Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 21
Daglegt líf 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is V erulega þrengir að í fjárhag þjóð- arinnar um þessar mundir og ljóst að atvinnuleysi mun aukast á næstu misserum. En hverjir eru það sem er sagt upp? Sá hópur fólks sem býr við skerta starfsgetu, til dæmis eftir baráttu við geðsjúkdóma, er skilj- anlega uggandi um sinn hag, segir Elín Ebba Ás- mundsdóttir, iðjuþjálfi og dósent við Háskólann á Akureyri. Mikilvægt sé að stjórnvöld og forsvars- menn fyrirtækja geri sér grein fyrir verðmæt- unum sem í þessu starfsfólki felast. „Það má ekki líta á það sem sjálfsagðan hlut að jaðarhópar víki fyrst af vinnumarkaði, því þá er verið að undir- strika að þessir einstaklingar séu annars flokks og það er ekki í samræmi við stefnu trygginga- og fé- lagsmálaráðnueytisins.“ Elín Ebba bendir á að þó að margt hafi breyst í málefnum geðfatlaðra á undanförnum árum megi gera enn betur. Gott starf hafi verið unnið á vegum trygginga- og félagsmálaráðuneytisins, Reykja- víkurborgar og nú nýlega forsætisráðuneytisins. „Við höfum samt sem áður ekki nýtt þetta vinnuafl nógu vel og á tímum eins og við erum nú að ganga inn í er mikilvægt að allir sem það vilja geti lagt sitt af mörkum.“ Aukin verðmæti Hún segir Norðmenn hafa tekið vel á þessum málum. „Ég var á ráðstefnu í Noregi á dögunum, þar sem þarlend yfirvöld kynntu hvernig þeim hef- ur gengið að fylgja eftir sinni stefnumörkun í geð- heilbrigðismálum. Sú vinna hefur skilað því að sumstaðar er farið að líta á það sem aukin verð- mæti hjá starfsmanni hafi hann misst tökin á lífinu og náð stjórninni aftur.“ Elín Ebba segir að á ráðstefnunni hafi eitt sveit- arfélag kynnt rannsókn sem gekk út á að kanna hverjir það væru sem dyttu aðallega út af vinnu- markaðinum. Í ljós kom að stór hluti þess fólks sem strítt hefur við geðræna erfiðleika er menntað fólk sem var við vinnu áður en veikindin knúðu að. „Þeir fóru því að auglýsa námskeið fyrir þá sem komnir væru í bata. Námskeið þar sem til stæði að nýta reynslu og hæfileika hvers einstaklings og að þeim sem það vildu yrði fundin vinna þar sem þeir gætu nýtt lífsreynslu sína innan síns áhugasviðs.“ Lengd vinnutímans fór síðan eftir því sem hverjum og einum hentaði. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og er þessi hópur nú að verða eftirsóttur til starfa á geðdeild- um, sambýlum, endurhæfingarstöðum og starfs- þjálfunarstöðum svo dæmi séu tekin. „Þau sitja með þekkingu sem ekki er hægt að kenna á skóla- bekk og það felast verðmæti í því að hafa sigrast á erfiðleikum og að hafa náð að byggja upp stuðn- ingsnet og sjálfstraust á ný.“ Ekki að missa vonina Elín Ebba sér m.a. um þróunarvinnu fyrir Hlut- verkasetur, en þar er boðið upp á atvinnulega end- urhæfingu og vel metin störf fyrir einstaklinga sem þekkja geðræna kvilla af eigin raun. Hún seg- ir þegar hafa verið haft samband við Hlutverka- setrið í tenglum við vinnumissi í þrengingunum nú. „Við gerum að sjálfsögðu okkar besta til að koma til móts við fólk, meðal annars með því að bjóða upp á umhverfi þar sem fólk getur haldið áfram að vera virkt og þiggja frá okkur þá aðstoð sem það vill.“ Þau hjá Hlutverkasetri gera sér vissulega grein fyrir að mun erfiðara verði líka að koma fólki út á vinnumarkaðinn nú en áður. Fyrir nokkrum mánuðum hafi verið slegist um íslensku- mælandi fólk í þjónustustörf, en það sé ekki raunin lengur. „Við verðum að laga okkur að þessum breyttu aðstæðum og á svona tímum er mikilvægt að missa hvorki sjálfstraust né von. Engu að síður finnst mér full ástæða til að hvetja stjórnvöld til að gleyma ekki þessum málaflokki í öllum þrenging- unum. Við viljum jú að þessir einstaklingar, eins og aðrir sem það þrá, nái að verða fullgildir þátttak- endur í samfélaginu.“ Allir fái að njóta sín Morgunblaðið/Brynjar Gauti Dýrmæt þekking Elín Ebba Ásmundsdóttir seg- ir verðmæti felast í því fyrir atvinnurekendur að vera með starfsfólk sem veit hvernig það er að missa tökin á lífinu en ná stjórninni aftur.  Það er ekki sjálfsagður hlutur að jaðarhópar víki fyrst af vinnumarkaði  Mikil verðmæti felast í starfsfólki sem býr við skerta starfsgetu „Íslendingar munu standa sig vel á meðan við erum að fara í gegnum kreppuna,“ segir Elín Ebba. „Þegar henni lýkur megum við hins veg- ar búast við að þurfa að taka á móti fólki sem er búið að standa sig svo vel að það er ein- faldlega búið að keyra sig út.“ Sumir eigi eftir að þurfa að leggja mikið á sig til að láta enda ná saman og þegar loks hægist um þá láti eitthvað undan. „Við verð- um að vera viðbúin, hafa fyrirbyggjandi að- gerðir á takteinum og reyna að grípa fólk jafnfljótt og auðið er.“ Verðum að grípa fólk strax Enginn grætur Íslending Hjálmar Freysteinsson fylgdistmeð kosningum til Örygg- isráðsins, þar sem Íslendingar fóru erindisleysu: Raunamæddri röddu syng róandi í gráðið: Enginn velur Íslending í Öryggisráðið. Kristján Eiríksson bætir við: Í útrás margt er yndislegt og í hana mikið varið. en hefði ég betur hana þekkt hefði ég aldrei farið. Og vísar auðvitað í Jónas: Mér er þetta mátulegt, mátti vel til haga, hefði ég betur hana þekkt sem harma ég alla daga. Einn lesandi hafði samband við umsjónarmann og taldi fyrsta er- indi kvæðisins eiga vel við nú: Enginn grætur Íslending einan sér og dáinn, þegar allt er komið í kring kyssir torfa náinn. Á kennarastofunni í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja fást menn við yrk- ingar. Gísla Skúlasyni íslensku- kennara verður að orði: Hlakka ég til að bregða Brown svo brók hann væti og finna hann í fjöru í Down- ing – fokking – stræti. Annar íslenskukennari, Björgvin E. Björgvinsson, bætir við: Þingið gránar – þokuskán þræðir ána, up and down. Læðist clown um Londontown líkist smánin Gordon Brown. Kristján Gaukur Kristjánsson yrkir undir „kreppurímshætti“: Einbjörn kaus Tvíbjörn til ábyrgðarstarfa á Alþingi sem hefur Löggjafarvald og Tvíbjörn kaus Þríbjörn til trúnaðarstarfa og titils í Ríkisstjórn; Framkvæmdavald og Þríbjörn kaus Fjórbjörn til Þekkingarstarfa að þinga um ábyrgðir: Dómaravald loks Einbjörn kaus Fimmbjörn til Útrásarstarfa og upp á punt gaf honum Forsetavald. VÍSNAHORN pebl@mbl.is ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 GERI kláði eða útbrot vart við sig á eyrum eða kinnum, kann að vera um að ræða ofnæmi vegna of mikillar farsímanotkunar, hefur Reuters fréttastofan eftir tals- manni bresku húðlæknasamtak- anna. Um er að ræða ofnæmis- viðbrögð vegna nikkelhúðar sem er á sumum símum. „Læknar ættu að hafa þennan möguleika í huga finni þeir fyrir útbrotum eða kláða á þessum svæðum andlitsins sem þeir eiga annars erfitt með að útskýra,“ segir í tilkynningu samtakanna. Viðbrögð á eyrum Og þó ofnæmisviðbrögðin séu hvað líklegust til að finnast á eyr- um eða kinnum, segja forsvars- menn samtakanna það þó ekki útiloka að nikkelofnæmi mælist einnig á fingrum þeirra sem eru duglegir að senda sms-skilaboð. Fyrr á þessu ári kannaði Lionel Bercovitch og kollegar hans við Brown háskólann í Providence 22 farsíma og mældist nikkel í 10 þeirra. Með ofnæmi fyrir gemsanum Útbrot við eyru? Gætu verið til- komin vegna of mikillar far- símanotkunar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.