Skinfaxi - 01.04.1927, Blaðsíða 27
SKINFAXI
59
Miðar að því að vekja viljann til j»ess að gera vel,
eins vel og hægt er, og sömuleiðis viljann til þess að
nema meira upp á eigin spítur, miðar að þvi að vekja
af dvala allar bestu og göfugustu tilfinningar i brjósti
æskumannsins, trúarþörfina og trúartraustið til guðs
og samúðina til meðbræðranna. Göfugra og háleitara
markmið verður engum skóla fundið.
pá er að minnast lítilsháttar á þá ]?ýðingu, sem lýð-
skólarnir geta haft fyrir umhverfi sitt.
Með því að vera miðstöðvar alls andlegs lífs og félags-
lífs i nærliggjandi sveitum, verða þeir brátt höfuðból
til fyrirmyndar, þangað og þaðan liggja allir veg'ir, eklci
æskunnar einnar saman, heldur allra. pangað sækir
bóndinn ýmsan fróðleik um félagsmál og samvinnu
utan lands og innan, og húsfreyjan allar nýjustu fram-
farir i íslenskum heimilisiðnaði. par eru stærstu hér-
aðshátiðirnar lialdnar og íþróttamótin háð.
Að lokum vil eg minnast á ungmennafélögin í sam-
handi við lýðskólana. •— pað er sannfæring margra
ágætra manna að lýðskólarnir eigi að vera sjálfseignar-
stofnanir, en ekki ríkisskólar. Að visu ber rikinu að
styrkja og byggja þá að nokkru leyti, en stjórn þeirra
og rekstur á að vera í höndum bestu manna þess liér-
aðs eða héraða, er að stofnuninni standa.
Hér er mikið og göfugt starf fyrir ungmennafélögin
að vinna.
Veglegri minnisvarða og öruggari vopn i baráttunni
fyrir hugsjónum sínum geta þau ekki reist sér, en ung-
mennafélög pingeyjarsýslu hafa gert með stofnun og
byggingu Laugaskólans. — Ef að önnur ungmennafé-
lög landsins vildu feta í fótspor þeirra, er eg sannfærð-
Ur um að þess yrði ekki langt að biða að margir slikir
skólar væru starfræktir í sveitum landsins til margvís-
legrar blessurtar fyrir þessa þjóð.