Skinfaxi - 01.04.1927, Blaðsíða 31
SIÍINFAXI
63
Hví skyldum vér þá ekki gefa því gaum,
sem glitraði fegurst og skæi'st.
Hver einasti gimsteinn vors gullfagra máls
er greiptur í feðranna dygð,
— í djúphygni Egils — í andagift Njáls
— í Illuga drengskap og trygð.
Vér megum ei glata þeim gullaldar auð
sem gæfan oss rétti í arf,
þá verðum vcr afllaus og andlega snauð,
þá er úti’ um vort framtíðarstarf.
Vér slculum því feta í feðranna spor,
en fara þó lengra en þeir,
og berjast sem Eggert, er ýtti frá Skor,
en ekki með blóðugum geir.
Og vcr skulum gera í liljóði slílc heit,
sem Hallsteinn og Ingólfur fyr,
og heimsæki’ oss vinur í liðveislu leit,
þá látum ei knýja á dyr.
Já, vcr skulum bylla þá Gunnar og Gest
og goðann, er Skarphéðinn vó —.
því framkoma þeirra er fyrirmynd best,
með frjálslyndi, mannúð og ró —,
— en hata þá félaga, Hrapp og ’ann Mörð,
sem hlaupa með lýgi og prett.
J?eir ættu’ ekki framar á íslenskri jörð
að eiga sér tilverurétt.
Eg vona að æska þín, íslenska þjóð,
þér unni og styrki þinn hag,
og gefi þir perlur í sögunnar sjóð
með samhuga fóstbræðralag.