengur að bjóða
verðtryggð lán heldur verði að búa
fólki eðlileg viðskiptakjör. „Við gæt-
um á skömmum tíma fengið úr því
skorið hvort myntsamstarf með
Norðmönnum sé mögulegt. Það
samstarf þyrfti ekki að útiloka Evr-
ópusambandið.“ gag@mbl.is
Noregssam-
starf og nýr
seðlabanki
Morgunblaðið/Kristinn
Frjálslyndir Jón Magnússon fór fyr-
ir frjálslyndum á fundinum í gær.
BÆJARSTJÓRINN í Horsens í
Danmörku, Jan Trøjborg, hefur rit-
að dönsku stjórninni bréf og beðið
hana um að greiða götu Íslendinga
sem eru í vandræðum.
„Hér hafa í gegnum tíðina marg-
ir Íslendingar verið við nám og höf-
um við fagnað því. Íslenskir náms-
menn komu á minn fund og kváðust
ekki geta skipt peningum í bönk-
um. Það setur þá í vonlausa stöðu
því að þá geta þeir hvorki greitt
húsaleigu né nauðsynjar. Þess
vegna hef ég ritað stjórnvöldum og
öðrum bréf og beðið um að reynt
verði að leysa þennan vanda,“ sagði
bæjarstjórinn í viðtali við Morgun-
blaðið í gær.
Anna Guðný Andersen, gjaldkeri
Íslendingafélagsins í Horsens, segir
um 300 Íslendinga við nám í bæn-
um. „Leigufélög hafa sent Íslend-
ingum bréf og tilkynnt þeim að
greiði þeir ekki leigu innan ákveð-
ins tíma verði þeim hent út. Sum
gáfu nokkurra daga frest þrátt fyr-
ir þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Bæjarstjórinn ætlaði að biðja menn
um að sýna biðlund.“
Að sögn Önnu Guðnýjar eru ein-
hverjir Íslendingar á leið heim
vegna kreppunnar. Sjálf ætlar hún
að þrauka þótt húsaleiga og annað
hafi tvöfaldast í verði frá því í fyrra
vegna gengisfallsins.
ingibjorg@mbl.is
Danskur bæj-
arstjóri reynir
að hjálpa