Skinfaxi - 01.04.1927, Blaðsíða 29
SKINFAXI
61
ef þeir skyldu verða einhvers vísari af þessu tæi. Mun
eg þá gera frekari ráðstafanir til að hagnýta mér
fundinn. —
— Á íþróttanámskeiði því, er lialdið var hér í vetur
á vegum 1. S. f. og U. M. F, f, gerði eg nokkra tilraun
með vikivaka-kenslu, og tókst það framar öllum von-
um. Og það sem mest var um vert, var það, að piltarn-
ir liöfðu mjög gaman af æfingum þessum. Sérstaklega
vil eg nefna Yikivaka, er við lékum við gamalt rímna-
lag („Rímkviða“ eftir Jón Leifs). Bendir sii reynsla
vor í þá átt, að á þeim grundvelli muni mega endur-
skapa scrkennilega og rammíslenska Vikivaka. Siðan
höfum við lialdið uppi smávegis vikivaka-æfingum i
ungm.fél. Velvakandi, en fátt eitt er af þeim æfingum
að segja, enn sem komið er. —
Að endingu vil eg láta þess getið, að eg fyrir minn
part efast alls ekki um, að starf þetta megi hepjjnast
með tilstyrk og þátttöku ungmennafélaga. Og því spái
eg, að takist oss að leggja sæmilega trausta hornsteina
að endurreisn liinna fornu íslensku Vikivaka, muni þess
eigi vcrða langt að bíða, að íslensk ljóðskáld taki að
yrkja fagra Vikivaka við nútímahæfi, og að ung tón-
skáld og efnileg semji rammislensk lög' við þá. Er það
þvi von mín og trú, að mál þetta muni þannig geta
orðið til að beina hugum ungra listamanna inn á nýj-
ar brautir, er liggja inn að kjarna íslensks þjóðernis.
•— pað er einnig von mín og vissa, að með endurreisn
isl. Vikivaka muni ísl. þjóðbúningar koma til vegs og
virðingar á ný: u p p h 1 u t s-búningur kvenna og 1 i t-
k 1 æ ð i karla. — pá er sigurinn unninn: að endurreisa
nýtt á fornum grunni.
Helgi Valtýsson.