Morgunblaðið - 28.10.2008, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Borgin átti í sjóðum
Reykjavíkurborg átti 4,1 milljarð
króna í peningarmarkaðssjóðum
Landsbankans í vikunni áður en
neyðarlög voru sett. Óljóst er hvort
tekist hafi að losa fjármunina úr
sjóðunum. » Forsíða
Beiðni um lán vel tekið
Geir H. Haarde forsætisráðherra
segir að beiðni um lán frá Norður-
löndunum sé á vinnslustigi og í rétt-
um farvegi. Geir er nú staddur í
Helsinki þar sem hann tekur þátt í
þingi Norðurlandaráðs. » 2
Ekki tryggður
Viðbótarlífeyrir fólks er ekki
tryggður nema hann hafi verið lagð-
ur inn á verðtryggða innlánsreikn-
inga bankastofnana. Flestir lífeyris-
sjóðir og fjármálafyrirtæki hafa hins
vegar valið aðrar leiðir til að ávaxta
séreignasparnað fólks, m.a. með því
að kaupa í verðbréfasjóðum. Með
setningu neyðarlaga voru innlán sett
framar skuldabréfum í kröfuröð og
þau tryggð. » Forsíða
Fjölmennur fundur
Troðfullt var út úr dyrum á opn-
um borgarafundi í Iðnó í gærkvöldi
þar sem almenningi gafst kostur á
að ræða stöðu efnahagsmála. » 12
Verðbólgan nú tæp 16%
Verðbólgan mælist nú tæp 16% og
hefur ekki mælst meiri hérlendis
síðan vorið 1990. » 8
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hverjir veruleikafirrtir?
Forystugreinar: Drengskapur og
vinátta | Áfengi og auglýsingar
Ljósvaki: Sjónvarpsefnisskiptasamn.
UMRÆÐAN»
Hekluskógar stærsta endurheimt …
Mjólkurkúnum slátrað
Að skjóta sendiboðann
Nýfrjálshyggjan og hrun bankakerfis
2
2 2 2 2
2
2
3% )4"% -
( )
5%
,
!-%
2
2 2 2 2 2
2
+ 6&0 " 2 2
2 2 2 2
2
2
2
7899:;<
"=>;9<?5"@A?7
6:?:7:7899:;<
7B?"66;C?:
?8;"66;C?:
"D?"66;C?:
"1<""?E;:?6<
F:@:?"6=F>?
"7;
>1;:
5>?5<"1("<=:9:
Heitast 2 °C | Kaldast -8 °C
Lægir a-lands og
léttir til. Hæg S-átt síð-
degis, vaxandi vestan
til, 8-13 m/s, slydda
eða snjókoma síðdegis. » 10
Eagle Eye er tekju-
hæsta myndin hér á
landi en í Bandaríkj-
unum verður dans
og söngur fyrir val-
inu. » 38
KVIKMYNDIR»
Hasar, dans
og söngur
FÓLK»
Aniston er kannski með
tvo í takinu. » 43
Þriðja plata hljóm-
sveitarinnar Keane
er komin út og var
skemmtileg í vinnslu
en kostaði blóð, svita
og tár. » 41
TÓNLIST»
Frískir og
fjörugir
AF LISTUM»
Svartir englar eru alveg
ágætir. » 39
TÓNLIST»
Páll Óskar bíður eftir
Silfursafninu. » 36
Menning
VEÐUR»
1. Ekki allt kolsvart á Íslandi
2. Bílaflotinn seldur til Noregs?
3. Landsbankinn verður NBI hf.
4. Prins Polo á þrotum?
Íslenska krónan veiktist um 0,3%
Þjóðleikhúsinu
Macbeth
„VÖLLURINN er ekki leikhæfur og útlitið er
ekki bjart,“ segir Jóhann Kristinsson vallarstjóri
Laugardalsvallar. Á fimmtudag er landsleikur
kvennaliðs Íslands og Írlands á dagskrá í umspili
um laust sæti í úrslitum Evrópumótsins í Finn-
landi. UEFA varð ekki við beiðni KSÍ um að nota
Kórinn í Kópavogi sem varavöll. „Við verðum
bara að stóla á veðurguðina,“ segir Þórir
Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ. | Íþróttir
Laugardalsvöllur ekki leikhæfur og útlitið fyrir Íraleikinn ekki bjart
„Við verðum bara að stóla á veðurguðina“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
GASSPRENGING í vinnuskúr í Grundargerði í
gærkvöldi varð þess valdandi að sex ungmenni á
aldrinum 14-15 ára voru flutt á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi með brunasár, þar af einn á
gjörgæsludeild með alvarlega áverka. Mikill við-
búnaður var af hálfu lögreglu og slökkviliðs, auk
þess sem tugir björgunarsveitarmanna voru kall-
aðir út til að leita af sér allan grun um að fleiri
unglingar hefðu slasast við sprenginguna. Ekki
var vitað í fyrstu hve margir unglingar höfðu ver-
ið inni í skúrnum eða við hann, en talið er að eldur
hafi kviknað út frá gaskút. Sprengingin var það
öflug að útveggir rifnuðu út að hluta.
Að frumkvæði slökkviliðsins var Bústaðakirkja
opnuð í gærkvöldi fyrir ungmennin og forráða-
menn þeirra og aðstandendur.
„Við reyndum að tala við fólk og benda því á góð
ráð til að halda utan um sitt fólk og vera saman.
Það bregður öllum svakalega við þetta vegna þess
að ungir krakkar, sem fara út á kvöldin, fara út til
að leika sér frjáls og glöð í ævintýrum lífsins. Svo
enda þau með skelfingu og þá bregður öllum,“
sagði sr. Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bú-
staðakirkju, við Morgunblaðið í gærkvöldi, en í
kirkjuna komu nokkur ungmenni, foreldrar og
skólastjórar úr hverfinu.
„Við vildum endilega koma út tilkynningu til
krakkanna, þeirra sem höfðu verið á staðnum, að
þau gæfu sig fram hérna. Það er alveg viðbúið að
þessir krakkar séu í miklu sjokki. Og eins og að-
koman var þarna á staðnum þá voru þessir slös-
uðu á víð og dreif,“ sagði Jón Friðrik Jóhannsson,
deildarstjóri hjá slökkviliðinu, sem var til staðar í
kirkjunni. Á tólfta tímanum fengust þær upplýs-
ingar hjá slökkviliðinu að nokkur ungmenni sem
urðu vitni að slysinu hefðu komið síðar í kirkjuna.
Brenndust í sprengingu
Morgunblaðið/Júlíus
Sprenging Útveggir og hurðir á vinnuskúrnum rifnuðu út við gassprenginguna í Grundargerði.
Öllum bregður svakalega,
segir sr. Pálmi Matthías-
son í Bústaðakirkju