Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008 HANNA Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, úthlutaði í fyrsta sinn í gær styrkjum úr forvarna- og framfarasjóði Reykjavík- urborgar til 22 verkefna og nam heildarupphæðin um 30 millj- ónum króna. Alls barst 121 um- sókn. Meðal þeirra verkefna sem voru styrkt voru verkefni á veg- um þjónustumiðstöðvar Breið- holts þar sem ungu fólki af er- lendum uppruna verður boðin starfsþjálfun sem stuðlar að auk- inni atvinnuþátttöku, við störf sem tengjast börnum og ung- mennum, og námskeið á öllum þjónustumiðstöðvum borgarinnar sem ætlað er verðandi foreldrum um þær breytingar sem verða við fæðingu barns. Neytenda- samtökin fá styrk til þess að standa fyrir fjármála- og heim- ilisbókhaldsnámskeiði fyrir al- menning, Samtök kvenna af er- lendum uppruna fá styrk til þess að gefa út upplýsingabækling um starfsemi samtakanna á ensku, pólsku, rússnesku og taílensku, kaffihúsið Cafe Rót fær styrk en um er að ræða áfengis- og vímu- efnalaust kaffihús, auk þess sem Námsstofan ehf. fær styrk fyrir verkefnið „Heimanámsstofa“ sem ætlað er námsmönnum á öllum aldri með sérstaka áherslu á nemendur með sérþarfir og leið- sögn til foreldra. silja@mbl.is 22 styrkjum úthlutað til for- varna- og framfaraverkefna ÞINGMÖNNUM var í lok viku 43, vímuvarnarvikunnar, afhent hvatn- ing um að halda vörð um velferð barna þegar kemur að vímuefna- vörnum. Katrín Júlíusdóttir tók við áskoruninni fyrir hönd alþingis- manna en hún er einnig stjórn- armaður í Vímulausri æsku / For- eldrahúsi. Starfsmaður viku 43, Guðni R. Björnsson, hitti Katrínu í Alþingishúsinu sl. föstudag. Á skjal- inu sem Katrín tók við og er und- irritað af 20 grasrótarsamtökum, er yfirskriftin „Velferð barna - stöndum vörð um það sem virkar“. Þar er bent á að samkvæmt Barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna skuli börn eiga rétt á að búa við aðstæður sem stuðla að líkamlegum, andlegum og félagslegum þroska. Í því felist að allar ákvarð- anir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skuli byggðar á því sem sé börnum fyrir bestu. „Neysla áfengis og annarra vímuefna raskar uppvexti og ógnar velferð margra barna. Sum bíða ævarandi tjón. Það er bitur reynsla að sjá barn sitt lenda í fjötrum vímuefnaneyslu og villast á brautir glæpa og ofbeldis. Rannsóknir staðfesta að opinber stefna í forvörnum hér á landi er væn- leg til árangurs, s.s. - 20 ára aldursmark til áfengiskaupa, - bann við auglýsingum á áfengi og - bann við sölu áfengis í almennum verslunum. Þessum þáttum ber að viðhalda í þágu barna og ungmenna og efla þá sem miða að því að börn og ungmenni fái notið sín. Oft var þörf en nú er nauðsyn að slá skjaldborg um börn okkar og ung- menni. Þeirra hagsmunir eiga að sitja fyrir öðrum og veigaminni,“ segir í hvatningarskjalinu til þingmanna þjóðarinnar. Hvatning til alþingismanna í lok vímuvarnarvikunnar Katrín Júlíusdóttir tekur við hvatning- unni úr hendi Guðna R. Björnssonar. TRÚNAÐARMANNARÁÐ Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í al- mannaþjónustu, krefst ýtarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir séu ábyrgir fyrir hruni efnahags- lífsins. Þá þarf að leiða í ljós hvern- ig fjármunum þjóðarinnar hefur verið sóað. „Á liðnum árum hafa fjármála- menn og stjórnendur og eigendur fjármálafyrirtækja skuldsett sam- félagið á óábyrgan og siðlausan hátt. Því þó bankar og ýmsir al- mannasjóðir hafi verið einkavæddir sannast það nú eina ferðina enn að allt þjóðfélagið er undir þegar bankakerfið kemst í þrot,“ segir í tilkynningu. Trúnaðarmannaráð Kjalar, stétt- arfélags starfsmanna í almanna- þjónustu, gerir ennfremur þá kröfu að launanefnd sveitarfélaga gangi strax til samninga við Kjöl um kjarasamning. Vilja rannsaka hver sé ábyrg- ur fyrir hruni efnahagslífsins HÆTTA er á að birgðir af Prince Polo á Íslandi muni klárast. Er það von Ásbjarnar Ólafssonar ehf., inn- flytjanda Prince Polo á Íslandi að stjórnvöld grípi í taumana til koma í veg fyrir að Íslendingar verði að þessu „þjóðarsælgæti“ sínu. Prince Polo hefur ekki selst upp á Íslandi síðan á níunda áratugnum þegar verkföll í Póllandi lömuðu efna- hagslíf landsins. Prince Polo gæti klárast á Íslandi ÚTIFUNDUR var haldinn á Seyð- isfirði sl. laugardag undir slagorð- inu „Rjúfum þögnina“, í þeim til- gangi að krefjast meiri upplýsinga frá ráðamönnum og minna þá á að almenningur er að fylgjast með þeim. Nokkur hópur manna hittist við gömlu brúna á Seyðisfirði og héldu sumir á táknrænum skiltum þar sem augu og eyru minntu á þau skilningarvit sem bíða eftir upplýs- ingum frá ráðamönnum. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Krefjast svara frá ráðamönnumÁ MORGUN, miðvikudag, kl. 18:30- 19:30 verður haldin Maríuandakt í Kristkirkju í Landakoti í tilefni þess að 150 ár eru liðin síðan María mey birtist í Lourdes. Við þessa at- höfn verður beðið sérstaklega fyrir Íslandi vegna ástandsins sem nú ríkir hér á landi. Öllum er boðið að taka þátt í þessari athöfn. Maríuandakt verður einnig hald- in í Hafnarfirði einhverntíman á föstunni og í Maríukirkju í Breið- holti eftir hvítasunnu. Auglýst síðar hvenær þær fara fram. Maríuandakt STYRKJUM úr sjóði Vildarbarna Icelandair hefur úthlutað styrkjum í ellefta sinn, en að þessu sinni hlutu 23 börn og fjölskyldur þeirra styrk úr sjóðn- um. Sjóðurinn var stofnaður til þess að veita lang- veikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður og fjölskyldum þeirra tækifæri til að ferðast til annarra landa. Á þeim fimm árum sem liðin eru hafa 205 börn og samtals fleiri en eitt þúsund manns ferðast á vegum sjóðsins. Ferðasjóður Vildarbarna var stofnaður árið 2003 með stofnfjárframlagi Icelandair. Síðan hefur gest- um í flugvélum Icelandair staðið til boða að styrkja sjóðinn með því að skilja eftir mynt í sérstökum um- slögum í sætisvösum. Einnig geta þeir sem safna Vildarpunktum gefið punkta sína til Vildarbarna. Úthlutun úr Ferðasjóði Vildarbarna þýðir að 23 börn geta ferðast til hvaða áfangastaðar af 12 áfangastöðum Icelandair sem er og tekið fjölskyldu sína með. Allur kostnaður er greiddur: flug, gisting, bílaleigubíll, dagpeningar og aðgangseyrir að við- burðum sem barnið kýs. Vinsælasti áfangastaðurinn hingað til er Disney World-skemmtigarðurinn í Flórída. Verndari sjóðsins er Vigdís Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti Íslands, og formaður stjórnar er Sig- urður Helgason, fyrrverandi forstjóri Icelandair. Styrkur Ferðasjóður Vildarbarna styrkir 23 börn og fjölskyldur þeirra til ferðalaga. Úthlutun úr sjóði Vildarbarna Icelandair Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Bókaútgáfan Opna - Skipholti 50b - 105 Reykjavík - sími 578 9080 - www.opna.is Nýjasta bókin eftir Íslandsvininn David Attenborough er komin!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.