Skinfaxi - 01.04.1927, Blaðsíða 5
SKINFAXI
37
asti þingstaður veraldarinnar, yndislegasti bletturinn
á þessu yndislega landi. — Munið að 1930 er þúsund
ára afmæli Alþingis. Minnist þess. að það er langmerk-
asti atburðurinn, sem við fáum að lifa. Minnist þess,
að þessi atburður kemur aldrei — aldrei að eilífu aft-
ur. Sleppum þvi ekki þessu dýrðlegasta tækifæri, siem
drottinn gefur okkur á allri æfi okkar. —
Og minnumst þess að lokum, sem Vestur-ísfirðingar,
að það má alls eigi henda, að þátttaka þessa hóraðs., á
þingvöllum 1930, verði ekki myndarleg. Til þess liggja
þau rök að héraðið á margra ágætra manna að minn-
ast — eða munið þið ekki Vestur-ísfirðinginn Snorra
goða*, er á Alþingi árið 1000 mælti þessi ódauðlegu
orð: „Hverju reiddust goðin, er htr brann hraunið, þar
sem nú stöndum vcr.“ Eða ættum við Vestur-lsfirð-
ingar að gleyma Vestur-ísfirðingnum Hrafni Oddssyni,
er best og drengilegast varðist erlendu valdi i málun-
um miklu — Staða-málunum. Eða ágætismanninum
Hrafni á Eyri, eða Brynjólfi Sveinssyni, lærdómsmann-
inum mikla og fræga. — Eg mintist áðan á 1000 ára
hátíðina 1874. pað er alkunna, að slærsta ykirsjón
þeirra, er fyrir henni stóðu, var sú, að þeir gleymdu
að bjóða Jóni Sigurðssyni forseta á hána. — Og ef
Vestur-ísfirðingar gleyma því að taka myndarlegan þátt
í 1000 ára afmæli Alþingis 1930, — þá vil eg segja, að
—• þá gleymisit aftur að bjóða Jóni Sigurðssyni á þá
hátið. — Eða ber okkur ekki að muna, að hann er Vest-
ur-ísfirðingur, að hann var fulltrúi þessa hcraðs á Al-
þingi, frá því það var endurreist og til dauðadags, að
hann, hinn ókrýndi konungur Islands, sómi þess, sverð
og skjöldur, væntir þess, að Vestur-Isfirðingar minn-
ist hans, Iieiðri minningu hans, á þessu einstæða 10 alda
afmæli Alþingis.
Á þing- og héraðsmálafundi Vestur-ísafjarðarsýslu
Fæddur í Haukadal í Dýrafirði.