Skinfaxi - 01.04.1927, Page 3
SIÍINFAXI
35
Hrafnagjá, í norðri Skjaldbreið, hvit og hrein eins og'
mjallhvítt lín, og í vestri hár og þverhníptur hamra-
veggur Almannagjár, tuttugu mannhæðir eða meir, og
viður og yndislegur f jallhringurinn alt i kring. — Og nú
eru bráðum liðin 1000 ár frá því Alþingi var háð í fyrsta
sinn á pingvöllum — 930 — 1930 = 1000 ár. — ]?essa
merkilega 10 alda afmælis Alþingis á að minnast á
þingvöllum árið 1930. pá á að lialda hátíðlegt 1000 ára
afmæli Alþingis. — Svo að segja um allan heim vekur
afmæli þetta afarmikla athygli. Búið er að stofna mý-
mörg fólög erlendis, til að vinna að undirbúningi ping-
vallafarar. Konungar og' aðrir þjóðhöfðingjar munu
koma, — allir, sem mögulega geta, ætla sér að heim-
sækja hjartastað íslands þetla ár. Menn koma iir öll-
um áttum — austri og vestri, norðri og suðri. Menn
koma úr nýja heiminum og menn koma úr gamla heim-
inum.
Margir heimsóttu fsland 1874, en þó munu þeir fleiri
verða 1930. En Iivað hugsa íslendingar sjálfir? Með
hvaða huga horfa þeir til ársins 1930? Með hvaða huga
horfum við, Vestur-fsfirðingar, til 1000 ára afmælis
Alþingis? Mun ekki marga af okkur langa til að vera
á pingvöllum þá, við hátíðahöldin ? Og mun það ekki
fara svo, að færri geti farið en vilja. En er þá ekkert
hægt að gera, til þess að sem flestir Vestur-ísfirðingar
geti verið á pingvöllum þetta ár ? Getum við ekki fetað
i fótspor útfendinga og byrjað að undirbúa pingvalla-
ferðina. Hvað vilja hreppsnel’ndirnar gera fyrir þetta
mál ? Hvað ungmennafélögin ? Hvað íþróttafélögin?
Hvað kvenfélögin? Hvað önnur félög?
Margir rnunu segja, að óþarft sé að menn f jölmenni
i þessa för, en slíkt er af misskilningi mælt. — ping-
vallaför 1930 er ekki eingöngu venjuleg skemtiför, hún
er meira. Hún er farin i þeim tilgangi að heiðra minn-
ingu þeirrar stofnunar, er einna best þykir lýsa viti og
þroska forfeðra olckar. Hún er farin til þess að heiðra