Morgunblaðið - 28.10.2008, Side 41

Morgunblaðið - 28.10.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008 EAGLE EYE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára WOMAN kl. 8 LEYFÐ SEX DRIVE kl. 10:20 B.i. 12 ára / AKUREYRI / KEFLAVÍK THE HOUSE BUNNY kl. 8 LEYFÐ PINEAPPLE EXPRESS kl. 10:10 B.i. 16 ára NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 LEYFÐ BURN AFTER READING kl. 10:10 B.i. 16 ára / SELFOSSI EAGLE EYE kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára CHARLIE BARTLETT kl. 8 B.i. 12 ára RIGHTEOUS KILL kl. 10:10 B.i. 16 ára SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Á SELFOSSI FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE SÝND Á AKUREYRI MYND SEM ALLAR KONUR VERÐA AÐ SJÁSÝND Á SELFOSSI Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is KEANE hefur hingað til lagt sig eftir áheyrilegu en jafnframt dramatísku popprokki í anda Cold- play og U2 og sló rækilega í gegn um heim allan árið 2004 með fyrstu plötu sinni Hopes & Fears. Henni var svo fylgt farsællega eftir með Under The Iron Sea (2006) en samtals hafa þessar tvær plötur selst í átta milljónum eintaka. Hér var komin sveit sem allir gátu tengt við; mamma, amma og fólk með nefið kirfilega upp í loftið gat meira að segja fundið eitthvað til brúks. Undir þekkilegum melódíunum og á bakvið barnslegt andlit forsöngvarans, Toms Chaplins, voru hins vegar árar og djöflar að hræra í sínum eyðileggjandi seið. Hljómsveitin er reyndar þess eðlis að maður tengir hana seint við sjálfsmorðshugleiðingar, fíkniefnamisferli og andlega örbirgð. Svo fór þó að Chaplin skráði sig í meðferð á haustdögum árið 2006 og heill Norður-Ameríkutúr var sleginn út af borðinu. Chaplin var þá 27 ára, á hinum fræga rokkstjörnu-dauðaaldri. Handónýtir Tríóið sem skipar Keane skakklappaðist í gegn- um þessar raunir og komst furðu heillegt í gegn, mögulega spilar þar inn í að meðlimir hafa verið vinir frá því í barnæsku. Tim Rice-Oxley, píanó- leikari sveitarinnar, ræddi við Chaplin um þessa erfiðleika í gegnum lagasmíðar sínar fyrir Under The Iron Sea og Chaplin var í þeirri undarlegu stöðu að vera syngjandi um sjálfan sig og sín vandamál fyrir tilstilli annars manns. „Við erum enskir og þess vegna handónýtir í því að koma hreint fram,“ hefur Chaplin látið hafa eft- ir sér. Loftið var þó hreinsað á endanum og vin- irnir lögðu í Perfect Symmetry bæði frískir og fjör- ugir, búnir að vinda af sér allt vesen og volæði. Platan var tekin upp víðsvegar um heiminn; í Par- ís, London, LA og svo í Berlín þar sem hinn skap- væni safi var kreistur sem aldrei fyrr og gamlar myndir með Marlene Dietrich m.a. notaðar til að lyfta andanum. Í opinberri yfirlýsingu frá sveitinni segir að þeir hafi svarið og sárt við lagt að henda reglunum um hvað telst góður smekkur og hvað ekki í ruslið. Samvinna var meiri en áður og nú þótti mönnum tími til kominn að stíga aðeins frá hinum tiltölulega örugga hljómi síðustu platna. Skrúfusneiðingar Fyrsta smáskífan, „Spiralling“, er t.a.m. undir sterkum áhrifum frá eitís-tónlist og rafgítarar gægjast fram á milli hljóðrásanna stöku sinnum en eitt af sérkennum Keane er að sveitin er án gítar- leikara. Auk Chaplins og Rice-Oxleys er það bara Richard Hughes, og hann sér um trommuslátt. „Það var klárlega skemmtilegast að gera þessa plötu,“ segir Hughes um plötugerðina. „Í fyrsta sinn á ferlinum gátum við skilið við okkur hugmyndir annarra um hvernig við ættum að hljóma. Nú vorum við fullkomlega frjálsir – og komumst fljótt að því að það er aldrei hægt að fara „of langt“ með hlutina. Það eru t.d. sprettir í „Spir- alling“ sem við hefðum aldrei lagt í hér áður fyrr.“ Árar og djöflar Hljómsveitin Keane var í svartnætti um skeið en siglir nú glaðbeitt út á galopið hafið með nýja plötu, Perfect Symmetry. Niður til heljar … hérumbil  Þriðja plata hinnar geðþekku sveitar Keane nefnist Perfect Symmetry  Klisjan „blóð, sviti og tár“ á vel við um tilurð hennar  Frískir og fjörugir TÓNLIST og fótbolti eru nátengd menningarleg fyrirbæri, eigin- lega tengdari en margir kæra sig um að viðurkenna. Sérstaklega á þetta við um heimaland Keanes, Bretland. Í upphafi ferilsins var mikið rætt um að sveitin héti í höfuðið á írsku bullunni Roy Keane en meðlimir hummuðu það reyndar lengi vel fram af sér að svara og enn eru uppi áhöld um hvort svo sé eður ei. Alltént koma hér þrjú nöfn yfir aðrar sveitir sem hafa fengið innblástur af vellinum. Athygli vekur að slíkar nafngiftir, ólíkt Keane, eru ekki líklegar til að skapa mönn- um vinsældir. Pele Auðvitað er ekkert vit í öðru en að nefna sig eftir fremsta knattspyrnumanni allra tíma. Um er að ræða síðrokksband frá Wis- consin sem hætti störfum árið 2004. Sumir meðlima eru nú í hljómsveitinni Paris, Texas. Að draga nafngiftina frá frægri kvikmynd verður kannski væn- legra til árangurs? Cantona Þessi Seattlesveit heitir í höfuðið á Eric Cantona, franska knattspyrnusnillingnum sem gerði allt vitlaust með Manchest- er United hér í eina tíð. Er víst að gera ágætasta skurk í grugg- höfuðborginni um þessar mundir. Vanessa Van Basten Þessi ítalska sveit heitir í höfuðið á eiginkonu Marcos Van Basten, þess mikla meistara. Óneitanlega skemmtilegt „tvist“ á þessi fræði. Sveitin er frá Genúa á Ítalíu, spilar víst gallsúrt tilraunarokk og er að „skora“ á fullu hjá aðdáendum slíkrar list- ar. Keane, Cantona, Pele … Tónlist og takkaskór The Wedding Present nefndu heila plötu eftir fót- boltakappanum George Best.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.