Skinfaxi - 01.01.1930, Side 8
8
SKINFAXI
fjölmenn alþjóðastefna æskumanna. 32 íslendingar
sóttu mótið, og var ritstjóri Skinfaxa einn þeirra. Móts-
tímann bjuggu allir þátttakendur í tjöldum og björg-
uðust gersamlega á eigin ramleik, svo sem skáta er
Frá skátamótinu. Islendingar matselda.
siður. Skátar margra þjóða höfðu þarna sýningar á
iðnaði og framleiðslu landa sinna, og á þjóðdönsum,
þjóðlegum iþróttum o. þh. íslendingar sýndu glímu
og vöktu með þvi athygli, meiri en vér liöfðum þorað
að vona. — Annars var aðaltilgangur mótsins sá, að
„sýna sig og sjá áðra“ — kynnast og læra af skáta-
bræðrum frá fjarlægum löndum. Vér Islendingar lærð-
um óhemjumikið á móti þessu, og um gamanið má
geta nærri. Mest var þó um hitt vert, að vér vöktum
þar athygli á landi voru og sýndum og sönnuðum sjálf-
stæði þess og fullveldi.
Ráðgert er, að ritgerð um skátahreyfinguna birtist
í Skinfaxa, þegar dag lengir. Verður iþess einkum getið,
er U. M. F. geta af henni lært.
Eftir skátamótið fór ritstj. Skf. um Svíþjóð og Dan-
mörku og lcynnti sér æsladýðsfélagsskap í þeim lönd-
um. Hann kom heim um miðjan október.