Skinfaxi - 01.04.1927, Qupperneq 19
SKINFAXI
51
„hann, sem gerðist fátækur vor vegna, þótt hann ríkur
væri, svo að vér auðguðumst af fátækt hans.“ Með hon-
um verður okið indælt og hyrðin létt. Gott væri að
vita hvert af öðru á þeim vegum og mikill styrkur að.
En svo gætum við einnig unnið beint saman út á við
meir og meir með vaxandi þroska og starfssviði á kom-
andi tímum, t. d. með hjúkrunarfélögum, sumarheim-
ilum fyrir bágstödd kaupstaðabörn og fleiru, sem við
raunum síðar tala saman um, ef við reynumst trú og
guð lofar okkur að lifa liér.
4. Hið síðasta, sem eg vildi minnast á, er það, að
félag okkar verði í sambandi og samvinnu við skólann
hérna, eins og nafn þess bendir til, svo framarlega sem
það sé markmið hans að efla kristni i landinu. pið haf-
ið stofnað sambandið, fyrstu nemendur þessa skóla,
sem unnið honum af alhug, vilduð alt fyrir hann gera
og áttuð mikinn og góðan þátt í því, að reisa hann.
Gifta skólans varð gifta sambandsins, eins á aftur heill
þess að efla heill lians. Við erum að vísu fá enn, en
meir er komið undir djúpum og sönnum vexti hið
innra en hárri félagatölu. Einum hefir verið veittur
sigur og fáum, og mun svo enn, þar sem guð er í verki
með. pað er mest um vert, að í félagi okkar eru menn,
sem má treysta, þegar á reynir. Samband og samvinnu
við skólann hugsa eg mér á þessa leið: Skólinn leitast
við að vera ykkur andlegt lieimili, og þið hugsið þannig
til hans og hlúið að honum. Hann neytir góðrar aðstöðu
sinnar, þar sem hann nær til svo margra ungra manna,
og reynir að eignast þar flolck, sem vill af alhug helga
kristninni störf sán. peir fá aftur liðsauka meðal vina
sinna og vandamanna, og hægt og hægt myndast félög
víðsvegar i sama anda. Kirkjan starfar einnig með og
hreyfingin verður öflugri og víðtækari. Félögin eiga
öll miðstöð á Eiðum og sækja einhverjir þaðan Eiða-
mót á hverju ári. Skólinn leggur fram krafta sína fyrir
þau eftir því sem hann má og þörf og reynsla krefur.