Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 35
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
Jólablað Morgunblaðsins
Stórglæsilegt sérblað tileinkað jólunum
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn
28. nóvember.
Meðal efnis er:
• Jólafötin á alla fjölskylduna.
• Hátíðarförðun litir og ráðleggingar.
• Uppáhalds jólauppskriftirnar.
• Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða á
aðventu og jólum.
• Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.
• Smákökur.
• Kökuuppskriftir
• Eftirréttir.
• Jólakonfekt.
• Jólauppskriftir frá kokkum.
• Vín með jólamatnum.
• Laufabrauð.
• Gjafapakkningar.
• Jólagjafir.
• Kertaskreytingar.
• Jól í útlöndum.
• Jólakort.
• Jólabækur og jólatónlist.
• Jólaundirbúningur með börnunum.
• Margar skemmtilegar greinar sem tengjast
þessari hátíð ljóss og friðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
og fróðleiksmolum.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16,
föstudaginn 21. nóvember.
Ljóð úr ljóðasamkeppninni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ungskáld Vinningshafarnir ásamt formanni dómnefndar, Þórarni Eldjárn. Vinningshafarnir eru, frá vinstri: Elín
Elísabet Einarsdóttir, Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir og Guðmundur Loki Rúnarsson.
Guðbrandur Loki Rúnarsson, Aust-
urbæjarskóla, og Guðrún Ingibjörg
Þorgeirsdóttir, Hagaskóla. Dóm-
nefnd skipuðu Davíð A. Stefánsson,
Kristín Svava Tómasdóttir og Þór-
arinn Eldjárn. Morgunblaðið birtir
tvö þeirra ljóða sem fengu við-
urkenningu auk nokkurra annarra.
Í TILEFNI af aldarafmæli Steins
Steinarr efndu Íslensk málnefnd og
Samtök móðurmálskennara til
ljóðasamkeppni meðal grunn-
skólanema. Á fjórða hundrað ljóða
barst í keppnina. Viðurkenningar
fyrir þrjú bestu ljóðin voru veittar
13. október í Þjóðarbókhlöðunni á
fæðingardegi Steins Steinarr. Höf-
undar verðlaunaljóðanna eru Elín
Elísabet Einarsdóttir, Borgarnesi,
Ástarstjarna drangans
er komin til mín.
Ég þekki ekki stjörnuna
nema úr annarra ljóðum
hún brosir með mér
þegar hönd þín hvílir með minni.
Er sólin ríkir
hlýnar stjörnunni í mér.
Elín Elísabet Einarsdóttir,
Borgarnesi
Úr annarra ljóðum
Ég elska andartakið
sem kemur öðru hvoru,
þegar ég skil
lífið allt,
tilgang þess,
ástina og sálina.
En þó myndi ég fórna því,
fyrir andartakið er kemur
augnabliki seinna,
þegar ég hef öllu gleymt
á ný.
Guðrún Ingibjörg
Þorgeirsdóttir
Hagaskóla, Reykjavík
Ég elska
Hjartað hefur ástæðu
sem hugur
skilur ekki.
Laura Alejandra
Salinas Moreno,
Austurbæjarskóla,
Reykjavík
Hugur
Hinn
fyrri
felst í því að
færa
frjókorn
frá
frjóhnappi
frævils að
fræni á
frævunni.
Þessi
færsla
frjókornsins nefnist
frævun.
Sjálffrævun er þegar
frjókorn berst af
frjóhnappi
fræfils yfir á
fræni
frævu í sama blómi.
Kinnat Sóley Lydon,
Austurbæjarskóla, Rvk.
Líffræðikennari
Hvar er sólin?
Hún er í útlöndum.
Þuríður Benediktsdóttir,
Austurbæjarskóla,
Reykjavík
Sólin
Barbapabbi er sorgmæddur,
Barbapabbi leikur við börnin.
Barbapabbi uppgötvar,
að hann getur breytt um lögun.
Bágt er að verða að þræla þrátt.
Eitt kvöldið haustið 1917
skrapp ég með nokkrum kunn-
ingjum mínum
inná kaffihúsið Skjaldbreið.
Flest skordýr fara einförum
og eru útaf fyrir sig.
Af hryggleysingjum
finnst aragrúi tegunda.
Knútur Ingólfsson,
Austurbæjarskóla,
Reykjavík
Hugsunarlöngun
Fréttir á SMS