Morgunblaðið - 11.11.2008, Qupperneq 4
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
JÓN Ásgeir Jóhannesson ætti þegar
að hafa vikið úr stjórnum hlutafélaga,
að mati Áslaugar Björgvinsdóttur,
dósents við Háskólann í Reykjavík.
Ákvæði í hlutafélagalögum séu ótví-
ræð, sá sem hljóti dóm fyrir brot á
nánar tilgreindum lögum missi þegar í
stað hæfi sitt til stjórnarsetu.
Þótt Jón Ásgeir hefði átt að víkja úr
stjórnum félaganna, segir Áslaug að
stjórnarseta hans hafi engin áhrif á
gildi þeirra ákvarðana sem stjórnirnar
hafa tekið frá því dómur í Baugsmál-
inu var kveðinn upp.
Páll Ásgrímsson héraðsdóms-
lögmaður vakti athygli á því í aðsendri
grein í Morgunblaðinu í gær, að Jón
Ásgeir sæti í stjórnum 13 hlutafélaga,
samkvæmt samantekt Creditinfo Ís-
land. Í hlutafélagalögum væri á hinn
bóginn lagt blátt bann við því að menn
sem hefðu hlotið dóm fyrir brot á nán-
ar tilgreindum lögum sitji í stjórnum
hlutafélaga. Páll sagði undarlegt að
skv. frétt Viðskiptablaðsins frá 6. nóv-
ember teldi Skúli Jónsson, for-
stöðumaður Hlutafélagaskrár, að Jón
Ásgeir gæti setið í stjórn fyrirtækis
fram að næsta aðalfundi. Þessi skoðun
ætti sér ekki stoð í lögum, hluta-
félagaskrá gæti ekki búið til nýjar
reglur og skoraði Páll á Hluta-
félagaskrá að grípa til aðgerða.
Lagaákvæðin skýr
Áslaug Björvinsdóttir segir ákvæði
64. og 66. greinar hlutafélagalaga vera
skýr. Stjórnarmaður megi ekki hafa
hlotið dóm á síðustu þremur árum.
Hljóti hann dóm missi hann um leið
hæfi sitt til að sitja í stjórnum fyr-
irtækja. Því beri honum að víkja úr
stjórninni þegar í stað. Sé varamaður í
stjórninni eigi hann að taka sæti í hans
stað. Í vissum tilvikum megi bíða með
að kjósa nýjan aðalmann í stjórn þar
til á næsta aðalfundi.
Áslaug bendir á að samkvæmt
hlutafélagalögum hvíli sú skylda á
stjórnarmönnum að sjá til þess að
skipulag og starfsemi félagsins sé
ávallt í samræmi við lög, þ.á m. að
stjórnarmenn fullnægi almennum
hæfisskilyrðum samkvæmt 66. grein
laganna hverju sinni og bregðast þá
þegar við í samræmi við 64. grein komi
sú staða upp að stjórnarmaður missi
almennt hæfi sitt.
Ætti að vera hættur
Dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir að menn
missi hæfi til setu í stjórnum hlutafélaga þegar dómur fellur
Morgunblaðið/ÞÖK
Réttur Jón Ásgeir Jóhannesson, Gestur Jónsson hrl. og Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, t.h., í Héraðsdómi Reykjavíkur.
JÓN Ásgeir Jóhannesson hlaut skilorðsbundinn dóm fyrir brot gegn almenn-
um hegningarlögum með því að rangfæra bókhald Baugs.
Í 66. grein hlutafélagalaga segir: „Stjórnarmenn [...] mega ekki á síðustu
þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverð-
an verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hluta-
félög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld.“
Í 64. grein hlutafélagalaga segir: „Ef starfi stjórnarmanns lýkur áður en
kjörtímabili er lokið eða hann uppfyllir ekki lengur skilyrði 66. gr. til þess að
geta verið í stjórn og enginn varamaður er til þess að koma í hans stað hvílir
sú skylda á hinum stjórnarmönnunum að efna til kjörs nýs stjórnarmanns
fyrir þann tíma sem eftir er af kjörtíma hins fyrri eða óska eftir tilnefningu.
Ef kjörið heyrir undir hluthafafund er þó unnt að fresta kjöri nýs stjórn-
armanns til næsta aðalfundar þar sem stjórnarkjör skal fara fram, svo fremi
stjórnin sé ákvörðunarbær með þeim stjórnarmönnum og varamönnum sem
eftir eru.“
Skylda að kjósa nýjan mann
DÓMUR í Baugsmálinu var kveðinn upp í Hæstarétti 5. júní 2008 og hlaut
Jón Ásgeir Jóhannesson þá þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til
tveggja ára.
Jón Ásgeir situr m.a. í stjórn 365 hf. og er stjórnarformaður. Aðalfundur
félagsins var haldinn í mars á þessu ári. Verði næsti aðalfundur haldinn í
mars á næsta ári og sitji Jón Ásgeir í stjórninni þangað til, hefur hann setið
í stjórn 365 í um níu mánuði frá því dómur gekk í Baugsmálinu.
Jón Ásgeir getur aftur tekið sæti í stjórn hlutafélaga 6. júní 2011, þegar
þrjú ár verða liðin frá dómi í Baugsmálinu.
Ákveði Jón Ásgeir að segja sig úr stjórn 365 áður en aðalfundur er hald-
inn er einn varamaður til reiðu í stjórninni. Varamenn í stjórn voru raunar
tveir þar til fyrir rúmlega viku. Þá sagði Árni Hauksson sig úr stjórninni í
kjölfar þess að meirihluti stjórnar samþykkti tilboð Rauðsólar, félags Jóns
Ásgeirs, í fjölmiðlahluta 365. Í stað Árna tók varaformaðurinn Matthías
Imsland, forstjóri Iceland Express, sæti í stjórninni. Hinn varamaðurinn er
Soffía Lárusdóttir, skv. upplýsingum á vef 365.
Varamaður til taks í 365
Morgunblaðið/Kristinn
Samstarf Kristín Ingólfsdóttir og Bernhard Örn Pálsson takast í hendur
eftir að tilkynnt var um styrk frá Evrópska rannsóknaráðinu.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„STYRKURINN er til rannsókna á
efnaskiptum í mönnum, að skoða
þau sem heilt kerfi en ekki hvern og
einn lífhvata fyrir sig sem matar eitt
og eitt efnahvarf,“ segir Bernhard
Örn Pálsson, gestaprófessor við Há-
skóla Íslands og prófessor í lífverk-
fræði við Kaliforníuháskóla í San
Diego. Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands, tilkynnti við athöfn
í gær að Bernhard hefði fengið 2,4
milljóna evra styrk frá Evrópska
rannsóknaráðinu (ERC), um 400
milljónir króna.
Styrkurinn rennur til Háskóla Ís-
lands og er þetta stærsti rann-
sóknastyrkur sem komið hefur til
skólans. Bernhard segir að styrk-
urinn verður notaður til að koma
upp rannsóknasetri í kerfislíffræði
sem hann stýrir. Segir hann mark-
miðið að það verði á heims-
mælikvarða og telur allar aðstæður
vera til þess hér á landi.
Styrkurinn fæst út á rann-
sóknaverkefni til fimm ára þar sem
ætlunin er að nota upplýsingar um
genamengi lífvera til að byggja net
sem lýsir öllum efnaskiptum fruma í
mannslíkamanum. Bernhard segir
að byggja þurfi kerfið áfram upp. Þá
þurfi að reyna að fylla upp í eyð-
urnar með nýjum uppgötvunum.
Síðan verði líkanið notað til að hraða
leit að nýjum lyfjum sem hafa áhrif á
efnaskipti. Segir hann þetta mik-
ilvægt því komið hafi í ljós að flestir
sjúkdómar í mönnum stafi af ójafn-
vægi í efnaskiptum. Nefnir hann
sykursýki, offitu, mörg krabbamein
og hjartasjúkdóma - og jafnvel
taugasjúkdóma.
Efnaskiptin skoðuð
sem heilt kerfi
Stór rannsóknastyrkur til Háskólans
BERNHARD Örn Pálsson tók
fyrrihlutapróf í efnaverkfræði
við HÍ 1977 og lauk dokt-
orsprófi við Wisconsin-háskóla
1984. Síðan hefur hann að-
allega starfað við Michigan-
háskóla og Kaliforníuháskóla
þar sem hann starfar nú sem
prófessor í lífverkfræði. Hann
var valinn í bandarísku
verkfræðiakademínuna í byrjun
árs 2006.
Bernhard segist hafa unnið á
sama sviði í þrjátíu ár, eða al-
veg frá því hann var í sum-
arvinnu hjá Sigmundi Guð-
bjarnasyni prófessor við að
athuga einstök ensím úr hjarta-
vöðva og hvaða áhrif þau hefðu
á starfsemi hjartans. Hann tek-
ur fram að þekkingin hafi auk-
ist mjög á þessum tíma, sér-
staklega síðustu tíu árin.
Á sviðinu í 30 ár
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
LÁTINN er í Kaup-
mannahöfn rithöfundur-
inn og þýðandinn Úlfur
Hjörvar. Úlfur var af-
kastamikill þýðandi sem
þýddi jöfnum höndum
leikrit, skáldsögur og ljóð
af ýmsum tungumálum,
þar á meðal verk eftir
Knut Hamsun, Tony
Morrison, Karen Blixen,
Dario Fo, Sam Shepard,
William Heinesen og
Edward Bond.
Úlfur var fæddur 22.
apríl 1935 í Fjalakettinum í Aðal-
stræti og ólst þar upp og síðar í Suð-
urgötu 6. Hann var yngstur átta
barna Rósu og Helga Hjörvar, rithöf-
undar og útvarpsmanns, en tvö systk-
inanna eru á lífi, þau Guðrún Kjarval
og Tryggvi Hjörvar. Úlfur fékk
snemma áhuga á þjóðfrelsis- og
stéttabaráttu, stundaði meðal annars
nám við Komsomolskólann í Moskvu
árin 1961 til 1962 og var á sínum yngri
árum starfsmaður Samtaka hernáms-
andstæðinga, fram-
kvæmdastjóri Æsku-
lýðsfylkingarinnar og
blaðamaður á Þjóðviljan-
um. Auk ritstarfa vann
hann að ýmsum menn-
ingarmálum. Þannig var
hann einn útgefenda
Forspils, framkvæmda-
stjóri leikfélagsins
Grímu, sat í stjórn Þýð-
ingasjóðs og Rithöfunda-
sambands Íslands. Hann
var hvatamaður að stofn-
un Bókasambands Ís-
lands og sat um tíma í menntamála-
ráði og síðar í stjórn Danska
þýðendasambandsins. Úlfur vann til
verðlauna fyrir frumsamin verk, smá-
sögur og leikrit. Smásagnasafn Úlfs,
Sjö sögur, kom út í Reykjavík 2002.
Eftirlifandi eiginkona Úlfs er
Helga Hjörvar, en þau gengu í hjóna-
band árið 1964. Börn hans eru þrjú:
Helgi, sem er kvæntur Þórhildi Elínu
Elínardóttur og eiga þau þrjár dætur,
Hákon og Rósa María.
Andlát
Úlfur Hjörvar
MAÐURINN sem fannst látinn í
sumarbústað í Grímsnesi á laug-
ardagsmorgun hlaut áverka af
mannavöldum. Ekkert er þó hægt
að segja frekar um dánarorsök
mannsins fyrr en bráðabirgðanið-
urstöður réttarkrufningar liggja
fyrir. Á líki mannsins voru hvorki
sjáanlegir áverkar eftir barefli né
eggvopn.
Þorgrímur Óli Sigurðsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi,
vildi ekkert segja um hvort grunur
léki á að manninum hefði verið ráð-
inn bani af ráðnum hug eða hvort
grunur léki á manndrápi af gáleysi.
Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi á
Litla-Hrauni vegna rannsóknar
málsins, tveir karlmenn og tvær
konur og voru þau yfirheyrð í gær.
Karl og kona sem sitja í gæslu-
varðhaldi eiga saman eins árs gam-
alt barn sem komið hefur verið í
umsjón barnaverndaryfirvalda.
Ekki liggur fyrir hvort barnið var í
bústaðnum þegar maðurinn lést.
runarp@mbl.is
Áverkar af
mannavöldum
„ÉG TALDI við fyrsta yfirlestur að
þetta bréf ætti erindi víðar. Við nán-
ari umhugsun þegar ég hringdi í
minn aðstoðarmann seinna var ég
kominn á þá skoðun að við ættum nú
að hinkra með það. Þá var skaðinn
skeður. Þetta er gert af mikilli hvat-
vísi,“ segir Bjarni Harðarson, þing-
maður Framsóknarflokks. Í gær-
kvöldi sendi hann í tölvupóstsafriti
bréf til fjölmiðla þar sem tveir
flokksbræður hans gagnrýna Val-
gerði Sverrisdóttur harðlega fyrir
þátt hennar í einkavæðingu bank-
anna á sínum tíma og afstöðu til
Evrópumála. Í tölvupóstinum biður
hann aðstoðarmann sinn um að
senda bréfið nafnlaust til fjölmiðla.
Kortéri síðar kom annað tölvubréf
frá Bjarna þar sem hann bað fjöl-
miðla um að horfa framhjá fyrra
bréfinu.
Bjarni segir það mat rétt að
gjörningurinn hafi verið ódrengileg-
Óttast að bréfsending-
in skaði samstarfið
Sendi gagnrýni á Valgerði til fjölmiðla
Valgerður
Sverrisdóttir
Bjarni
Harðarson
ur af hans hálfu. Hann hafði ekki
rætt við Valgerði um atburðinn í
gærkvöldi og átti ekki von á að það
næðist fyrir nóttina.
Hann segir bréfið endurspegla
ágreining í flokknum um Evrópu-
málin. En setur þetta ekki strik í
samstarf hans og Valgerðar og þar
með þingflokksins alls?
„Jú, ég hef áhyggjur af því,“ svar-
ar Bjarni. ben@mbl.is