Skinfaxi - 01.04.1927, Blaðsíða 10
42
SKINFAXI
staklega er öll vandvirkni sjálfsögð og nauðsynlegt skil-
yrði með þá hluti alla, er á sýningu er ætlað að fara.
III.
Eitt af því, sem hlýtur að knýja til enn meiri að-
gerða en áður í hverskonar heimaiðju og jafnframt
krefjast alstaðar Iiinnar ítrustu vandvirkni, er það, að
nú má gera aftur ráð fyrir sýningu mikilli á allskonar
heimaiðju landsmanna.
pað er vitanlegt, að árið 1930 getur ekki hjá því far-
ið, ef engin stórslys vilja til, að hér verði sýningar mikl-
ar bæði í sérgreinum lista og iðnaðar og svo sameigin-
legri heimaiðju landsmanna. Verða þær sýningar opn-
ar öllum þeim saig útlendra ferðalanga og merkis-
manna, er þá koma hingað — auk landsmanna sjálfra.
Gildir þá allra mest að alt það, er til sýnis verður, sé
vandað að frágangi: öllum er me&t má. Og er þó einnig
mikilsvert að þátttaka þar geti orðið sem allra almenn-
ust.
Ungmennafélögin eiga að geta átt allveglega hlutdeild
i slíkri sýningu og stutt að sóma hennar. Stölcu menn
hafa jafnvel talað um, að ungmennafélögin ættu að
halda „heimilisiðnaðarsýningu“ út af fyrir sig. — pað
ætla eg óráð eitt. — „Heimilisiðnaðarfélag íslands“ á
þar að sjálfsögðu að hafa aðalforgöngu og fá það alt
í sameiginlega heild, sem sýna á. En ef vel tækist til
með iðju ungmennafélaga og starfsemi í þessum grein-
um, þá mundi það gerlegt, að „Samband ungmennafé-
laga íslands“ hefði sérdeild innan aðal sýningarinnar.
Hygg eg að þetta mundi verða auðsótt mál við Heimilis-
iðnaðarfél. ísl. eða þá stjórn, er fyrir slíkri-sýningu réði.
Eg vildi í næsta kafla geta gert nokkru nánari
grein fyrir ýmsum sérstökum atriðum er að þessari
starfsemi lúta. — Bið cg ungmennafélaga nú þegar að