Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.1932, Qupperneq 3

Skinfaxi - 01.03.1932, Qupperneq 3
SKINFAXI 27 Haustið 1897 fór hann í gagnfræðaskólann á Möðru- völlum og lauk þar námi 1899. Haustið 1900 fór hann til Noregs og ællaði að nema dúkagerð í klæðaverk- smiðju i Björgvin, í því skyni, að koma á fót ullar- iðnaði á Islandi. Hann varð þó að hverfa frá námi þessu þegar á l'yrsta vetri, sakir veikinda, og sneri þá lieim. Snemma hafði Lárus lagt stund á sundnám og náð meiri leikni í þeirri íþrótt en þá var títt. Vorin eftir að hann kom frá Noregi, slundaði hann sundkennslu að Laugalandi i Eyjafirði, en kenndi hörnum á vetr- um. Um þetta leyti flutti Eim- reiðin ritgerð um lýðháskól- ana dönsku, eftir Jón Jóns- son sagnfræðing. Vakli hún talsverða athygli og varð m. a. til þess, að þeir Lár- Us og Oddur (Rafnar, nú framkvæmdastjóri Hafn- ardeildar S.Í.S.), elzti sonur séra Jónasar á Hrafna- gili, fóru í lýðháskólann i Askov haustið 1903. Stund- aði Lárus þar nám í tvo vetur og varð fyrir mjög sterkri vakningu. Telur liann þá Ludvig Schröder, prófessor la Ciour og Jalcoh Appel liaft hafa mest áhrif á sig. Að Askov heindist lnigur Lárusar fjæst að því, er síðan varð æfistarf lians. Hann segir svo sjálfur frá: «Þegar eg kom til Askov, þá 24 ára gamall, hafði eg aldrei séð leilcfimi. Að vísu liafði eg heyrt Iienn- ar getið, en fengið ranga hugmynd um hana og henn- ar tilgang. Eftir að eg hafði verið nokkra tíma i leik- fimi, fann eg hrátt hve mikla þýðingu hún hafði Lárus .1. Rist.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.