Morgunblaðið - 11.11.2008, Síða 1

Morgunblaðið - 11.11.2008, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 1. N Ó V E M B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 309. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is MINNING UM LISTAMANN ÁRNI MATTHÍASSON MINNIST MIRIAM MAKEBA HANDKNATTLEIKUR Spútnikliðið er frá Akureyri H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 08 -0 08 0 NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is Leikhúsin í landinu >> 37 „ÞAÐ er fundað baki brotnu um efnahagsmál og framtíð kjarasamninganna,“ segir verkalýðsforingi á almenna vinnumarkaðinum. ASÍ og Samtök atvinnulífsins ræða stíft þessa dagana um mögulegar aðgerðir í kjaramálum og samstillt átak við endurreisn í atvinnu- og efnahagslíf- inu. Sagt er að ef breið samstaða náist um sameiginlegar tillögur um umgjörð kjarasamninga á næstu árum megi vel vera að því verði síðar meir líkt við nýja þjóðarsátt. Forsendunefnd kjarasamninganna fundar í dag en nið- urstaða mun þó ekki nást fyrr en leyst hefur verið úr yf- irstandandi kjaradeilu stéttarfélaga og launanefndar sveitarfélaga. ASÍ hefur rætt við SA og kynnt stjórnvöld- um aðgerðaáætlun frá ársfundinum í seinasta mánuði, þar sem m.a. er lagt til að sótt verði um ESB-aðild og stefnt að upptöku evru. „Við erum líka tilbúin að stuðla að framlengingu kjarasamninga án þess að komi til veru- legra breytinga frá því sem er í núverandi samningi og taka þ.a.l. á okkur talsverða skerðingu til þess að verja atvinnustigið og skapa ró á vinnumarkaði á meðan við förum í gegnum þetta erfiðleikatímabil,“ segir Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ. Einnig vill ASÍ taka þátt í endur- reisnarstarfi atvinnulífsins, m.a. með aðkomu lífeyris- sjóða að fjárfestingu, og fjölmargar úrlausnir eru settar fram um að bæta greiðslustöðu heimilanna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að almennt hafi verið mikill samhljómur í því sem SA og ASÍ hafa haldið á lofti. ,,Við vinnum mjög þétt saman,“ segir hann.|11 ASÍ og SA reyna samstillt átak í kjara- og efnahagsmálum Þétt saman um þjóðarsátt EKKI hefur öllum verklegum framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu verið hætt og meðal annars er nú unnið að lagningu ræsis við Mýrargötu. Stórvirkar vinnuvélar og menn í skurðum blasa því við vegfarendum sem leið eiga um þær slóðir nú um stundir. Þó er ekki víst að alltof vel viðri til slíkra útiframkvæmda alveg á næstunni því spáð er norðanátt og kólnandi veðri þó að frostlaust verði að mestu sunnan til. Enn sjást vinnuvélar og menn í skurðum Morgunblaðið/Kristinn SKILANEFNDIR bankanna munu hitta erlenda kröfuhafa í bú þeirra á fundum í vikunni. Um er að ræða fulltrúa evrópskra og bandarískra lánveitenda. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa ýmsir kröfu- hafanna látið í ljós að fyrra bragði áhuga á að taka hlut í íslensku bönkunum upp í skuldir og taka þátt í áframhaldandi rekstri og fjár- mögnun þeirra. Á fundunum verður gerð grein fyrir stöðu þrotabúa bankanna. Heimildir Morgunblaðsins herma að meðal annars verði farið yfir fyrstu vísbendingar um verðmæti þeirra eigna sem eftir verða í gömlu bönkunum. Er vonast til þess að í framhaldinu verði kröfuhafarnir til- búnir til að vera með í ráðum um hvernig stíga eigi næstu skref. Má búast við því að verði eignir inn- heimtar hratt fái kröfuhafar borgað fyrr en ella en fái þá minna upp í kröfurnar en ef eignirnar eru inn- heimtar hægar. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir mikilvægt að sýna kröfuhöf- unum sanngirni og tryggja að þeim sé ekki mismunað. Í Morgunblaðinu á laugardag sagði Vilhjálmur Eg- ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að gagnvart erlend- um kröfuhöfum væri ríkið ekki trú- verðugur eigandi bankanna. „Besta leiðin til að semja frið við þá er að þeir fái bankana afhenta, eins og myndi gerast í venjulegu þrotabúi, þar sem kröfuhafar taka það yfir,“ sagði hann. Vilja eiga í bönkunum  Skilanefndir hitta fulltrúa erlendra kröfuhafa í vikunni  Bæði fulltrúar evrópskra og bandarískra lánveitenda Í HNOTSKURN»Fundir skilanefndannameð fulltrúum kröfuhafa verða á miðvikudag, fimmtu- dag og föstudag. »Skuldir íslenskra innláns-stofnana, banka og spari- sjóða, erlendis voru um 8.000 milljarðar króna um mitt þetta ár. » Forsætisráðherra undir-strikar að málið sé í hönd- um skilanefnda bankanna.  Kröfuhafar hitta | 12  LAND eins og Ísland, með hátt menntunarstig, mikinn vinnuþrótt og góða alþjóðlega reynslu, þarf ekki að hafa áhyggjur þegar til langs tíma er litið, að mati Takashi Yamaguchi, forstjóra japanska lyfja- fyrirtækisins ASKA Pharmaceuti- cal. Aska og Actavis hafa ritað undir viljayfirlýsingu um stofnun sameig- inlegs samheitalyfjafyrirtækis í Jap- an. Stefnt er að því að fyrirtækið, sem bera mun nafnið Actavis ASKA Co., hefji starfsemi í apríl á næsta ári. Actavis mun eiga 45% í nýja fyr- irtækinu en ASKA 55%. Japönsk stjórnvöld ákváðu nýlega að stefna að tvöföldun notkunar samheitalyfja í landinu og því telja ASKA og Acta- vis að mikil tækifæri felist í sam- vinnu sem þessari. Við undirritun yfirlýsingarinnar sagði Yamaguchi ennfremur að vegna áðurnefndra lykilþátta í fari íslensku þjóðarinnar og þess, hversu öflugt fyrirtæki þeir hafi byggt upp með Actavis, sé Aska mjög ánægt með að vinna með Íslendingum og sækja sameiginlega inn á japanska samheitalyfjamarkaðinn. » 16 Ísland þarf ekki að hafa áhyggjur til frambúðar  Friðarsam- komulag sem markaði lok fyrri heimsstyrjald- arinnar tók gildi klukkan 11 fyrir níutíu árum. Það var undirritað í lestarvagni í Compiégne- skógi í Frakk- landi. Dagurinn er opinber frídagur í mörgum lönd- um og í dag tekur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti á móti þjóðhöfð- ingjum, þ. á m. Karli Bretaprinsi, í tilefni dagsins. jmv@mbl.is Klukkan 11 hinn 11.11. 1918 hljóðnuðu byssur Friður Myndataka við lestarvagninn.  Skuldir Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar og fyrirtækja hans nema yfir þúsund milljörðum króna. Þetta fullyrðir Gunnar Smári Eg- ilsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að skuldir Landic nemi 450 milljörðum, Baugur skuldi 400 milljarða, FL Group 350 milljarða, auk þess sem önnur fyr- irtæki í eigu Jóns skuldi tugi og hundruð milljarða króna. »22 Segir skuldirnar yfir 1.000 milljörðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.