Morgunblaðið - 11.11.2008, Side 34
34 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
EITT helsta meistaraverk end-
urreisnarinnar er nú á leiðinni aftur
á Uffizi-safnið í Flórens eftir tíu ára
viðgerðir.
María og glófinkan er verk eftir
Rafael frá árinu 1502. Það sýnir
Maríu mey með þá Jesús og Jóhann-
es skírara sem börn við fætur sér.
Jóhannes heldur á glófinku sem Jes-
ús strýkur og er fuglinn talinn tákna
krossfestinguna.
Málverkið hefur orðið fyrir alls-
kyns hnjaski og brotnaði í 17 parta
árið 1547. Samtímamaður Rafaels
negldi það saman og málaði yfir
samskeytin til þess að fela þau. Það
komst seinna í eigu Medici-
fjölskyldunnar og í gegnum tíðina
voru frekari tilraunir gerðar til end-
urbóta sem skemmdu það enn frek-
ar.
Forverðir hjá fyrirtækinu Opificio
delle Pietre Dure í Flórens voru því
einstaklega varkárir við vinnu sína
til þess að endurtaka ekki fyrri mis-
tök. Verkið var rannsakað með rönt-
genmyndavélum í tvö ár og fimmtíu
manna teymi var búið til í kringum
viðgerðina sem samanstóð af for-
vörðum, ljósmyndurum og viðarsér-
fræðingum. Sýning verður haldin
þar sem viðgerðirnar verða kynntar
almenningi, en í næsta mánuði verð-
ur því skilað aftur á Uffizi-safnið.
María og
glófinkan á
leiðinni heim
Vandaverk Unnið að viðgerðinni.
AFAR verðmætt
safn fyrstu út-
gáfna verka Willi-
ams Shake-
speares og verka
sem höfðu áhrif á
skáldið verður
senn flutt aftur til
Bretlands. John
Wolfson, banda-
rískt leikskáld og
safnari, hefur
heitið að færa Globe-leikhúsinu rúm-
lega 450 bókverk. Þar á meðal er
fyrsta prentun með 18 leikritum
Shakespeares, sem voru bundin inn
skömmu eftir dauða skáldsins.
Wolfson byrjaði að safna verk-
unum fyrir þremur áratugum. Í
safninu eru leikrit frá 16., 17. og 18.
öld, auk texta eftir höfunda sem talið
er að hafi haft áhrif á Shakespeare.
Verkunum verður fundinn staður í
nýrri rannsóknarmiðstöð við Globe.
Leikhúsið, sem var reist árið 1997,
er endurgerð samnefnds leikhúss
þar sem Shakespeare færði mörg
leikverk sín á svið.
Samkvæmt The Times er safn
Wolfsons víðfeðmt. Þar er meðal
annars að finna verk sem skáldið
studdist við, er hann vann að leik-
ritum sínum, auk ýmissa verka sam-
tímahöfunda hans sem gefa góða
innsýn í tímann þegar hann var uppi.
Fyrsta útgáfa verka Shake-
speares var prentuð árið 1623, í 750
eintökum. Nú er talið að 228 þeirra
séu enn til.
Wolfson vildi ekki sjá safnið hlut-
að sundur eftir sinn dag, enda væri
heildin mun verðmætari en einstakir
hlutar hennar.
Verðmæti
gefin Globe
William
Shakespeare
LEIKHÓPURINN Á senunni
verður með tónleika undir yf-
irskriftinni Paris at night í
Samkomuhúsinu á Akureyri
annað kvöld.
Tónleikarnir eru byggðir á
ljóðum Jacques Prévert og
tónlist Joseph Kosma, en þýð-
ingar eru eftir Sigurð Pálsson.
Leikarar og söngvarar í sýn-
ingunni eru Jóhanna Vigdís
Arnardóttir og Felix Bergsson.
Hljómsveitinni stjórnar Karl Olgeirsson, en auk
hans skipa hljómsveitina þeir Róbert Þórhallsson
og Stefán Már Magnússon.
Tónleikarnir verða í Samkomuhúsinu annað
kvöld klukkan átta.
Tónlist
Parísartónleikar
á Akureyri
Jóhanna Vigdís
Arnardóttir
ÁRNI Heimir Ingólfsson, tón-
listarfræðingur, heldur næstu
fjögur miðvikudags- og mánu-
dagskvöld námskeiðið Schu-
bert og Schumann – Meistarar
ljóðasöngsins. Er það haldið í
samstarfi Endurmenntunar og
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
og er í Salnum í Kópavogi.
Franz Schubert og Robert
Schumann eru meðal mestu
meistara sönglagagerðar fyrr
og síðar. Á námskeiðinu verður fjallað um stærstu
ljóðaflokka þeirra. Gestasöngvarar verða Eyjólf-
ur Eyjólfsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Bragi
Bergþórsson. Námskeiðið er fjögur kvöld og kost-
ar kr. 18.900.
Tónlist
Fjallar um meist-
ara ljóðasöngsins
Árni Heimir
Ingólfsson
HALLFRÍÐUR Þórarins-
dóttir, fræðimaður í Reykja-
víkurAkademíunni, flytur í
dag, þriðjudag, hádegisfyr-
irlestur í Þjóðminjasafninu.
Fyrirlesturinn, sem verður
fluttur í fyrirlestrasal safnsins,
kallast Júðar, negrar og tat-
aralýður - ótti, ógn og meintir
útlenskir óvinir Íslands.
Fyrirlestur Hallfríðar er
hluti af fyrirlestraröð Sagn-
fræðingafélags Íslands sem kallast Hvað er að
óttast?
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins
standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Sagnfræði
Meintir útlenskir
óvinir Íslands
Hallfríður
Þórarinsdóttir
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Í VOR kom út bókin Eg skal
kveða um eina þig alla mína daga
þar sem safnað er saman ást-
arljóðum Páls Ólafssonar. Bókin
hefur hreinlega mokast út og
sömu sögu má segja um plötuna
Söngur riddarans er út kom árið
2001, en þar er að finna ljóð Páls
við tónlist. Páll var ómenntað al-
þýðuskáld sem sló mikinn sam-
hljóm í hjörtum Íslendinga og ljóð
hans hafa lifað góðu lífi allt fram á
þennan dag.
Potturinn og pannan í báðum
þessum verkefnum er Þórarinn
Hjartarson en vegna þessa „Páls-
æðis“ hefur hljómveitinni er
prýddi diskinn verið raðað saman
á nýjan leik. Hefur hún gert all-
nokkuð af því að spila að undan-
förnu og hefur verið tekið með
með kostum og kynjum, hvar sem
hún hefur talið í. Hljómsveitin er
skipuð Þórarni Hjartarsyni, sem
leikur á gítar og syngur, Ösp
Kristjánsdóttur söngkonu, Hjör-
leifi Valssyni fiðlara, Kristni H.
Árnasyni gítarleikara og Birgi
Bragasyni bassaleikara.
Upp í ljósið
„Þessi hljómsveit var vakin upp
með lítillega breyttri áhöfn,“ út-
skýrir Þórarinn símleiðis frá Ak-
ureyri. „Það voru samantekin ráð
hjá mér og forleggjaranum að ýta
henni úr vör á nýjan leik en til-
efnið var að sjálfsögðu útkoma
bókarinnar. Þetta hefur tekist vel
enda einstaklega samstæður hóp-
ur sem að þessu stendur.“
Þórarinn rifjar upp að gott
gengi áðurnefnds hljómdisks hafi í
raun réttri ýtt við honum hvað
bókina varðar
„Sannast sagna var það Kristján
Karlsson sem stakk upp á þessu
við mig, að það væri hreinlega
nauðsynlegt að safna saman ást-
arljóðum Páls. Svo þegar disk-
urinn fékk svona góðan hljóm-
grunn fór ég að vinna skipulega
að þessu verkefni. Það örvaði mig.
Ég hafði reyndar líka unnið
nokkra útvarpsþætti um Pál. Það
má eiginlega segja að ég lifi í Páli,
aðrir lifa í Guði. Handritið hrakt-
ist nú eitthvað á milli forlaga en
við náðum svo höfn. Mér hafa
fundist þessi ljóð vera nokkurs
konar óátekin náma að mörgu
leyti, einhvern veginn hefur aldrei
tekist að lyfta þeim upp í ljósið.“
Það er Salka sem gefur út og sé
tillit tekið til viðbragða er þetta
ein af þeim bókum sem var greini-
lega beðið eftir. Þórarinn segist
enda hálfpartinn furða sig á því að
einhver hafi ekki verið búinn að
þessu fyrir löngu.
Hiti, ástríða
Þórarinn segir að ljóðin felli sig
alveg fjarskalega vel að tónlist.
„Páll hefur verið sunginn alla
tíð, ljóðin eru þessleg að hann
syngur sig eiginlega sjálfur. Það
er einboðið að ástarljóðin fari
þessa leið, þau bjóða sig sjálfvirkt
fram sem söngefni, vegna hitans
sem er í þeim og ástríðunnar.“
Efnisskrá kvöldsins er byggð
upp sem einslags söngleikur.
„Bókin er í fjórum kverum og
við setjum kvöldið upp í anda
hennar, þ.e. þetta eru fjórir þættir
sem ganga síðan líkt og söng-
leikur,“ útskýrir Þórarinn.
„Söngleikurinn“ kallast Ragnhild-
ur og er þar vísað í konu Páls,
Ragnhildi Björnsdóttur en ást-
arljóðin mynda í tímaröð ást-
arsögu þeirra hjóna.
Hljómleikarnir fara fram í Iðnó
á morgun eins og áður segir og
hefjast þeir klukkan 20.30.
Ég lifi í Páli, aðrir lifa í Guði
Ástarljóð Páls Ólafssonar sungin og leikin í Iðnó á miðvikudaginn
Ástmögurinn Sjarminn stafar úr hverjum drætti í þessari ljósmynd af Páli.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
SÓPRANSÖNGKONAN Arnbjörg María
Danielsen frumflutti á dögunum lög eftir
tónskáldið, stjórnandann og píanóleikarann
kunna André Previn. Tónleikarnir voru
haldnir í Mozarteum í Salzburg þar sem Arn-
björg stundar framhaldsnám og lék hann
sjálfur undir.
„Þegar maður frumflytur verk þá er það
eins og að vera með hreinan, hvítan striga til
að mála á. Það eru engar fyrirmyndir og eng-
ar upptökur til að hlusta á,“ segir Arnbjörg.
„Þetta var mjög skemmtilegt, hann er kom-
inn til ára sinna, en spilar enn feikivel á píanó
og stjórnar enn mikið. Það er sérstaklega
skemmtilegt að fá að vinna með tónskáldinu
sjálfu því þá fær maður að vita beint hvað
hann hefur í huga með ákveðnum hljómi eða
blæbrigðum í músíkinni.“
Hún útskrifast frá Mozarteum í vor og er
þegar farin að syngja í óperunni í Salzburg
og víðar.
Hreinn, hvítur strigi
Sópran og píanó Arnbjörg María Danielsen segir André
Previn enn vera feikigóðan píanóleikara.
Arnbjörg María frumflutti verk eftir André Previn
Í HNOTSKURN
»André Previn hefur bæði fengiðÓskars- og Grammyverðlaun á
ferlinum og m.a. verið aðalstjórn-
andi sinfóníuhljómsveitanna í Lond-
on og Los Angeles.
Hún var alla tíð ein-
lægur baráttumaður
fyrir frelsi og jafnrétti 40
»
Ljóðasafn Páls Ólafssonar rennur
út líkt og heitar lummur eins og
Þórarinn orðar það og vel er geng-
ið á aðra prentun. Þá er fjórða
upplagið af plötunni Söngur ridd-
arans nánast uppurið. En af hverju
þessar óhemju vinsældir?
„Ég tel að platan eigi býsna
stóran þátt í vinsældum bók-
arinnar,“ segir Þórarinn.
„En númer eitt er skáldið sjálft,
sem á alveg einstakan sess í ís-
lenskum bókmenntaheimi. Snilld
hans sem hagyrðings er óumdeild,
hagmælska hans svo leikandi að
orðin ná eyrum fólks auðveldlega.
Það eru líka aðrir tímar í dag; sé
t.d. miðað við það þegar safn sem
Kristján Karlsson tók saman kom
út árið 1971. Í þá daga tóku menn
ekki kveðskap af þessu tagi í fang-
ið, tímarnir voru líklega of vits-
munalegir og rómantík og tilfinn-
ingasemi áttu ekki upp á
pallborðið. Þó svo að menn þætt-
ust brattir í frjálsum ástum …“
Líkt og heitar lummur