Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
Vesturröst - Laugavegi 178 - S. 551 6770 - www.vesturrost.is
Rjúpnavesti
Poki á baki og framan fyrir
rjúpu, vasar fyrir skot og
aukahluti.
kr. 12.900.
Gönguskór
Góðir gönguskór, nauðsynlegir í Rjúpuna
Trezeta Gönguskór, úr leðri, fáir saumar, Goretex
sokkur, vatnsheldir, mjög sterkir og hafa reynst
vel á Íslandi síðustu 10 ár. kr. 25.900.
Legghlífar
Vatnsheldar með vír undir skó
kr. 5.500.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÁVERKAR þeirra sem urðu fyrir
árásinni í Keilufelli í mars sl. voru
ekki aðeins líkamlegir því einn þeirra
sem fyrir árásinni urðu veiktist svo á
geði vegna árásarinnar að hann þarf
nú að hafa tilsjónarmann allan sólar-
hringinn.
Þessar upplýsingar komu fram í
vitnisburði ungs Pólverja sem kom
sérstaklega frá heimalandi sínu til að
bera vitni í málinu í gær. Hann er sá
eini, af þeim fimm sem hafa flutt utan
og áttu eftir að bera vitni, sem sá sér
fært að mæta fyrir dóm hér á landi.
Í meðferð vegna geðklofa
Lýsing mannsins á atburðum var
samskonar og hjá öðru fórnarlambi
árásarinnar sem bar vitni í málinu á
fyrsta degi aðalmeðferðar og einnig
kom einnig heim og saman við þá lýs-
ingu sem fram kom í lögregluskýrsl-
um fórnarlambanna. Maðurinn lýsti
atburðum svo að hann hafi setið í
stofu ásamt fleiri íbúum og gestum
þegar um tugur vopnaðra manna
ruddist skyndilega inn í húsið og
réðst á þá sem í húsinu voru. Sjálfur
var hann sleginn margoft með
steypustyrktarjárni í handleggina
sem hann bar fyrir höfuð sér en loks
hafi hann rotast eftir að annar árás-
armaður sló hann tvívegis í höfuðið
með golfkylfu.
Aðspurður sagði maðurinn að
fyrstu tvær vikurnar eftir árásina
hefðu verið erfiðar, bæði líkamlega
og andlega. Erfiðleikar hans blikna
þó í samanburði við þær afleiðingar
sem hún virðist hafa haft fyrir mann
um tvítugt sem einnig varð fyrir
árás. Á honum voru þó ekki miklir
líkamlegir áverkar, a.m.k. ekki sjá-
anlegir en hann virðist á hinn bóginn
hafa orðið fyrir gríðarlegu andlegu
áfalli. Þessi maður mætti ekki fyrir
dóm en sá sem bar vitni í gær lýsti
því að eftir árásina hafi hann farið að
haga sér mjög furðulega, talaði mikið
við sjálfan sig og í raun algjörlega
brotnað niður. „Hann fór að tala við
anda eða drauga,“ sagði hann fyrir
dómi í gær. Hann hafi fyrst leitað til
lækna hér á landi en síðan í Póllandi
og því til staðfestingar lagði vitnið
fram vottorð frá pólskum læknum
um að maðurinn væri í meðferð hjá
geðlæknum vegna geðklofa og þyrfti
tilsjónarmann allan sólarhringinn.
Upptökur spilaðar
Eins og fyrr segir mætti aðeins
einn af þeim fimm Pólverjum sem
urðu fyrir árásinni í Keilufelli 22.
mars síðastliðinn og áttu eftir að
bera vitni fyrir dómi, þegar aðal-
meðferð málsins hélt áfram í gær.
Fjórir báru því ekki vitni fyrir dómi.
Kolbrún Sævarsdóttir, saksóknari
hjá ríkissaksóknara, brá á það ráð að
spila upptökur af lögregluskýrslum
þeirra.
Samkvæmt lögum á sönnunar-
færsla að vera milliliðalaus sem þýðir
m.a. að byggja skal dóm á þeim vitn-
isburði fyrir dómi. Lögregluskýrsla
vitnis hefur þar af leiðandi ekki eins
mikið vægi og það sem fram kemur
hjá sama vitni fyrir dómi. Með því að
láta spila upptökur af skýrslutök-
unum hjá lögreglu vill Kolbrún vænt-
anlega freista þess að slá frekari
stoðum undir sönnunargildi þeirra,
a.m.k. getur það varla skaðað mál-
stað ákæruvaldsins. Tveir verjendur
mótmæltu því að upptökurnar yrðu
spilaðar og sögðu að það myndi engu
bæta við málið.
Af upptökunum sést ágætlega
hversu alvarleg meiðsli mennirnir
hlutu og að árásin hafði fengið mjög
á þá. Tveir þeirra voru með miklar
umbúðir á báðum handleggjum
vegna meiðsla sem þeir hlutu þegar
þeir reyndu að verjast árásinni með
því að bera hendur fyrir höfuð sér.
Annar varð klökkur þegar hann lýsti
atburðarásinni. Hann sagði m.a. að
honum hefði tekist að grípa í hendur
eins árásarmannsins þegar hann
varðist höggum hans en það var til
lítils því „ þá kom annar og lamdi mig
með stálbita,“ sagði hann.
Deilur um stolna fartölvu
Nokkur fórnarlambanna sögðu að
deilur um fartölvu sem stolið var frá
ungum manni sem bjó í húsinu hefðu
verið undirrót árásarinnar. Sá sem
bar vitni í gær sagði að faðir unga
mannsins hefði borið þjófnaðinn upp
á þann sem ákærður er fyrir þyngstu
sakirnar í málinu. Daginn eftir að
þeir deildu um tölvuna ruddist rúm-
lega tugur af vopnuðum mönnum inn
í húsið. Faðirinn varð sýnu verst úti
og má í raun þakka fyrir að hafa
sloppið lifandi.
Þegar síðast var fjallað um Keilu-
fellsmálið í Morgunblaðinu 16. októ-
ber sl. var sagt að maður sem bar
vitni daginn áður hefði orðið fyrir al-
varlegustu áverkunum. Það er ekki
rétt, sá sem slasaðist mest var faðir
unga mannsins. Því hefur verið lýst
að eftir hann var sleginn í rot hefðu
tveir árásarmenn haldið honum á
milli sín og sá sem hélt um fætur
hans sparkaði af miklu afli í andlit
hans. Hann var heppinn að lifa af.
Fárveiktist eftir árásina
Ákærður Tomasz Jagiela er ákærður fyrir þyngstu sakirnar og hann situr
enn í gæsluvarðhaldi. Stefán Karl Kristjánsson hdl. er verjandi hans.
Ungur maður brotnaði algjörlega niður eftir árásina í Keilufelli Í meðferð hjá geðlæknum í Póllandi
og þarf tilsjónarmann allan sólarhringinn Upptökur með lögregluskýrslum spilaðar fyrir dómi
Í HNOTSKURN
» Kolbrún Sævarsdóttirsaksóknari óskaði eftir því
að fjórmenningarnir sem ekki
mættu í gær yrðu yfirheyrðir í
gegnum síma en Pétur Guð-
geirsson, dómsformaður, taldi
ekki forsendur til að verða við
þeirri beiðni.
» Eitt fórnarlamb kom fráPóllandi og bar vitni.
» Hann vildi ekki að meintirárásarmenn væru í salnum
meðan hann gæfi vitnisburð.
Morgunblaðið/Ómar
Blóð úr fórnarlömbum árásarinnar
í Keilufelli fundust í fatnaði fjög-
urra sem grunaðir eru um árásina.
Þeir þrír sem hafa gefið skýrslu
fyrir dómi hafa ýmist sagt að þeir
viti ekki hvernig blóðið barst í föt-
in eða haldið því fram að sönn-
unargögnin séu fölsuð.
Við aðalmeðferðina í gær gaf
rannsóknarlögreglumaður, sem er
sérfræðingur í blóðferlarann-
sóknum, skýrslu. Hjá honum kom
m.a. fram að ef blóðdropar úr fórn-
arlambi árásarinnar hefðu fundist
í fatnaði meintra árásarmanna
gæti eina skýringin verið sú að sá
sem fötin bar hefði verið á staðn-
um. Öðru máli gegndi um blóðkám,
þá væri fræðilegur möguleiki á því
að viðkomandi hefði t.d. rekist ut-
an í hinn blóðuga eða árásarmann
hans. Hvort þetta voru dropar eða
kám verður tekist á um á fimmtu-
daginn þegar aðalmeðferð lýkur.
Lögunin á blóðblettunum skiptir miklu máli
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„MÁ bjóða yður þjóðskrána?“ var
yfirskrift framsögu Einars Más Guð-
mundssonar rithöfundar á opnum
borgarafundi í Iðnó í gærkvöldi. Með
þessum orðum sínum vísaði hann til
þess að ráðamenn hygðust senda öll-
um núlifandi Íslendingum, börnum,
barnabörnum og barnabarnabarna-
börnum þeirra reikninginn fyrir
fjármálasukki auðmanna að undan-
förnu. „Stjórnvöld ábyrgjast heilt
spilavíti og niðurstaðan er ónýtt
mannorð heillar þjóðar – og við sem
vorum svo stolt,“ sagði Einar Már og
tók fram að hann kæmi til með að
sakna sjálfstæðis þjóðarinnar.
Einar Már krafðist þess að menn
öxluðu ábyrgð og sagði óásættanlegt
að þeir sem hagsmuni hefðu haft af
sukkinu væru látnir rannsaka sjálfa
sig. Kallaði hann eftir ábyrgð starfs-
manna greiningardeildanna, sem
virtust hafa haft vinnu af því að ljúga
að landsmönnum. „Eigum við nú
þegar skuldum rignir yfir okkur að
fara bara með reikningana út í tunnu
og halda síðan blaðamannafund?“
spurði Einar Már og uppskar hlátra-
sköll fundargesta.
Í hvað fara peningarnir?
Í Bandaríkjunum fer helmingur-
inn af 700 milljarða Bandaríkjadala
aðstoð ríkisvaldsins við fjármálafyr-
irtæki í það að afskrifa skuldir heim-
ilanna. Í hvað eiga peningar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins að fara? Að þessu
spurði Lilja Mósesdóttir, hagfræð-
ingur og einn frummælenda.
Lilja sagðist hafa þungar áhyggj-
ur af þeim skilyrðum sem Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn setti fyrir því
láni sem íslensk stjórnvöld hefðu
óskað eftir. Benti hún á að það skil-
yrði sjóðsins að hérlendis yrði að-
haldssöm stjórn peningamála þýddi
á mannamáli vaxtahækkun. Benti
hún á að reynslan víða í heiminum
sýndi að háir vextir dýpkuðu ef eitt-
hvað væri fjármálakreppur með til-
heyrandi fjöldagjaldþrotum fyrir-
tækja og gríðarlegu atvinnuleysi.
Björg Eva Erlendsdóttir blaða-
maður sagðist eins og margir kvíðin
yfir skuldastöðu íslensku þjóðarinn-
ar, yfirvofandi atvinnuleysi, fram-
ferði Breta, ónýtri krónu og heims-
kreppunni. „Því miður er það ekki
bara þetta sem ég er hrædd við. Ef
svo væri gæti ég tekið undir með
ráðherrum, bankamönnum og álits-
gjöfum, sem enn eftir bankahrunið
eru þeir sömu og hingað til hafa haft
vit fyrir þjóðinni. Ef ég hefði sömu
áhyggjur og valdamennirnir, ef ég
og Geir Haarde og Björgólfarnir
værum sameiginleg fórnarlömb
ófyrirséðra hamfara þá myndi ég
bara fara að róa með þeim í þessum
sama báti sem alltaf er verið að tala
um. En þetta er bara galeiða og mig
langar ekki til að róa,“ sagði Björg
Eva og tók fram að hún væri hrædd
við skipstjórana sem virtust alltaf
vera ósammála um hvaða leið væri
best að fara og hlustuðu ekki á fólk-
ið.
Í framsögu sinni gerði Vilhjálmur
Bjarnason viðskiptafræðingur fram-
lagða reikninga Glitnis um mitt síð-
asta sumar að umtalsefni og benti á
að væru þeir skoðaðir kæmi fram að
bankinn taldi sig þá eiga 8,1 milljón
evra í lausafé. „Innan við þremur
mánuðum seinna er þetta allt horf-
ið,“ sagði Vilhjálmur og benti á að
ekkert í reikningum bankans gæfi til
kynna þá erfiðu stöðu sem bankinn
hefði síðan komist í.
Mjög heitar umræður spunnust á
fundinum að framsöguræðum lokn-
um og komust færri að en vildu með
spurningar sínar. Meðal þess sem
helst brann á fundargestum var
skortur á raunverulegu lýðræði hér-
lendis, gagnrýni á seðlabankastjóra,
áhyggjur af því að fjölmiðlar væru
allt of mátt- og gagnrýnislausir,
gagnrýni á yfirvöld fyrir að fjár-
svelta heilbrigðisstofnanir, hvort
heldur ríkti góðæri eða kreppa,
krafa um að eftirlaunum alþingis-
manna verði breytt til samræmis við
þau eftirlaunakjör sem starfsfólki á
almennum vinnumarkaði standi til
boða og ótti margra þess efnis að allt
að 30% landsmanna fái ekki útborg-
uð laun um næstu mánaðamót.
Niðurstaðan ónýtt
mannorð heillar þjóðar
Morgunblaðið/Golli
Troðfullt Færri komust að en vildu á opinn borgarafund í Iðnó í gærkvöldi.