Morgunblaðið - 11.11.2008, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.11.2008, Qupperneq 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 FUNDIST hafa nákvæmar teikningar af Auschwitz, útrýmingarbúðum nasista í Pól- landi, og má af þeim ráða, að það var frá byrj- un ljóst hvað þar ætti að fara fram. Voru teikn- ingarnar birtar í þýska dagblaðinu Bild í fyrradag en þá voru 70 ár liðin frá Krist- alsnóttinni, sem svo var kölluð, upphafi skipu- legra ofsókna nasista gegn gyðingum. Teikningarnar fundust í íbúð í Berlín og eru frá árunum 1941 til 1943. Eru þær 28 talsins og sýna meðal annars hliðið að Auschwitz við enda brautarteinanna. Sýna þær líka „aflúsunarstöð“ ásamt „Gaskammer“, gas- klefa, og líkbrennsluofnum. Á eina af teikningunum hef- ur Heinrich Himmler, yf- irmaður SS-sveitanna og helsti skipuleggjandi Helfar- arinnar, ritað nafn sitt grænu letri. Dr. Hans-Dieter Krei- kamp, yfirmaður rík- isskjalasafnsins í Berlín, segir, að fundurinn sé „ákaf- lega mikilvægur“. Í viðtali við Bild sagði hann, að teikningarnar væru afdráttarlaus sönnun fyrir skipulögðu þjóðarmorði, Helförinni gegn gyðingum. Segir hann, að augljóst sé, að allir þeir, sem komu að skipulagningu og byggingu Auschwitz-búðanna, hafi vitað, að þar ætti að drepa fólk í stórum stíl. Óhugnanlegasta teikningin sýnir Aflús- unarstöð. Úr „búningsklefa“ þar sem fólk af- klæðist liggur leiðin í „bað- og sturtuklefa“ og þaðan í klefa eða sal þar sem fólk klæðist aft- ur. Þar eru dyr að tveimur forherbergjum, úr þeim er gengið inni lítinn gang og því næst tekur við allstór salur. Þar stendur svart á hvítu á teikningunni: „Gaskammer“. Teikningarnar eru líka merkilegar fyrir það, að þær sýna, að fjöldamorðin á gyðingum voru ekki ákveðin á svokölluðum Wannsee-fundi í Berlín í janúar 1942, heldur miklu fyrr. Hingað til hefur verið talið, að á þeim fundi hafi Die Endlösung, „lokalausnin á gyðingavandamál- inu“ verið ákveðin í fyrsta sinn. svs@mbl.is Í HNOTSKURN » Í Auschwitz voru stærstuútrýmingarbúðir nasista í síðari heimsstyrjöld. Voru þar þrjár aðalbúðir en 40 und- irbúðir. Voru þær teknar í notkun árið 1940. » Talið er, að í Auschwitzhafi allt að 1,6 milljónir manna verið líflátnar, þar af 90% gyðingar. Aðrir voru m.a. Pólverjar, Rússar, sígaunar og fleiri. Teikningar af Auschwitz fundnar Börn í Auschwitz. Helförin sýnilega afráðin fyrir Wannsee-fundinn FÍLLINN Gumlaitong, sem er fjög- urra ára, ýtir af stað blómabáti með stóru kerti í upphafi Loy Kratong- hátíðarinnar í Taílandi en hún er meðal annars haldin til heiðurs gyðju vatnsins, Phra Mae Khongkha. Blómabáturinn er líka táknrænn fyrir hreinsun og end- urnýjun og ber í burtu alla reiði og óvild í annarra garð og gerir fólki kleift að hefja nýtt og betra líf í sátt við guð og menn. AP Blómabátur ber í burt reiði og óvild Eftir Boga Þór Arason og Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur BUSH-HJÓNIN tóku á móti Mi- chelle og Barack Obama, verðandi forsetahjónum, í Hvíta húsinu í gær. Þar áttu Bush og Obama fund undir fjögur augu á meðan eiginkonur þeirra skoðuðu vistarverur forseta- hjónanna. Fundurinn er haldinn fyrr en venja er með slíka fundi en það kemur ekki á óvart í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem bíður nýs forseta. Obama býr sig undir að hnekkja nokkrum af umdeildustu ákvörð- unum George W. Bush forseta fljót- lega eftir að hann tekur við embætt- inu 20. janúar. 200 tilskipanir til athugunar Bush er álitinn hafa farið nokkuð frjálslega með vald sitt sem forseti til að framfylgja stefnu sinni með til- skipunum án þess að leita eftir sam- þykki þingsins. The Washington Post segir að nefnd, sem undirbýr valdatöku Obama, hafi tekið saman lista yfir um 200 forsetatilskipanir sem hún telji að komi til greina að ógilda eða breyta. John Podesta, sem fer fyrir nefndinni, ræddi þetta mál í sjón- varpsviðtali í fyrrakvöld og nefndi sérstaklega tvær umdeildar ákvarð- anir sem líklegt væri að Obama myndi hnekkja. Í fyrsta lagi til- greindi hann forsetatilskipun sem takmarkar opinbera styrki til rann- sókna á stofnfrumum úr fósturvísum og í öðru lagi áform Bush um að heimila umdeildar gas- og olíu- boranir í Utah-ríki. The Washington Post sagði að með því að hnekkja ákvörðunum Bush myndi Obama í nokkrum til- vikum efna loforð, sem hann gaf í kosningabaráttunni, en í öðrum til- vikum hygðist hann taka upp stefnu Bills Clinton og endurnýja tilskip- anir sem voru numdar úr gildi á átta ára valdatíma Bush. Meðal annars er búist við að Obama ógildi til- skipun sem bannar alþjóðlegum samtökum, sem fá fjárframlög frá Bandaríkjastjórn, að veita konum ráðgjöf um fóstureyðingar, jafnvel í löndum þar sem þær eru heimilaðar. Podesta sagði að nefnd Obama myndi fylgjast grannt með forseta- tilskipunum sem Bush kynni að gefa út áður en hann lætur af embætti. „Stjórn Bush beitir sér enn af hörku fyrir aðgerðum sem ég tel að þjóni ekki hagsmunum landsins,“ sagði Podesta, sem var skrifstofustjóri Hvíta hússins í forsetatíð Clintons. Breyting á næsta leiti Nefnd Obama telur koma til greina að ógilda 200 tilskipanir sem settar hafa verið af núverandi forseta George W. Bush Reuters Móttaka Barack Obama kom í fyrsta sinn inn á forsetaskrifstofu Hvíta hússins í gær þar sem hann ræddi við Bush í einrúmi í á aðra klukkustund.  ! "  ##   $ % &  ' ( )   )      $   $)     $  *  ')) ! )+& ) (    ,  $ ) )   %(  ) ) %+&  & ,      "     -"./                               !           "#  $   %     $           012034 0  "5166" 327897 :2;6 <=>?=@A823328BB8 &      ''  (  $   (  '   )    (  ) * +  $          !  " $  # ,     )      '' -  $  $ (   .         ) . /      $    0  ''   (  * (          $1   '           ! * (   C 982 6??957A82 ,  !       $ '' 2     D + # "# $% ,         %     (    (  '  2  )  )  ( '   &  $  3                <EF  G,  E % ) G ,   *) '  $  $% 4   5 2%      ) %   )  (  #' ( )% $  "  '   )    (  (        +  2 3 )#) * ( )  $EF *%!% 6   77   2 3 ## FF   ++!    ! ''2  (    " *)  ) , 2      *  #    (    -  ./  9)  H ) /8  / ( (*  EKKI er óalgengt, að fólk kjósi held- ur að búa saman en ganga formlega í hjónaband en réttindi þessa fólks og barna þess samkvæmt erfðalögum eru hins vegar mjög lítil. Á því verð- ur þó breyting í Noregi um næstu áramót. Áætlað er, að í Noregi séu 240.000 pör í sambúð, þar af 140.000 með barn eða börn. Fjöldi hjóna er aftur á móti um 832.000 að því er fram kemur í Aftenposten. Mörg dæmi eru um, að fólk, sem er í sambúð, verði illa úti fjárhags- lega missi það makann en á því verð- ur ráðin allmikil bót í Noregi um ára- móti. Þá taka gildi ný erfðalög, sem munu tryggja betur réttindi sam- búðarfólks en dæmi eru um annars staðar. Með lögunum verður sambúðar- formið ekki alveg jafnrétthátt hjóna- bandi en nefna má, að sambúðarfólk, sem á saman börn, erfir hvort annað að ákveðnu hámarki. Er þessi réttur ríkari en réttur þeirra barna, sem hvort um sig átti áður en sambúðin hófst. Hafi parið átt börn saman, má eftirlifandi maki sitja áfram í óskiptu búi. Búist við málastappi Viðbúið þykir, að ýmis mál muni rísa út af lögunum og þá einkanlega frá fyrri börnum sambúðarfólks. Eins og fyrr segir á að ríkja gagn- kvæmur réttur milli fólks í sambúð að ákveðnu marki en það getur þýtt, að fyrri börn fái ekkert í sinn hlut. svs@mbl.is Lög sett um erfða- rétt sambúðarfólks

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.