Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 50
svo gaman saman
fjölskyldustundir eru gæðastundir
Frumbernskan er mótandi
og mikilvæg segir Sæunn
Kjartansdóttir sálgreinir.
Fyrstu þrjú árin í lífi barns og ekki síst fyrstu mánuðurnir og árið gegna algjöru lykil-hlutverki í mótun einstakl-
inga,“ segir Sæunn Kjartansdóttir
sálgreinir en nýverið kom út bók
hennar Árin sem enginn man eftir.
Í bókinni er meðal annars sagt frá
því hvernig vísindalegum stoðum
hefur verið rennt undir kenning-
ar sálgreiningar um mikilvægi
frumbernskunnar. „Rannsóknir í
taugavísindum hafa sýnt fram á
að þroski ákveðinna svæða í heil-
anum helst í hendur við umönnun
fyrstu ár ævinnar.“
Sæunn segir hvatann að bókar-
skrifunum meðal annars hafa
verið löngum til að miðla þessari
þekkingu til hins almenna les-
anda. En einnig hafi vinna hennar
með konum sem hafa sinnt með-
ferð mæðra sem eiga af ýmsum
ástæðum erfitt með að tengjast
börnum sínum verið henni hvati
til að skrifa um mikilvægi frum-
bernskunnar.
„Börn eru miklu skynugri og
næmari en við höfum haldið.
Magn tímans sem við verjum með
þeim skiptir miklu máli því með
því að vera mikið með börnunum
okkar á unga aldri kynnumst við
þeim betur og verðum þar af leið-
andi færari um að lesa þau rétt og
bregðast við þörfum þeirra á við-
eigandi hátt,“ segir Sæunn, sem
bendir á að samvera og tengsl búi
til væntumþykju og börn sem séu
mikið með foreldrum sínum og
byggi upp grundvallaröryggi í lífi
sínu búi að því fram á fullorðins-
ár. Hennar mat er að íslensk börn
fari of ung í dagvistun og dvölin á
leikskólum sé oft á tíðum of löng.
„Það hefur verið einhvers konar
sátt í sam félaginu
um að þetta sé
best fyrir alla
og viðkvæmt
mál að gagn-
r ý na þessa
lö ng u d a g-
vistun,“ segir
Sæunn, sem
mælir með því
að foreldrar leiti
leiða til þess að
stytta dagvist-
unartíma barna
sinna, sérstak-
lega fyrstu þrjú
árin.
Mig langaði til þess að kaupa lítið borðstofu-borð fyrir börnin en fann það hvergi. Það
endaði þá einfaldlega þannig að
maðurinn var sendur út í Byko
þar sem hann keypti efni og svo
smíðaði hann fyrir mig borðið.
Stólana við keypti ég í Ilvu,“ segir
Linda, sem segir langborðið, sem
er tveir metrar á lengd, hafa slegið
í gegn í eins árs afmæli sonarins
Guðmundar Fróða á dögunum.
„Krakkarnir gátu þá setið í róleg-
heitum og ég þurfti ekki að leggja
á borð á nýjan leik fyrir fullorðna
fólkið, það sat við borðstofuborð-
ið.“ Linda bendir á að fyrirkomu-
lagið sé ólíkt þægilegra fyrir
börnin, þau þurfi ekki að krjúpa
eða teygja sig til að ná í borðið eins
og við venjulegt borðstofuborð.
„Borðið nýtist svo sem föndurborð
hina daga ársins,“ segir Linda sem
fann því stað í herbergi við hlið
stofunnar en þar er fínasta leik-
herbergi bræðranna Guðmundar
Fróða og Gísla Garðars.
Linda og eiginmaður hennar
Bergur Gestur Gíslason hafa bæði
mjög gaman að því að halda barna-
afmæli, upp á gamla mátann með
kökum og kræsingum. Linda sér
Veisluborð fyr
Linda S. Guðmundsdóttir leitaði logandi ljósi að langborði fyrir börn fyrir síðasta barna-
afmæli sem hún hélt. Leitin bar ekki árangur og því varð úr að borðið var smíðað úti í
bílskúr. Börn og fullorðnir fögnuðu framtakinu.
Árin sem enginn man
Sæunn Kjartans-
dóttir Nýútkomin
bók hennar fjallar
um áhrif frum-
bernskunnar á
fullorðinsár og
mikilvægi þess að
foreldrar og börn
verji miklum tíma
saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Afmælisgestir
Skírnir, Álfrún
Embla, Sigrún
Freyja, Sif, Gísli
Garðar og Guð-
mundur Fróði.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N