Morgunblaðið - 11.11.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
Hvers kyns öfgar og endimörk hafa
löngum verið helsta könnunarefni
þýska leikstjórans Werners Herzog,
og á það jafnt við um huglæg mörk
og landfræðileg. Þannig eiga margar
myndir leikstjórans sér stað á mörk-
um hins byggilega s.s. í óbyggðum, í
geimnum, neðansjávar eða á Suð-
urheimskautslandinu og síðast en
ekki síst í frumskóginum, þar sem
reynir á ýmsa frumþætti í mannlegu
eðli og þanþol geðsmuna. Það er ein-
mitt djúpt í frumskógum Víetnam
sem nýjasta leikna mynd Herzogs,
Rescue Dawn (Dögun) á sér stað, og
glímir söguhetjan við aðstæður sem
reyna til hins ýtrasta á líkamlegt og
andlegt þolgæði hans.
Sagan er reyndar sannsöguleg,
þar segir af Bandaríkjamanninum
Dieter Dengler sem lenti í fangabúð-
um óvinarins í Víetnamstríðinu og
lagði þaðan á flótta. Sagan af eld-
raunum þessa þýska innflytjanda
sem dreymdi frá barnæsku um að
fljúga orrustuflugvél er merkileg, og
gerði Herzog heimildarmynd um
Dengler árið 1997 sem nefnist Little
Dieter Needs to Fly. Hér tekst Her-
zog aftur á við efnið frá öðru sjón-
arhorni, þar sem hann vefur efnivið-
inn inn í frásagnarhefðir
dramatískrar kvikmyndar, en stór-
leikarinn Christian Bale fer með
hlutverk Denglers. Titill mynd-
arinnar og val aðalleikara gefur
e.t.v. fyrirheit um dæmigerða stríðs-
hasarmynd en það má segja að Her-
zog leiki sér einmitt með þær vænt-
ingar. Fylgst er með harðri vist
nokkurra bandarískra hermanna í
fangabúðum Norður-Víetnama og
reynir þar fyrst og fremst á sam-
skipti og samvinnu fanganna. Milli
þeirra skapast náið samband, þar
sem karlmennskutaktar víkja fyrir
örvæntingu, sjálfsbjargarviðleitni
og mikilli nánd. Í meðförum Her-
zogs á efninu, þar sem fjallað er um
manneskjuna við skelfilegar að-
stæður, tekst myndin á flug og hefur
sig langt upp fyrir sambærilegar
stríðsmyndir frá Hollywood. Kvik-
myndataka Peters Zeitlingers fang-
ar jafnframt náttúruöflin í allri sinni
grimmd og dýrð. Þungamiðja mynd-
arinnar eru þó karakterstúdía Diet-
ers Denglers, og fer Christian Bale
frábærlega með hlutverkið.
Dögun „Titill myndarinnar og val aðalleikara gefur e.t.v. fyrirheit um
dæmigerða stríðshasarmynd en það má segja að Herzog leiki sér einmitt
með þær væntingar.“
Við endimörkin
KVIKMYND
Sambíóin Álfabakka og
Kringlunni
Leikstjórn: Werner Herzog. Aðalhlutverk:
Christian Bale, Steve Zahn og Jeremy
Davies. BNA, 120 mín.
Dögun (Rescue Dawn)
bbbbn
Heiða Jóhannsdóttir
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 LEYFÐ
BANGKOK DANGEROUS kl. 8 B.i. 16 ára
QUANTUM OF SOLACE kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
MY BEST FRIEND´S GIRL kl. 8 B.i. 12 ára
EAGLE EYE kl. 10:20 B.i. 12 ára
SÝND Á SELOSSISÝND Í ÁLFABAKKA
QUANTUM OF SOLACE kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
THE HOUSE BUNNY kl. 8 LEYFÐ
MAX PAYNE kl.10:10 B.i. 16 ára
SÝND LAUGARDAG OG SUNNUDAGSÝND Á AKUREYRI SÝND Í KEFLAVÍK
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
HÚN MUN UPPLIFA ÞAÐ SEM ENGIN
PLAYBOY KANÍNA HEFUR UPPLIFAÐ ÁÐUR ...
... HÁSKÓLA!
SÝND Í KEFLAVÍK
Rannís og Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands efna til kynningarfundar um
möguleika í upplýsingatækniáætlun 7. rannsóknaáætlunar ESB.
Dagskrá:
l Möguleikar í upplýsingatækniáætlun 7. RÁ ESB
Vinnuáætlun, reglur um þátttöku og matsskilyrði
Morten Möller, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB
l Sóknarstyrkir Rannsóknasjóðs til undirbúnings umsókna í 7. RÁ
Elísabet M. Andrésdóttir, Rannís
l Spurningar og umræður
Fundarstjóri: Sigurður Björnsson, Rannís
Á milli kl. 12:00 og 15.00 verður boðið uppá sérstaka 30 mínútna viðtalstíma
með Morten Möller fyrir þá sem vilja ræða verkefnahugmyndir sínar og möguleika í
upplýsingatækniáætlun 7. RÁ. Viðtölin fara fram hjá Rannís, Laugavegi 13, 4. hæð.
Nauðsynlegt er að skrá sig á kynningarfundinn fyrir hádegi
eða í viðtalstíma eftir hádegi í síma 515 5800 eða með
tölvupósti: rannis@rannis.is
Kynning á
upplýsingatækniáætlun
7. rannsóknaáætlunar ESB
Föstudaginn 14. nóvember kl. 8:30-10:30 á Grand Hótel Reykjavík, Háteig
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Morgunverðarfundur
HLJÓMSVEITIN The Strokes er nú farin að hugsa sér
til hreyfings eftir tveggja ára frí frá störfum. Þeim
liggur þó ekkert á og ætla að mæta aftur í vinnuna ein-
hvern tíma á næsta ári.
Trommari sveitarinnar Fabrizio Moretti sagði í sam-
tali við Billboard að fimmmenningarnir ætluðu að hitt-
ast í febrúar næstkomandi og byrja að huga að áfram-
haldandi samstarfi. Í framhaldinu myndu þeir svo gefa
út plötu og jafnvel skella sér í tónleikaferðalag. Hann
sagði að þeir væru allir hinir mestu mátar, en þó hafi
hann verið svolítið hræddur um að dagar The Strokes
væru taldir. „Ég hafði svosem enga sérstaka ástæðu
fyrir þeim áhyggjum, en ég velti þessu þó fyrir mér. Ég
held að innst inni höfum við samt allir vitað að þetta
væri bara pása.“
Fara rólega af stað
The Strokes Huga að næstu plötu.