Skinfaxi - 01.04.1946, Blaðsíða 27
SKINFAXI
27
beri gœfu i skauti sér. Þau munu fá sama tældfæri og
allir a'ðrir, og gæfa þeirra eða ógæfa mun eftir það
Nera i höndum þeirra sjálfra.
Sjálfstæði.
Astraliumaðurinn, sem nú er svo heppinn að halda
keim frá vígvöllunum, hefur öðlazt dýrmæta þekkingu
á öðrum þjóðum. Hann var sendur víða um heim, og
áann átti saman að sælda við þjóðir með ólíkum tung-
Um og trúarbrögðum. Þetta varð að sjálfsögðu til þess,
að sjóndeildarhringur hans víkkaði. Hann var ekki
’engur haldinn ýmsum sjónarmiðum eyjarskeggja, sem
hýr mörg þúsund milur frá Evrópu og Ameríku.
Þrátt fyrir þetta, hefur liann lialdið fyrri samúð sinni
uieð þjóðum og kynþáttum, sem hann hyggur bera
skarðan hlut frá borði og vera minni máttar. Þetta
kemur fram í þvi, að hann liefur jafnan verið drjúgur
talsmaður fyrir auknu sjálfstæði til handa þjóðum í
Kyrrahafslöndum. Það er eigi að síður vafamál, hvort
þessi samúð hans er svo mikil, að hann vilji skipta sér
af innanlandsátökum i einstökum löndum, þegar svo
skammt er liðið frá hinum mikla og langa hildarleik.
Þó að Japan sé nú ekki lengur í tölu þeirra landa, er
ala með sér stórveldisdrauma, hafa hermenn Ástralíu
samt komizt að raun um það á stríðsárunum, hve land
þeirra liggur nálægt þéttbýlum eyjum og lönduin í
Asíu. Ástraliumenn óttuðust heimsyfirráðaslefnu Jap-
ana fyrir strið. Nú er Japan úr sögunni, en livaða Asíu-
land litur ágirndaraugum til suðurs á morgun?
Það er trú Ástralíumanna sem annarra, að hamingja
mannkynsins á þessari atom-öld sé í því fólgin, liversu
til tekst með Bandalag hinna sameinuðu þjóða.
Bönd skyldleika og erfðavenja eru mjög sterk með
löndum liins brezka heimsveldis. Þessi menningar-
skyldleiki gerir þjóðunum ldeift að vinna bug á ýms-
lun erfiðleikum og vandamálum, sem sífellt rísa þjóða