Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1927, Qupperneq 18

Skinfaxi - 01.04.1927, Qupperneq 18
50 SKINFAXI in hans verður öðrum áskorun og hjálp til kristni. pennan sama veg getið þið öll gengið öðrum til bless- unar. 3. Enn eigum við að leggja sérstaka stund á það,. að hjálpa þeim, sem bágstaddir eru á einhvern hátt. Raunar felst það þegar að nokkru í því, sem eg hefi nú sagt. Alt i kringum okkur eru einhverjir, sem eiga bágt, og þeir eru fleiri en nokkur maður hefir hugmynd um. pað er svo margt, sem særir mannshjartað. pó við vildum hjálpa, þá er ekki víst, að við getum það, aö minsta kosti ekki nema að litlu leyti. pú gefur fátæk- um og hjúkrar sjúkum, það er gott, en er víst, að þú veitir þeim sanna og varanlega hjálp með því? Slikt fer eftir þeim huga, sem þú vinnur í. pað er sagt frá því í æfintvrunum, að menn komist í kletla og klung- ur, og hvernig sem þeir leiti og þreifi fyrir sér, þá finni þeir að eins urðina og kaldan hamravegginn, uns þeir að lokum hitta á töfraorðið rétta: Sesam, opnist þú. pá verði undursamleg breyting, björgin bifist og opnist, og þeir geti öruggir gengið inn. pessu er ekki ósvipað far- ið. pú vilt hjálpa, bæta mein þeirra, sem í kringum þig eru. En þér verður harla lítið ágengt, hrjóstrin þreyta þig og eggjagrjótið særir. pú kemst hvergi eins og þú vilt, — standberg alt í kring — nema því að eins, að þú finnir eina ráðið, sem lætur opnast fyrir þér. Kærleik- urinn einn leggur þér „Sesam“ á tungu. Ef þér auðnast að fylla hug þinn góðvild og ástúð til mannanna, þá muntu finna, hvernig þeir breytast gagnvart þér sniám- saman, læra að treysta þér og trúa þér fyrir því, sem amar að, jafnvel steinhjörlu geta viknað. Og þegar svo- er komið, þegar þú finnur þrá hvaðanæfa eftir samúð og styrk frá þér, þá hefir þú einnig máttinn til að lijálpa, og þarf ekki að spara hann, því að hann er runninn frá úppsprettu kraftarins. Á þennan hátt skyldum við öll reyna, hvert í sinum reit, að bera byrðarn- ar með þeim, sem eiga bágt. Jesús gengur á undan,.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.