Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1927, Síða 28

Skinfaxi - 01.04.1927, Síða 28
60 SKINFAXI J?að er þungt yfir mörgum okkar framtíðarmálum nú, en yfir lýðskólastefnunni er bjart, og það er trú mín, að frá henni eigi eftir að leggja birtu j'fir þessa þjóð, birtu samúðar og mannkærleika, ættjarðarástar og einlægr- ar samvinnulöngunar allra góðra íslendinga, að skapa glæsilega, frjálsa og sameinaða þjóð. Des. 1926. Ragnar St. porsteinsson. íslenskir Vikivakar. Sambandsstjórn U. M. F. í. hefir ákveðið að beita sér íýæir endurreisn ísl. Vikivaka (söngdansa) m. a. með það fyrir augum, að bægl verði að sýna þá á þjóðhátíð- inni á pingvöllum 1930. — Hefi eg tekið að mér forystu þessa máls, og mun eg gera mitt ílrasta til að verða því að liði. — Væri gleðiefni mikið, ef þetla tækist sæmi- lega, og eru ýmsir meðal bestu mentamanna vorra því mjög hlyntir, að svo mætti verða. Eins og að líkum lætur er mál þetta erfitt viðfangs á marga vegu og vandfarið með það. Skortir á annan l)óginn tilfinnanlega góð og notliæf kvæði, en þó miklu fremur sönghæf lög íslensk við Vikivaka og önnur dansljóð. Væri því mikils virði, ef hægt reyndist að ná í nokkur gömul íslensk lög og sönghæf, er eigi væru kunn áður. Tel eg eigi ósennilegt — og hefi enda ástæðu til að ætla að svo sé — að eitthvað muni enn til af því tæi í fórum gamals fólks og söngelsks út um sveitir lands, sérstaklega í afskektum sveitum. Treysti eg nú góðum ungmennafélögum, hverjum í sinni sveit, að grenslast eftir þessu og gera mér aðvart.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.