Morgunblaðið - 11.11.2008, Síða 19
Daglegt líf 19ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
Nú fer sá árstími í hönd þegar hangi-
kjötsreykinn leggur frá Fjallalambi
yfir þorpið, sérstaklega í sunnangolu.
Hangikjötsilmurinn tekur við af
sviðalyktinni sem fylgir sláturtíðinni
en henni lauk 20. október sl. Bæði
hangikjöt og svið frá Fjallalambi eru
eftirsóttar vörur enda vandfundin
svið sem verkuð eru með gamla lag-
inu líkt og hér tíðkast.
Lífið gengur sinn vanagang enn sem
komið er þrátt fyrir kreppuna enda
viðbrigðin hér fyrir norðan mun
minni en á suðvesturhorninu þó auð-
vitað finni allir fyrir verðbólgu og
óhagstæðri gengisþróun. Oft var þörf
en nú er nauðsyn fyrir landann að
huga að því að velja íslenskt. Enn
fremur er mikilvægt að landsbyggð-
arfólk líti sér nær og horfi í kringum
sig í sinni heimabyggð þegar kaupa á
vöru og þjónustu eða eins og segir í
máltækinu „hollur er heimafenginn
baggi“. Þetta á ekki síst vel við nú, í
aðdraganda jólanna, þegar almenn-
ingur mun að vanda leitast við að
gleðja sig og sína þrátt fyrir þreng-
ingarnar.
Spurningin er hvort tími landsbyggð-
arinnar sé kominn á ný, þar sem ætla
má að ástandið feli í sér ákveðin
tækifæri utan þéttbýlisins við Faxa-
flóa.
Um þetta leyti ársins er hið fé-
lagslega vetrarstarf komið í nokkuð
fastar skorður. Þannig heldur kven-
félagið Stjarnan sína matarfundi
fyrsta fimmtudag í mánuði þar sem
kvenfélagskonur ræða ýmis málefni
samfélaginu til heilla en þeirra aðal-
verkefni á næstunni mun vera skipu-
lagning þorrablótsins 2009 sem hald-
ið verður 31. janúar.
Kirkjustarfið er á sínum stað, mán-
aðarlegar guðsþjónustur, kirkjuskóli
og TTT starf aðra hverja viku,
kirkjukórinn kemur saman vikulega
en framundan eru hin hefðbundnu
verkefni hjá söngfólki á aðventu og
jólum, auk þess sem stefnt er að
kóramóti í sýslunni í janúar þar sem
dagskráin verður helguð norður-
þingeyskum laga- og textahöfundum.
Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir þjónar
nú við Snartarstaðakirkju, sem og
aðrar kirkjur í Skinnastað-
arprestakalli, í námsleyfi sr. Jóns Ár-
manns Gíslasonar til áramóta.
Prjónakaffi í Versluninni Bakka hef-
ur reynst nokkuð vinsæl samkoma
undanfarna vetur, þar hittist fólk á
öllum aldri með hannyrðir sínar yfir
kaffibolla og spjallar saman. Prjóna-
kaffi er auglýst eftir hádegi á
fimmtudögum eins og verið hefur.
Sigríður Kjartansdóttir sjúkraþjálf-
ari stendur fyrir „heilsurækt á haust-
dögum“ sem samanstendur af leik-
fimi tvisvar í viku ásamt útivist þar
sem stefnan er tekin á sólstöðugöngu
20. desember.
Framkvæmdum er um það bil að
ljúka við nýbyggingu félags- og þjón-
ustumiðstöðvar eldri borgara við Ak-
urgerði en þó er óljóst hvenær hægt
verður að vígja húsið og taka það í
notkun þar sem ekki mun vera hægt
að afhenda húsgögn og annan búnað í
húsið vegna kreppunnar.
Benedikt Björgvinsson, sem starf-
rækt hefur Gistiþjónustuna að Ak-
urgerði 7 um árabil, hyggst nú
stækka við sig og hefur í því skyni
fest kaup á fasteigninni að Akurgerði
1. Gistiþjónustan er aðili að keðju
Farfugla, hostelling international.
www.hostel.is
Börn á Kópaskeri hafa ástæðu til að
gleðjast yfir nýjum leiktækjum sem
komið hefur verið fyrir á lóð Kópa-
skersskóla. Trésmiðjan Val á Húsa-
vík hefur yfirumsjón með verkinu
ásamt með starfsmönnum áhalda-
húss Norðurþings.
Á netinu má fylgjast með framhalds-
sögu um afdrif göngubrúar yfir
Snartarstaðalæk sem komið var fyrir
í sumar skammt frá ósnum þar sem
lækurinn rennur til sjávar. Göngubrú
þessi er raunar langþráð samgöngu-
bót fyrir útivistarfólk og skapar
ákveðna fjölbreytni fyrir þá sem
stunda gönguferðir sér til heilsubót-
ar. Svo virðist sem þeir félagar Kári
og Ægir séu mótfallnir staðsetning-
unni því tvívegis hafa þeir í stór-
brimum undanfarið gjörbreytt um-
hverfi brúarinnar með þeim hætti að
lítið gagn er orðið að sjálfri brúnni.
Sjá nánar á www.dettifoss.is
KÓPASKER
Kristbjörg Sigurðardóttir fréttaritari
Morgunblaðið/Lillý Óladóttir
Í kirkju Séra Hildur Inga þjónar fyrir altari í Snartarstaðakirkju.
Hjálmar Freysteinsson varparfram spurningu í limruformi:
„Teketill eða te Ketill?“
Þótt gáfnaljós Guðfinna sé
gerðı́ún á náminu hlé.
Svo keypti hún te til
að táldraga Ketil.
Sá var mjög sólginn í te.
Björn Ingólfsson spreytir sig
einnig á limruforminu og yfirskrift-
in er: „Andante con moto“:
Þegar Vilhjálmur heimsækir Vivian
er venja hjá henni að þríf’ í hann
og dansa við hann
þennan dáðlausa mann
svona rétt til að reyna að fá líf í hann.
Svo: „Allegro furioso“:
Vargur og gribba er Vivian.
Þegar Vilhjálmur fékk ekki líf í hann
varð kerlingin óð
og öskraði: Blóð!
og kastaði hárbeittum hníf í hann.
Hjálmar Jónsson gaf brúðhjón
saman í Lágafellskirkju og flutti
limru í fagnaði í Hlégarði eftir at-
höfnina:
Verði þeim brautirnar beinar
og bjartar á allar greinar.
Hér óskum við þess
svona ánægð og hress.
Til hamingju, Áslaug og Einar.
Jón Kristjánsson, faðir brúðgum-
ans, gat ekki á sér setið og svaraði:
Til himins skal huganum lyfta
og hjúskapnum má ekki rifta.
Hjálmar er klár,
það hrynja mörg tár
því hann er svo góður að gifta.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af vargi og gribbu
mbl.issmáauglýsingar
„Ó, skelfing! skelfing! skelfing!“
Dagbók Hélène Berr hefur verið líkt við
„Dagbók Önnu Frank“, báðar stúlkurnar
létu lífið skömmu fyrir stríðslok en höfðu
lengi barist við að gera það besta úr
hörmulegum aðstæðum. Hélène byrjaði
að skrifa dagbók árið 1942 en síðasta
færslan er daginn sem hún er tekin
höndum, og endar á tilvitnun í Macbeth:
„Ó skelfing! skelfing! skelfing!“
Einstaklega vel skrifuð, hjartnæm og
hrífandi enda hlaut bókin gríðarlega
athygli þegar hún kom út í Frakklandi
á árinu og þaut beint á metsölulista.
Örlítið um stjórnskipulegan neyðarrétt
Ragnhildur Helgadóttir prófessor við lagadeild HR
Samspil neyðarlaganna og hins almenna
fullnusturéttarfars
Sigurður Tómas Magnússon sérfræðingur við
lagadeild HR
Reglur stjórnsýsluréttar og neyðarlögin
Margrét Vala Kristjánsdóttir lektor við lagadeild HR
Gildi yfirlýsinga ráðamanna að þjóðarétti
Þórdís Ingadóttir dósent við lagadeild HR
Álitaefni varðandi tilskipun EB um innlána-
tryggingakerfi
Gunnar Þór Pétursson sérfræðingur við lagadeild
HR
Grunnhugmyndin um réttarríki á viðsjárverðum
tímum
Oddný Mjöll Arnardóttir prófessor við lagadeild HR
MEÐ LÖGUM SKAL (NÝTT)
LAND BYGGJA
LÖGFRÆÐILEG ÁLITAMÁL Á UMBROTATÍMUM
Fundarstjóri er Guðni Th. Jóhannesson
lektor við lagadeild HR.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
www.lagadeild.is
Lagadeild HR stendur fyrir hádegisfundi miðvikudaginn
12. nóvember 2008 frá kl. 12:00-13:30 í stofu 101 í
Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.
Erindi flytja: