Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1927, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.04.1927, Blaðsíða 9
SKINFAXI 41 margt.unnið til nytsemdar, prýði og ánægju, bæði sjálfum sér og öðrum. pá liafa sum fclög haldið smásýningar á heimaiðju og er það einnig vel vert. Sýningar hvetja oftast til dugnaðar, — menn sjá veg i að hver leggi sinn eigin skerf sem hestan lil -—, og sýningar iivetja oft til melri vandvirkni en ella. Og einmitt þetta atriði, vandvirkn- in, er það, sem ber að leggja hina allra mestu stund á. Heistu skilyrði liverrar góðrar iðju eru að hún sé r é 11 og sem a 11 r a h e s t u n n i n, og það verður vart nóg- samlega ítrekað. Hitt er svo næst ákjósanlegast, að geta afkastað sem m e s t r i iðju á skemstum tíma. í landssýningu heimilisiðnaðarins, sem lialdin var í Reykjavik vorið 1921, var mikil iðja saman komin og mörg vinna þar góð og prýðilega ai' hendi leyst. Eink- um virlist þó kvenna vinnan jafnvandaðri en karla. En þar kom einnig viða í ljós skortur á vandvirkni, jafn- vei á einföldum hlutum, þar sem hersýnilegt var, að eigi þurfli að kenna um getuleysi eða varikunnáttu. Við, sem i dómnefndunum voru, urðum oft í vanda stödd með ýmsa góða hluti, sem að nokkru leyti áttu við- urkenningu eða verðlaun skilin, en sem ýms smávegis óvandvirkni eða ónóg athugun hafði skemt svo að galli varð að. Skal eg rélt t. d. nefna algenga hrosshársvinnu, reiptögl og gjarðir, sem mun vandlegar hefði mátt vera frá gengið. Meðal smíðisgripa, heimaunninna, var sama að segja um hornspænina, — jafn skemtilega og þjóð- lega hluti, —- þeir voru mikið meiri hlutinn miklu ver unnir en skyldi og langtum síðri en margir gamlir spænir voru. Sama er að segja um spænina, sem að jafnaði eru ti' sölu á „Thorvaldsens Basar“ i Reykja- vík. Eg fjölyrði um þessa vöntun á meiri vandvirkni á handiðjunni, sem á s ’r stað í ýmsum greinum, því að hún skemmir oft þá hluti, sem ella væru ágætir. Sér-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.