Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1946, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.04.1946, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI linguin, þótt þar séu og kvæðin Ásrún, Sesam, Sig- urður hreppstjóri og liið langa ádeilukvæði Æruprís. Þýddu iívæðin eru ekki eftir ómerkari skáld en Heine, Wordsworth, Burns og Poe. Sennilega hefur skáldinu ekki fundizt mikið til um þýðingarnar, því að höfunda er ekki getið. En livað er nú um skáldið? Fékk það ckki byr undir báða vængi og orti eflt og magnað af ummælum rit- dómaranna og velgengni bókarinnar? Maður skyldi ælla það. Byrjendabókum er ekki alltaf sunginn ein- skær lofsöngur, og það hefur margan höfundinn kost- að kappsfulla baráttu og margar bækur að fá slíka dóma sem Örn Arnarson féklc fyrir Illgresi. En Magnús Stefánsson er engum öðrum likur. Með- an ritdómarar keppast við að hlaða bók lians lofköstu og þjóðin svo að scgja sporðrennir henni í einum bita og kvæði hans eru kyrjuð landshornanna milli, —• á meðan dregur liann sig enn meir í híði sitt og gerist að mun hlédrægari en áður. Ilann flytur hurt úr Vest- mannaeyjum, þar sem liann hafði verið lengstum í síð- aslliðin 12 ár og eignazt marga kunningja, og flyzt til Ilafnarfjarðar, þar sem hann var fáum kunnur. Hann hverfur þjóðinni. Hann liættir að yrkja. Það er engu líkara en liann liafi fengið ofbirtu í augun, er menn tóku að varpa á hann kastljósi eftirtektar sinnar og vildu vita, hver hann væri, snillingurinn, sem auðgaði íslenzkar bókménntir að Illgresi. — Það mun vera ýkjulaust, þó sagt sé, að fá séu þess dæmi um víða ver- öld, að skáld eða rithöfundur hafi snúizt svo við, er fyrsta bók hans hlaut almenna viðurkenningu. Og þarna liggur fólgin úrslitalýsing á Magnúsi Ste- fánssyni. Hann vildi um fram allt lifa í friði fyrir öll- um, gera það, sem honum sjálfum leizt, hafast það eitt að, er honum hentaði, — dyljast. Hann lét ekki stjórn- ast af annarra dómum og stundarhrifni, lil þess var

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.