Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1927, Side 23

Skinfaxi - 01.04.1927, Side 23
SKINFAXI 55 pá mun sólrik samtíð sveipast kærleiks bandi. pá mun fögur framtíð fylgja þjóð og landi! Helgi Hannesson. Lýðskólar. J?að er öllum kunnugra en frá þurfi að segja, livílíkt þrekvirki dönsku lýðháskólarnir hafa unnið i þágu menningar og framfara þar i landi, beint og óbeint. — Jafnvel æsitustu andstæðingar lýðliáskólastefnunnar liafa nú orðið að rifa seglin og viðurkenna ágæti þess- ara stofnana, sem á tæpum þremur mannsöldrum hafa unnið þjóðinni meira gagn en gagnfræða- og latínu- skólarnir öldum saman. Grundtvig og Iíold eru nú löngu gengnir til feðra sinna, en í hugum og hjörtum dönsku þjóðarinnar standa nöfn þeirra skráð með letri, sem aldrei máist á meðan nokkur danskur lýðháskóli stendur og starfar. En hvernig stendur á því, spyrjum vér, að þessar mentastofnanir hafa haft svo mikla þýðingu fyrir and- lega og efnalega framför þjóðarinnar? Orsalcirnar eru mikilvægar, en þó einfaldar. — pað er vakningarstarfsemi skólanna, sem hefir velt því bjargi, sem „skólarnir fyrir dauðann" gátu ekki þokað. Skóli Grundtvigs, „skólinn fyrir lifið“, þar sem hið lif- andi orð átti að vekja hæfileika nemendanna, glæða hug- sjónaeldinn, þrekið og áræðið, ástina til ættjarðarinn- ar og meðbræðranna, hefir sigrað að lokum í vöggu- landi sínu, og í ýmsum breyttum myndum unnið fót- festu um öll Norðurlönd. pað virðist engum blöðum um það að fletta, að lýð-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.