Morgunblaðið - 11.11.2008, Qupperneq 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
Fólk
ÞEIR hafa heldur betur undið upp á sig sam-
stöðutónleikarnir sem Bubbi fékk hugmyndina
að á dögunum. Blaðamannafundur var í gær
haldinn á Múlakaffi þar sem aðstandendur tón-
leikanna útskýrðu fyrir blaða- og fréttamönnum
markmið tónleikanna en þeir fara fram næsta
laugardag í Laugardalshöll undir yfirskriftinni
„Áfram með lífið“. Að sögn Láru Ómarsdóttur,
fjölmiðlatengils hátíðarinnar, eru engin samtök
eða pólitískt afl á bak við tónleikana og þaðan af
síður er verið að berjast fyrir einu eða neinu.
„Við viljum bara að þjóðin fái að gleðjast saman
þennan dag og við hvetjum fyrirtæki og sveit-
arfélög til að taka þátt og gleðjast með okkur.“
Eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu
hafa fjölmargar íslenskar sveitir fylkt sér að
baki Bubba og boðað komu sína á laugardaginn.
Má þar nefna Lay Low, Sálina hans Jóns míns,
Ham, Ragnheiði Gröndal, Stuðmenn, Baggalút,
Poetrix, Buff, Ný dönsk og nú síðast í gær bætt-
ist raftónlistarsveitin FM Belfast við. Ókeypis er
á tónleikana og allir listamennirnir sem og
starfsmenn tónleikanna gefa vinnu sína. Tón-
leikarnir eru unnir í samvinnu við Rás 2, Bylgj-
una og Morgunblaðið sem og fjölmörg önnur fyr-
irtæki eins og Exton, Vatikanið, midi.is og fleiri.
Leigan af Laugardalshöll hefur verið felld niður
og unnið er að því að fá Reykjavíkurborg til að
taka þátt í deginum og bjóða frítt í sund eða í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Ákvörðun þess
efnis verður tekin hjá borginni í dag.
hoskuldur@mbl.is
Tekur Reykjavíkurborg þátt í kreppudegi?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Engin pólitík hér Listamennirnir komu saman í
Múlakaffi í gær og útskýrðu fyrirkomulagið.
Í kjölfar hruns bankakerfisins
hafa hinir og þessir stigið fram og
bent á að þeir hafi séð fyrir þær
hamfarir sem nú dynja á þjóðinni
og víst er það svo að margir voru
þegar byrjaðir að vara við yfirvof-
andi heimskreppu á síðasta ári og
sumir sáu hamfarirnar í kortunum
jafnvel enn fyrr. Fáir komast þó
með tærnar þar sem Bubbi Morth-
ens hefur hælana hvað spádóms-
gáfuna varðar því eins og bent
hefur verið á á aðdáendasíðu tón-
listarmannsins kom fyrir heilum
tíu árum út platan Arfur þar sem
lagið „Í nafni frjálshyggu og frels-
is“ er að finna. Bubbi spáir þar
ekki bara endalokum frjálshyggj-
unnar heldur mætti lesa síðasta
erindi lagsins eins og það fjallaði
beinlínis um uppákomuna við Al-
þingishúsið nú um helgina:
Dómskerfið kalkað grafarstæði
/ Kuldinn þar smælingjann bítur /
Unga manninn á Hraunið senda /
meðan skilorðið hvítflibbinn hlýt-
ur.
Ótrúleg spádómsgáfa
Bubba Morthens
Edduverðlaunin verða veitt í tí-
unda sinn við hátíðlega athöfn í Há-
skólabíói á sunnudaginn, en Sjón-
varpið sendir beint út frá hátíðinni.
Kynnir kvöldsins verður ekki af
verri endanum því Halla Vilhjálms-
dóttir kemur alla leið frá Lund-
únum til að taka verkefnið að sér.
Halla er ekki alls ókunnug kynnis-
starfinu því hún var kynnir X-
Factor-þáttanna sálugu sem sýndir
voru á Stöð 2 ekki alls fyrir löngu. Í
kjölfarið flutti hún til Lundúna þar
sem hún hefur gert garðinn fræg-
an, en hún hefur til að mynda ný-
lokið við að leika í hrollvekjunni
Ghost Machine þar sem hún fer
með eitt af stærstu hlutverkunum.
Annars er búist við að Brúðgumi
Baltasars Kormáks raki til sín verð-
launum á Eddunni, en myndin hlaut
hvorki fleiri né færri en 14 tilnefn-
ingar, fjórum fleiri en næsta mynd
á eftir, Reykjavík Rotterdam.
Halla kynnir
Edduverðlaunin
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG skrifaði bók um fyrsta árið eftir
að ég greindist HIV-jákvæður. Einn
félagi minn manaði mig svo upp í að
gera svona dagatal með bókinni, og
þá rann upp fyrir mér samhengið
milli dagatalsins og þess að segja
söguna. Í raun og veru er nefnilega
auðveldara að sýna á sér líkamann
heldur en að segja söguna því það
eru náttúrlega allir með líkama, en
ekki allir með svona sögu.“
Þannig lýsir Eldur Ísidór aðdrag-
anda þess að hann ákvað að gefa út
dagatal með nektarmyndum af sjálf-
um sér og opna um leið sýningu á
myndunum, en hún verður opnuð á
Sólon á fimmtudagskvöldið. Hug-
myndin kviknaði á Facebook og Eld-
ur ákvað að sjá hvort 5.000 manns
myndu lýsa áhuga á að sjá slíkt
dagatal. Það gekk eftir á skömmum
tíma, og Eldur varð að standa við
stóru orðin. „Þannig að ég fékk ljós-
myndara með mér sem heitir Sheila
Michelle og við ákváðum að taka
bara myndir úr daglegu lífi. Það er
ekkert í þessu sem er hægt að
tengja við kynferðislegar athafnir.
Ég er sem sagt nakinn að fást við
dagleg störf á myndunum,“ segir
Eldur og bætir við að það hafi verið
furðulítið mál að koma nakinn fram.
„Fyrst var ég drullu-stressaður,
en svo lærir maður að slappa af.
Nokkrar myndir eru meira að segja
teknar á almannafæri og ég þurfti
einu sinni að hlaupa undan löggunni.
Á einni myndinni er ég nefnilega á
miðri götu í Tottenham-hverfinu að
hoppa á trampólíni. Þegar við vorum
að klára kom lögreglubíll og fór að
elta okkur, þannig að ég þurfti að
fela mig í ruslagámi.“
Umræða á undanhaldi
Bók Elds heitir Ég er ennþá ég og
fjallar um fyrsta árið eftir að hann
greindist HIV-jákvæður. Í bókinni
er meðal annars komið inn á hvernig
fjölskylda hans brást við fréttunum,
vinir, kunningjar og atvinnurek-
endur. Bókin kemur í verslanir á
fimmtudaginn, á sama tíma og daga-
talið sem heitir Ég er nakinn. Bókin
og dagatalið verða seld saman á
4.200 kr., en myndirnar á sýningunni
verða einnig til sölu. Eldur stefnir að
því að nota ágóðann til að fara í fyr-
irlestraferð um félagsmiðstöðvar á
Íslandi til að fræða ungt fólk um
HIV og alnæmi. „Ég er að reyna að
koma á fundi með Samtökum fé-
lagsmiðstöðva því mér finnst um-
ræðan um alnæmi hafa verið á und-
anhaldi hér á landi undanfarin ár.
Ég fann sérstaklega fyrir því eftir að
ég greindist, þá fór ég inn á síðu Al-
næmissamtakanna og reyndi að
finna upplýsingar á íslensku. Sumar
þeirra voru hins vegar mjög úreltar.
Og ég reyndi meira að segja að fá
samtökin með mér í lið í þessu verk-
efni, en ég fékk aldrei nein ákveðin
svör, hvort þeir vildu vera með. Ég
er hins vegar búinn að senda póst á
SAMFÉS því ég væri alveg til í að
fara í fyrirlestraferð um Ísland eftir
áramótin,“ segir Eldar sem hefur
búið í London í fjögur ár, en níu ár
þar á undan bjó hann í Noregi og
Danmörku. Hann vinnur fyrir Kod-
ak og sér um vöruflutninga á Bret-
landseyjum og á Norðurlöndunum.
Sýningin verður opnuð kl. 19 á
fimmtudagskvöldið, en hún stendur
aðeins yfir í fjóra daga.
Eldheitar nektarmyndir
Eldur Ísidór gefur út dagatal og opnar sýningu með nektarmyndum á Sólon
Ætlað til að vekja athygli á bók sem hann skrifaði um reynslu sína af HIV
Ljósmynd/Sheila Michelle
Eldur „Fyrst var ég drullu-stressaður, en svo lærir maður að slappa af,“ segir Eldur um myndirnar.
www.eldurmedia.com
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA byrjaði á útgáfutónleikunum
okkar í Austurbæ í október í fyrra. Þá
báðum við Bigga [Birgi Ísleif Gunn-
arsson] að gera eitthvað. Hann fékk
Gísla Galdur [Þorgeirsson] og Bjössa
[Björn Stefánsson] með sér í að setja á
svið leikritið Bakaradrengurinn sem
Biggi samdi þegar hann var 11 ára,“
segir Bergur Ebbi Benediktsson, liðs-
maður Sprengjuhallarinnar. Sveitin
sendi nýverið frá sér sína aðra plötu,
Bestu kveðjur, og ætlar að fagna út-
gáfunni með tónleikum í Íslensku óp-
erunni í kvöld. Ákveðin hefð hefur
skapast fyrir því að meðlimir hljóm-
sveitarinnar Motion Boys hiti upp fyr-
ir tónleika Sprengjuhallarinnar og öf-
ugt, og verður engin undantekning þar
á í kvöld.
„Við erum annars búnir að æfa mik-
ið með strengja- og blásturssveit,
þannig að þetta verða svolítið grand
tónleikar. Við verðum líka í ein-
hverjum búningum og fólk getur feng-
ið sér fordrykk í anddyrinu,“ segir
Bergur og bætir því við að tónleikarnir
verði á mjög heimilislegum og
skemmtilegum nótum. Birgir Ísleifur,
forsprakki Motion Boys, er mjög
leyndardómsfullur þegar hann er
spurður um atriði kvöldsins. „Við ætl-
um að spila ákveðin lög, sem ég ætla
þó ekki að gefa upp hver verða. Það
gæti líka verið að við skiptum upp lið-
inu og spiluðum ekki á þau hljóðfæri
sem við erum vanir að spila á,“ út-
skýrir hann.
Motion Boys fremja gjörning
fyrir Sprengjuhöllina
Morgunblaðið/Kristinn
Furðulegt Gjörningur Sprengjuhallarinnar á útgáfutónleikum
Motion Boys á Nasa fyrir réttum mánuði vakti mikla athygli.
Hefðinni haldið við á útgáfutónleikum í Óperunni í kvöld
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í kvöld,
miðaverð er 1.500 kr. og miðasala
fer fram á midi.is.
„Við munum náttúrlega taka
annað próf til staðfestingar,
en prófið sem við tókum áð-
an var nokkuð afgerandi. Ég
ætla að skilja þig eftir hérna
í smástund og leyfa þér að
hugsa málin aðeins í friði.
Ég kem til þín að vörmu
spori.“
Richard lokaði hurðinni á
eftir sér og eftir sat ég.
„Hvernig stóð á því að ég
væri kominn í þessar ógöng-
ur?“ hugsaði ég með mér.
Úr bókinni Ég er ennþá ég.
Orðrétt