Skinfaxi - 01.03.1932, Síða 20
44
SKINFAXl
4. Á hverjum virkum degi sé unnið í 8 tíma, en
minnst 2 tímum á dag sé varið til líkamsiðkana.
Skulu vinnuþegnar fá ókeypis kennslu og áliöld,
og allir vera skyldir til að taka þátt i líkams-
iðkununum. Þeim sé hagað eftir reglum, scm I.
S. I. selur til 5 ára í senn. — Á vinnustöðvun-
um skulu vera skilyrði til að kenna sund.
5. Þeir, sem vinnunni stjórna, verða að geta kennt
hana vel, og stjórni eftir föstum, ákveðnum regl-
um, er miði að því, að innræta vinnuþegnunum
hlýðni, reglusemi og stundvísi.
Eg liefi nú reynt að gera grein fyrir því, livaða
kosti eg tel að þegnskylduvinnan liafi, og livernig
ætti að framkvæma hana i aðalatriðum. Eg býst við,
að sumir, sem hugmyndinni fylgja, vildu liafa þessu
öðruvísi í einhverjum atriðum, enda set eg þessar
tillögur hér aðeins lil þess að sýna, hvað fyrir mér
vakir, en auðvitað yrði þessu hreytt og það fullkomn-
að, ef til framkvæmdanna kæmi.
Svo treysti eg því, að þetta mál verði tekið til um-
ræðu í öllum ungmennafélögum, og þætti mjög vænt
um, ef mér eða Skinfaxa yrði skrifað um undirtekt-
irnar. Hvort sem þið eruð með eða móti, þá látið
það ekki liggja í þagnargildi, því að það versta, sem
hægt er að gera einhverri hugsjón, er að þegja
liana í hel.
Ólafur Ó. Þárðarson,
Æsustöðum, Mosfellssveit.