Skinfaxi - 01.04.1946, Blaðsíða 4
4
SKINFAXI
sóma fyrir hina íslenzku þjóð. Sérstaklega skal reyna
að leggja stund á að fegra og hreinsa móðurmálið.“
Fyrstu ungmennnafélagarnir sýndu það í verki, að
þeim var alvara með tilgang félags síns. Þeir gerðust
umsvifamiklir, og stundum svo, að þeir móðguðu eldri
og reyndari menn, eins og þegar þeir sendu blaðstjór-
um áskorun um að vanda belur mál lilaða sinna. Blað-
stjórunum fannst að vonum, að þessir ungu menn
ætlu ekki að vera leiðbeinendur þeirra, til þess skorti
þá þeklcingu. En ekki er eg í vafa um, að þessi umbrot
ungmennnafélaganna um fegrun málsins hafi borið
talsverðan árangur. Þeir rcyndu að vanda mál sitt, og
eg held, að ]iað megi þaklca ungmennafélögunum, að
ýmsum orðskrípum, sem virtust ætla að festa sig í
málinu, var útrýmt, svo sem orðinu kokkhús. Þá vildu
hinir fyrstu ungmennafélagar vinna að því að vekja
áhuga þjóðarinnar á sögu hennar og bókmenntum, en
livað þeim liefir tekizt í því efni, skal látið ósagt hér.
Ungmennafélagarnir munu hafa unnið meira að því
en nokkur annar félagsskapur i landinu að velcja áhuga
þjóðarinnar á því að eignast eigin fána, og sá þáttur í
starfsémi þeirra að magna sjálfstæðisþrá og sjálfstæð-
iskröfur þjóðarinnar mun hafa verið sterkari en al-
mennt hefir verið gefið gætur. Ungmennafélagar unnu
margir vel að því að reyna að fella sambandslagaujip-
kastið .1908, en ef það frumvarp liefði verið samþykkt,
mundi það hafa stórum tálmað því, að þjóðin liefði
leyst sig undan erlendri yfirdrottnun eins fljótt og
raun liefir á orðið; þá hefði hún sennilega ekki fengið
fullveldisviðurkenningu 1918.
Ungmennafélögin vöktu áhuga á íslenzku glímunni,
sundi og öðrum íþróttum.
Ungmennafélögin eiga stóran þátt í sköpun hins nýja
tíma á íslandi, liinnar nýju aldar í sögu þjóðarinnar.
Við þessi 40 ár síðan Ungmennafélag Akureyrar var
slofnað eiga þessi orð Jónasar Ilallgrímssonar: „Það