Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1927, Side 11

Skinfaxi - 01.04.1927, Side 11
SKINFAXI 43 taka að luigsa lil þessarar væntanlegu sýningar, þó enn sé tími til stefnu, þvi að „ekki er ráð nema í tima sé iekið.“ (Framh.). Guðm. J. frá Mosdal. Stefna Eiðasambandsins. Erindi flutt á rnóti í Eiðahólma. pegar eg á unglingsárunum sat yfir bókum mínum við gluggann á stofu föður míns, varð mér stundum ó- sjálfrátt litið út frá náminu og spurningin vaknaði: Hvað verður þú, þegar út í lífið kemur? Hvaða hlut- verk er þér ætlað að vinna? pær hugsanir voru eins og þungur undirstraumur, sem hlaut við og' við að leita upp á yfirborðið. Oft var bjart yfir þeim og mér þótti sem eitthvað mikið mundi bíða mín, en svo syrti að aftur. Mér fanst eg vera fátækur og auinur hjá þeim sem eldri voru og áttu æfistarf að halci. þeir höfðu látið gott af sér leiða og sligið spor við tímans sjó. En um mig var alt í óvissu, og ef til vill myndi eg hverfa héðan án þess. Æskan sjálf virtist mér litils virði hjá þvi, að vera eins og þeir, og það jafnvel þó þeir væru huldir kistufjölum. þekkið þið ekki einnig öll þessa djúpu þrá ungra manna til þess að eignast hlutverk að vinna, starf, sem þess sé vert, að fyrir það sé lifað? Og er ykkur ekki ljóst, að öll lífsgleði muni þrotin, ef þið finnið lienni enga svölun? — Eitt vissi eg ekki þá, sem mér er orðið ljósara nú og er ákaflega mikils vert i þessu samhandi. Eg átti þá þegar lilutverk að inna af hendi. Og svo er einnig' um hvert ykkar. pið horfið fram á veg, hugsið að það bíði ykkar þar, og það er eðlilegt og rétt. En þið eigið það

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.