Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1927, Side 4

Skinfaxi - 01.04.1927, Side 4
36 SKINFAXI minningu helgasta staðar þjóðarinnar. Og engum ís- lendingi mun vera svo kalt um hjartarætur, að ekki finni liann heilagan yl leggja að hjarta sér á pingvöll- um 1930. Enginn mun fara þaðan svo, að hann unni ekki landi sínu enn þá heitar en áður; landinu fagra og friða, landinu ljósa og ljúfa. Fjallkonunni fögru, sem hefir fóstrað okkur og alið og gert okkur að merki- legri og myndarlegri þjóð. — Og enginn mun fara það- an svo, að ekki unni hann þjóð sinni enn þá heitar en áður, — þjóðinni, sem um 1000 ár hefir barist hér að- dáanlegri baráttu, þjóðinni, sem vakið hefir á sér eftir- tekt um víða veröld fyrir þann skerf, sem hún hefir lagt til þess dýrasta og besta, sem mannkynið hefir eignast. Enginn mun koma svo á júngvöll 1930, að ekki hlaupi honum kapp í kinn og strengi þess heit að verða góður og sannur Islendingur, — enginn, sem ekki kem- ur heim í sveit sína aftur með nýju trausti á framtíð þessa lands, þessarar þjóðar — og þá um leið framtíð sinnar eigin sveitar. Og þá mun það margan lienda, að iiann finnur þá fyrst verulega, hve heitt hann ann land- inu sínu, já, hve heitt hann ann blessaðri sveitinni sinni, sem þrátt fyrir alt, er þó sveitin hans. Og menn munu strengja þess heit, að helga sinni sveit alla krafta sína, — lyfta henni, bæta hana, prýða hana. — \>k munu menn skilja til fulls, hvernig „heimsaugun svip- ast um hlut allra landa“, hvernig ])au liorfa aðdáunar- augum á þetta land, á þessa þjóð. — þessvegna er það gróði hverri sveit Islands, að e'ga sem flesta syni og dætur á pingvöllum 1930. — Fjölmennum því til Jiing- valla 1930. Byrjum að undirbúa förina, ungir og gaml- ir, konur og karlar. — J?ólt þú getir aldrei farið sjálf- ur, þá vittu að þú ert að vinna landi þínu, þjóð þinni og sveit þinni til heilla, er þú vinnur að þvi að sem flestir geti farið. Munið að J?ingvellir eru helgasti staður lands vors, hjartastaður lands vors, lieilög jörð, vegleg-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.