Skinfaxi - 01.04.1946, Page 11
SKINFAXI
11
gefa út Ijóðabók. Sem fyrr leit liann á þessi ljóð sín
aðeins sem tómstundadútl, er ekki ætti annað erindi i
keiminn en stytta honum sjálfum stundir.
Nú koma vinirnir til skjalanna og vilja, að hann gefi
iafarlaust út bók. Og Magnús lætur tilleiðast, og árið
1924 kemur út ljóðabókin Illgresi, eftir Örn Arnason.
Það var aðallega einn maður, sem stuðlaði að því, að
Illgresi kom út, Kristinn Ólafsson, þá bæjarstjóri i
Vestmannaeyjum. Hann sá um útgáfu bókarinnar og
annaðist allar fjárreiður i sambandi við liana. En skáld-
ið átti þó enn góðan hauk i horni sem Magnús Jónsson
prófessor var, og var hann mjög hjálplegur við útgáf-
nna. Skáldið vildi að vonum ekkert við það eiga.
Magnúsi kemur ekki til hugar að setja sitt raunveru-
lega nafn á bókina, dulnefni var sjálfsagt. Annað hefði
líka verið uppreisn gegn eðli hans og lyndiseinkunn,
sem óneitanlega var í hinum ríkasta mæli slungin þeim
þætti að dyljast. Og heiti bókarinnar, Illgresi, gefur og
fullkomlega til kynna, livers konar gróður í túni Braga
uonum hefur fundizt þessi ljóð sín, eða hvaða dóm
kann hefur búizt við að fá fyrir þau. Þó er ckki fju-ir
það að synja, að oft kenndi galsa i liáttum Magnúsar,
°g má vel vera, að þar sé að noklcru leyti að finna or-
sökina að nafngift bókarinnar. Einnig mun hann liafa
'viljað líla á sig sem ádeiluskáld, og var þá nafnið
hressilega valið.
En þótt bókin væri frá höfundarins hendi ekki valið
virðulegt heiti, og hún skreytti sig á þann hátt ekki
ineð fagurfjöðrum, var henni samt tekið með kostum
°g kynjum. Ritdómarar tóku lienni opnum örmum og
ívaivetna, sem um hana var ritað, var lokið á hana
° so, <’K En dómur þjóðarinnar var þó sýnu stórkost-
legri: Bókin seldisl upp á örskömmum tíma.
Þessi fyrsta útgáfa af Ulgresi var aðeins 82 bls. í
kvartbroti. Voru kvæðin 40, 4 stökur og 7 þýdd ljóð.
I.angmest bar á hinum hnyttnu smákvæðum og kvið-