Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 29
inlegra áhugamála okkar var skák
og kvikmyndir. Við gátum talað
tímunum saman um einkaspæjara í
hinum ýmsu sakamálamyndum.
Hetjur á borð við Taggart, Mat-
lock, Derrick og Harry Klein voru
ofarlega á vinsældalista okkar
beggja. Í skákinni vorum við mjög
svipaðir og enduðu þær flestar í
snúnu endatafli. Aldrei skorti okk-
ur umræðuefnin og erfitt er að
sætta sig við að tími samræðna
okkar sé liðinn. Þrátt fyrir það
mun ég hugsa til baka og upplifa
þær aftur með sjálfum mér.
Elsku Sóley, við Tóta sendum
þér okkar innilegustu samúðar-
kveðjur héðan frá London og þökk-
um góðvild og samverustundir á
liðnum árum.
Alfreð Hall.
Mér er ljúft að minnast nokkrum
orðum Sigurðar Péturssonar
prentara, vinnufélaga míns til
margra ára. Með honum er geng-
inn góður og grandvar drengur,
góður fagmaður og traustur félagi í
Hinu íslenska prentarafélagi, síðar
Félagi bókagerðarmanna. Þegar ég
kynntist honum 1957 hafði hann
verið sveinn í setjarasalnum í Rík-
isprentsmiðjunni Gutenberg í tíu
ár og var þar í innsta krók, sem
þýðir að hann var toppmaður og
verk hans með þeim mest krefj-
andi. Stjórnartíðindin voru sér-
grein hans. Hann sinnti starfi sínu
af alúð og samvikusemi og ávann
sér traust og álit.
Sigurður missti föður sinn ung-
ur, en var lengi í foreldrahúsum
með móður sinni. Hann var Vest-
urbæingur og KR-ingur og lék
knattspyrnu með öllum aldurs-
flokkum allt upp í meistaraflokk.
Því áhugamáli sinnti hann líka á
fullorðinsárum og fór oft á völlinn
til að styðja félag sitt. Þess utan
voru áhugamál hans á rólegum og
huglægum nótum, skák og bóklest-
ur, enda rósemi hugans og íhygli
alla tíð snar þáttur í fari hans. Bif-
reið var honum óþörf lengi framan
af.
Leiðir okkar Sigurðar lágu aftur
saman í um miðjan sjöunda áratug-
inn í Prentsmiðju Jóns Helgasonar
sem var til húsa á Bergstaðastíg en
flutti síðar í Síðumúla. Upp úr því
urðu miklar breytingar á högum
Sigurðar og mjög til góðs myndi ég
telja. Nú þurfti hann á bifreið að
halda. Hann tók því bílpróf og festi
kaup á bifreið af Trabant-gerð sem
hentaði vel þeim kröfum sem hann
gerði til farartækis. Meira um verð
voru þó kynni hans af þeirri góðu
konu Sóleyju Brynjólfsdóttur, ætt-
aðri úr Hrísey. Þau gengu í hjóna-
band 6. maí 1967 og festu sér íbúð í
Hraunbæ, sem varð heimili þeirra
til þessa dags. Þetta var gæfuspor.
Sóley og Sigurður voru ólík, en
bættu mjög hvort annað upp. Sig-
urður var ekki mannblendinn og
þrátt fyrir að vinna lengst af á fjöl-
mennum vinnustað var hann þess
utan einfari, en hins vegar traustur
vinur vina sinna. Gott heimilislíf
var honum því mjög dýrmætt. Sig-
urður var góður félagi. Svo vildi til
í Prentsmiðju Jóns Helgasonar að
þar var margt ungra manna, fé-
lagslíf með miklum blóma og oft
komið saman til skemmtunar og
ferðalaga. Þótt Sigurður og Sóley
væru þar í eldri kantinum létu þau
sig aldrei vanta og margs góðs er
um þau að minnast frá þeim árum.
Ekki má láta hjá líða að geta sum-
arbústaðar sem þau reistu í Mið-
dal, á svæði bókagerðarmanna. Þar
undu þau sér vel.
Eins og áður sagði var Sigurður
góður og traustur fagmaður í
prentarastétt og á að baki mörg
góð handtök við bókagerð, sem var
hans ævistarf. Til að nefna eitthvað
setti hann t.d. marga árganga af
Alþingisbókum Íslands frá 18. öld
sem Sögufélag gaf út á sjötta og
sjöunda áratug síðustu aldar. Þar
naut sín vel vandvirkni hans og
áhugi á verkefninu.
Ég þakka Sigurði Péturssyni
áralangt samstarf og vináttu. Ég
og Guðrún, kona mín, vottum Sól-
eyju og öðrum aðstandendum hans
samúð.
Sverrir Sveinsson.
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
✝ IngigerðurAnna Kristjáns-
dóttir fæddist á
Skerðingsstöðum í
Reykhólasveit 6.
nóvember 1910.
Hún lést 20. október
2008 á Hjúkrunar-
heimilinu Sunnu-
hlíð.
Foreldrar hennar
voru hjónin Kristján
Jónsson, f. 4.4. 1863,
d. 21.7. 1949, og
Agnes Jónsdóttir, f.
28.5. 1879, d. 1.11.
1949. Ingigerður var 8. í röð
barna þeirra hjóna, sem upp kom-
ust. Þau voru Jón Magnús, Ólafur,
Ingólfur, Guðrún, Elías, Sigurður,
Ingibjörg, Vilhjálmur og Halldór,
sem öll eru látin. Á lífi eru Hall-
dóra, sem býr á Akureyri, og
Finnur, bóndi á Skerðingsstöðum.
Hinn 8. janúar 1938 giftist Ingi-
gerður Birni Jóhannssyni, f. 24.4.
1906, d. 13.5. 1980. Foreldrar hans
voru hjónin Kristjana Björns-
dóttir ljósmóðir, f. 28.6. 1870, d. í
júlí 1944, og Jóhann Sigurður
Lárusson bóndi, f. 22.7. 1885, d. í
júlí 1962. Þau bjuggu síðast á
Laxárbakka og Litlu-Þúfu í Mikla-
holtshreppi, Snæf. Börn Ingigerð-
ar og Björns eru: 1.) Kristjana, fv.
gjaldkeri, f. 4.8. 1939. Sambýlis-
maður hennar er Skúli Gretar
Guðnason, f. 21.7. 1939, endur-
skoðandi. 2.) Kristján bygginga-
tæknifræðingur, f. 29.10. 1940.
Kona hans er Júlíana Sigurðar-
dóttir hjúkrunarfræðingur, f. 8.5.
1939. Dóttir þeirra er Ingigerður
Anna Kristjánsdóttir hárgreiðslu-
dama, f. 23.5. 1972. Maður hennar
er Sigfús Ingvarsson verkstjóri, f.
8.6. 1967. Þau eiga 3 börn: Júlíönu
Sigfúsdóttur, f. 4.8. 1994, Kristján
Sigfússon, f. 16.6. 1998, og Ragnar
Inga Sigfússon, f. 18.5. 2000. 3.)
Agnes aðstoðarskólastjóri, f. 26.9.
1949. Maður hennar er Arnar Ívar
Sigurbjörnsson húsasmíðameist-
ari. f. 8.4. 1945. Börn þeirra eru:
Anna Ingigerður Arnarsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, f. 10.11.
1969. Unnusti hennar er Garðar
Kristján Halldórsson verkfræð-
ingur, f. 30.12. 1975.
Þau eiga son, Arnar
Darra Garðarsson,
f. 17.9. 2008. Sig-
urbjörg Inga Arn-
arsdóttir prent-
smiður, f. 2.8. 1972.
Björn Arnarsson
markaðsfræðingur,
f. 8.3. 1974.
Ingigerður ólst
upp hjá foreldrum
sínum á Skerðings-
stöðum, þetta var
mikið regluheimili
og vel hugsað um
alla þótt í mörg horn væri að líta.
Eitt af meginmarkmiðum for-
eldra hennar var að allur þessi
barnahópur nyti einhverrar
menntunar og höfðu þau eins oft
og við varð komið heimiliskenn-
ara.
Síðan fóru börnin flest í héraðs-
skóla og dæturnar í húsmæðra-
skóla en synirnir í bænda- og
íþróttaskóla.
Ingigerður fór í Héraðsskólann
á Eiðum og síðan í Húsmæðra-
skólann á Staðarfelli.
Eftir það var hún ýmist heima á
Skerðingsstöðum eða í vistum í
Reykjavík og eitt ár var hún á
Bessastöðum.
Árið 1937 kynntist hún Birni og
giftu þau sig 8. janúar 1938 og
fluttu til Keflavíkur þar sem
Björn var þá landformaður á ver-
tíðum og í vegavinnu víða um land
á sumrin.
Hann varð síðan verkstjóri og
umdæmisstjóri hjá Vegagerð rík-
isins.
Þau bjuggu í Keflavík til ársins
1964 að þau fluttu til Reykjavíkur.
Ingigerður var lengst af heima-
vinnandi húsmóðir enda heimilið
oft mannmargt.
Eftir lát Björns bjó Ingigerður
ein, nema síðustu árin var hún í
sambúð og undir verndarvæng
dóttur sinnar Agnesar og hennar
fjölskyldu. Síðasta eitt og hálft ár
dvaldi hún á Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð.
Útför Ingigerðar Önnu fer
fram frá Fossvogskapellu í dag og
hefst athöfnin kl. 13.
Við kveðjum nú elskulega ömmu
okkar, Ingigerði Önnu Kristjánsdótt-
ur, sem lést á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð hinn 20. okt. síðastliðinn.
Amma var alla tíð einn af föstu
punktunum í lífi okkar. Til hennar var
ávallt hægt að leita þegar eitthvað
bjátaði á, fátt sem ekki lagaðist þegar
hlý hönd hennar strauk vangann og af
því ótrúlega jafnaðargeði sem ein-
kenndi hana leysti hún úr ýmsum
málum. Amma var alla tíð fyrirmynd-
arhúsmóðir og söknum við góða mat-
arins sem hún eldaði en það var
ósjaldan að við fengjum að njóta hans,
þar sem það kom töluvert í hennar
hlut að gæta okkar barnanna á sínum
tíma. Alltaf var gott að koma heim til
ömmu og afa úr skólanum því það var
næsta víst að hægt var að gæða sér á
nýbökuðum kræsingum og njóta ást-
úðar sem ávallt ríkti á heimilinu.
Henni varð oft hugsað til heima-
haganna fyrir vestan og talaði oft um
gamla tíma og tengdi okkur börnin
við æskuslóðir sínar. Amma var ein-
staklega góð í hannyrðum og eftirlét
okkur mörg merk verk sem eru okkur
mikils virði.
Eftir langa ævi hefur hún nú kvatt
okkur en þó ekki að fullu, því lífsgildi
hennar um hlýju og traust eru enn
með okkur.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Anna Ingigerður, Björn og
Sigurbjörg Arnarsbörn,
Ingigerður Anna
Kristjánsdóttir.
Ingigerður Anna
Kristjánsdóttir
Elsku langamma.
Við systkinin erum fegin
að hafa fengið að kynnast
þér. Það var alltaf gott að
hitta þig, þú tókst okkur allt-
af svo vel. Við eigum eftir að
sakna þín mikið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Júlíana, Kristján og
Ragnar Ingi.
HINSTA KVEÐJA
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur,
tengdasonur og afi,
VILHJÁLMUR FENGER,
Nesbala 44,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 29. október kl. 15.00.
Kristín Fenger,
Björg Fenger, Jón Sigurðsson,
Ari Fenger, Helga Lilja Gunnarsdóttir,
Borghildur Fenger,
Ruth Pálsdóttir,
Sigurður, Styrmir og Vilhjálmur Darri.
✝
HEIÐRÚN SOFFÍA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Grundargerði 3a,
Akureyri,
sem lést 18. október, verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju fimmtudaginn 30. október og hefst
athöfnin kl. 13.30.
Edda H. Þorsteinsdóttir,
Þorsteinn Jónatansson
og aðrir aðstandendur.
✝
Minn góði eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
NÍELS MARTEINSSON,
Sléttuvegi 17,
andaðist á heimili sínu föstudaginn 24. október.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Steinunn J. Bárðardóttir,
Bárður Marteinn Níelsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Karen Níelsdóttir, Gunnar Örn Pétursson,
barnabörn og barnbarnabörn.
✝
Elskuleg tengdamóðir, amma og langamma,
ÞORGERÐUR PÉTURSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
22. október.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hulda Valdís Þórarinsdóttir,
Ásmundur Þór Hreinsson,
Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Bjarni S. Bergsson,
Pétur Gauti Hreinsson, Margrét Sigurðardóttir
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir mín,
SÆBJÖRG HINRIKSDÓTTIR,
Esjugrund 37,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn
25. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Þórir Bjarnason.
Móðir okkar, amma og langamma,
SVAVA JÓNSDÓTTIR
frá Minni Reykjum,
Skagafirði,
lést mánudaginn 20. október.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey mánudaginn
27. október að ósk hinnar látnu.
Þökkum sýnda samúð.
Inga Herdís Harðardóttir,
Guðni Karl Harðarson,
Heiðrún Elsa Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista