Morgunblaðið - 11.11.2008, Qupperneq 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
"% "%
"% &%
$'(
#
*!+
$%
"%
"%,
ÞETTA HELST ...
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ACTAVIS og japanska lyfjafyrirtæk-
ið ASKA Pharmaceutical hafa skrifað
undir viljayfirlýsingu um stofnun
sameiginlegs samheitalyfjafyrirtæk-
is í Japan. Stefnt er að því að starf-
semi fyrirtækisins, Actavis ASKA
Co., Ltd., hefjist í apríl 2009. Actavis
mun eiga 45% hlut en Aska 55%.
Samkvæmt upplýsingum frá Acta-
vis er japanski lyfjamarkaðurinn sá
næststærsti í heimi, en notkun sam-
heitalyfja er minni í Japan en á öðr-
um af stærstu mörkuðum heims. Jap-
önsk yfirvöld ákváðu nýverið að
stefna að því að tvöfalda notkun sam-
heitalyfja í Japan, þ.e. í a.m.k. 30%
lyfjamarkaðarins fyrir árið 2012.
Í kjölfarið hafa verið settar af stað
ýmsar aðgerðir á vegum japanskra
yfirvalda til að ýta undir og styðja þá
þróun.
Frábært tækifæri
Að sögn þeirra sem til þekkja er
japanski lyfjamarkaðurinn gríðar-
lega flókinn og regluvæddur, og hef-
ur erlendum lyfjafyrirtækjum reynst
erfitt að komast inn á hann. Það mun
vera ástæða þess að Actavis velur að
fara þessa leið inn á markaðinn, með
reyndum þarlendum samstarfsaðila,
frekar en að byggja upp eigið fyrir-
tæki frá grunni.
Framlag Actavis til hins nýja sam-
eiginlega fyrirtækis er samheitalyfja-
úrval Actavis, þ.e. 650 núverandi lyf
Actavis og tæplega 400 sem nú eru í
þróun. Ennfremur hefur Actavis í
framtíðinni möguleika á að selja lyf
ASKA í gegnum alþjóðlegt dreifi-
kerfi sitt, sem nær í dag til um 60
landa.
Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri Ac-
tavis Group, segir þetta frábært
tækifæri fyrir Actavis til að komast
inn á japanska lyfjamarkaðinn, þann
næststærsta í heiminum. Yfirlýsing
japanskra stjórnvalda um að stór-
auka hlutfall samheitalyfja á mark-
aðnum næstu árin hafi verið lykil-
þáttur í ákvörðun fyritækisins um að
fara inn á þessum tímapunkti. „Við
hlökkum til að eiga langt og árang-
ursríkt samstarf við Aska, sem er öfl-
ugur samstarfsaðili með sterka stöðu
á japanska lyfjamarkaðnum.“
Takashi Yamaguchi, forstjóri Aska
Pharmaceutical, segir samstarfið
munu gera fyrirtækjunum kleift að
sameina krafta þeirra beggja. Þekk-
ingu Aska á þróunar- og markaðs-
málum í Japan og mikið lyfjaúrval
Actavis. Þannig geti hið sameiginlega
fyrirtæki nýtt styrkleika móðurfyrir-
tækjanna tveggja. Það sé markmið
Actavis Aska að verða leiðandi sam-
heitalyfjafyrirtæki á japanska mark-
aðinum.“
ASKA er japanskt frumlyfjafyrir-
tæki sem sérhæfir sig í framleiðslu,
sölu, innflutningi og útflutningi lyfja
og lækningatækja. Hjá ASKA starfa
1060 manns.
Sækir fram í Japan
Í HNOTSKURN
»Nú er markaðshlutdeildsamheitalyfja í Japan um
15%, en þarlend stjórnvöld
vilja tvöfalda hana í a.m.k.
30% fyrir árið 2012.
»Sameiginlegt fyrirtækiActavis og ASKA mun
hefja starfsemi í apríl n.k.
Actavis gerir samning við japanskt lyfjafyrirtæki um sölu
samheitalyfja þar í landi Eignast 45% í nýju fyrirtæki
Handsal Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri Actavis, og Takashi Yamaguchi,
forstjóri ASKA, handsala samkomulag fyrirtækjanna tveggja í Japan.
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
hækkaði um 0,67% í viðskiptum gær-
dagsins. Össur hækkaði um 6,24%
en Alfesca lækkaði um 5,95%.
Ákvörðun kínverskra stjórnvalda um
að verja um 600 milljörðum dala til
að styrkja hagkerfi landsins hafði já-
kvæð áhrif á hlutabréfamarkaði í Asíu
og Evrópu. Nikkei hækkaði um
5,81%, breska FTSE um 0,89% og
þýska DAX um 1,76%. Samnorræna
OMX-vísitalan hækkaði um 1,62%.
bjarni@mbl.is
Víða hækkanir
● FÆREYSKA
lögþingið sam-
þykkti síðastliðið
föstudagskvöld
að leggja 30 millj-
ónir færeyskra
króna, um 670
milljónir ís-
lenskra króna, í
nýtt hlutafé í
Smyril Line, sem gerir út ferjuna Nor-
rænu.
Í færeyska dagblaðinu Sosialurin
segir að hefði lögþingið ekki komið
Smyril Line til aðstoðar hefði verið
farið fram á gjaldþrotaskipti félags-
ins í gær. Þá hefði Norrænu verið
lagt þegar skipið kom til hafnar í
Bergen í Noregi í gærmorgun.
Ekki var sátt um aðgerðirnar til að-
stoðar Smyril Lyne í lögþinginu. Ein-
ungis tvö atkvæði gerðu gæfumun-
inn við atkvæðagreiðslu í lögþinginu.
gretar@mbl.is
Norrænu bjargað
● SÆNSKA fjármálaeftirlitið hefur afturkallað starfsleyfi sænska fjárfesting-
arbankans Carnegie. Á vef Dagens Nyheter kemur fram að ríkissjóður hafi
tekið yfir Carnegie og muni reka fyrirtækið áfram. Segir að viðskiptavinir
Carnegie muni ekki skaðast af yfirtökunni.
Á DN er haft eftir Erik Saers, framkvæmdastjóra fjármálaeftirlitsins, að rík-
issjóður hafi tekið yfir Carnegie og það komi til framkvæmda strax.
Sænska fjármálaeftirlitið hefur að undanförnu skoðað hvort reglur hafi ver-
ið brotnar eftir að í ljós kom, að Carnegie lánaði einum viðskiptavini 1 milljarð
sænskra króna og þurfti að afskrifa lánið á þriðja ársfjórðungi.
Samkvæmt hluthafalista sem birtur er á vef Dagens Industri þá er Böös &
Enblad stærsti hluthafinn í Carnegie með 8,4%, Moderna Finance, sem er í
eigu Milestone, fjárfestingarfélags Karls Wernerssonar, á 6,4%. Harris Asso-
ciates með 5,3% og Swedbank Robur með 4,8%. Sænska ríkið hyggst selja
Carnegie í framtíðinni. guna@mbl.is
Sænski bankinn Carnegie sviptur starfsleyfi
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar
vegna þeirrar alvarlegu stöðu og miklu áskorana
sem íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir.
Hvað er til ráða? Hvernig geta fyrirtækin lifað
hremmingarnar af? Hver er vilji íslensks atvinnulífs?
Hvernig byggjum við upp íslenskt atvinnulíf til framtíðar?
SA hvetja félagsmenn eindregið til að mæta
og koma sjónarmiðum sínum á framfæri
Erindi flytja:
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1
Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins
Umræður og fyrirspurnir úr sal
Fundarstjóri er Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi
Skráning og morgunkaffi kl. 8:00-8:30
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef
Samtaka atvinnulífsins www.sa.is
R Ö D D
A T V I N N U L Í F S I N S
Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
FIMMTUDAGINN 13. NÓVEMBER
KL. 8 :30-10:00
GULLTEIG