Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1932, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.03.1932, Blaðsíða 18
42 SKINFAXI til nýs lifs og verða framkvæmd innan skamms. „Mærin er eklci dauð, heldur lifir hún“.“ Nú finnst mér mærin vera búin að sofa nógu lengi, og að það sé hlutverk ungmennafélaganna að vekja hana. Það má ekki minna vera, en að þau taki málið til alvarlegrar umræðu, svo að það geti kornið í ljós, hvort meiri hluti ungmenna íslands er ekki liugmynd- inni fylgjandi. Þvi að ef þau eru með henni, liver ætti þá að vera á móti henni? Það hefir margl hrcytzt síðan árið 1903. Óleljandi möguleikar og verkefni hafa vaknað hjá þjóðinni, og mörg ný áhugamál hjá æskulýðnum. Þegar eg lmgsa um þegnskylduvinnuna, þá finnst mér, að hún geti hezt af öllu hjálpað til að koma fram mörgum áhugamálum ungmennafélaga. Og eg get alls ekki Iiugsað eins og vísuhöfundurinn, sem sagði, að öll sælan væri sú, að fá að vera þræll, „og moka skít fyrir ekki neitt“. — Því að einmitt hið hezta, sem þeir fá fyrir vinnua, er að læra það, að flcira er verðmæti en peningar, og að það er ekki takmark lífsins, að athuga aðeins og reikna út, hve margar krónur fáist fyrir livert viðvik. Það er líka vert að athuga þelta: Er verkið þarft, og sjást þess minnjar, þegar maðurinn er liorfinn? Eg vil hiðja ykkur að athuga, að eg hugsa mér ekki þegnskylduvinnuna sem leiðinlega kvöð, er þröngvað sé upp á æskufólkið, heldur tel eg, að hún muni verða glæsilegur menningarskóli, er stofnaður sé fyrir pað. Og að sá skóli hafi þann kost fram yfir aðra skóla, að hann nái til allra ungra manna; líka þeirra, sem ekki hafa ástæður né framtak i sér til þess að sækja aðra skóla, en þeir unglingar þarfn- ast þess mest, að mannast. Og að í þessum skóla vinni saman, að varanlegum þjóðþrifaverkum, allir ungir menn, ríkir og fátækir, úr sveitum og kaup-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.